10. (1776). fundur
10. (1776). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
14.03.2017
Kl. 08:00 - 09:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1611204
01
Ársreikningur Garðabæjar 2016
Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, mættu á fund bæjarráðs.
Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2016, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.
Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2016 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 16. mars og síðari umræða 6. apríl 2017.
Málsnúmer 1504148
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar um forkynningu á nýju deiliskipulagi fyrir Lundahverfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna nýtt deiliskipulag Lunda samkvæmt 4.mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 3. mgr. sömu greinar. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Málsnúmer 1606329
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns ásamt svörum við athugasemdum sem bárust í athugasemdarfresti samkvæmt 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga 123/2010.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, gerir athugasemd við lokun Herjólfsbrautar í austur um Gamla Álftanesveginn.
Málsnúmer 1603374
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Akrabraut.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akra í tilefni umsóknar eigenda lóðarinnar við Akrabraut 1 um breytingu á byggingarreit o.fl., sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna íbúum og eigendum við Línakur 3, 4, 6, 8, og 10.
Málsnúmer 1703077
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda varðandi lóðina við Unnargrund 2.
Bæjarráð samþykkir að lega til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna breytingar á byggingareit lóðarinnar við Unnargrund 2, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna íbúum og eigendum við Sjávargrund og Unnargrund 1, 3, 5, 6, 7, 8, og
Málsnúmer 1610043
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts vegna beiðni um skiptingu eignar að Hrísholti 11.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna tillögu eigenda Hrísholts 11 um skiptingu eignar en við grenndarkynningu komu fram athugasemdir nágranna þar sem með málefnalegum rökum er lagst gegn samþykkt tillögunnar.
Málsnúmer 1702256
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi á lóðinni við Engimýri 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Engimýri 2 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynna skal umsóknina íbúum og eigendum að Engimýri 1, 3, 4, 10 og 12.
Málsnúmer 1612107
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Vesturhraun 5a.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Vesturhraun 5a. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 1702333
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi kynningu Hafnarfjarðarbæjar á breytingu á aðalskipulagi.
Lögð fram.
Málsnúmer 1410266
10
Opnun tilboða í framkvæmdir við lóð Urriðaholtsskóla.
Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við lóð Urriðaholtsskóla sem yfirfarin hafa verið af hönnuðum.
Gott verk ehf. kr. 193.349.704
Garðyrkjuþjónustan ehf. kr. 213.892.500
Grafa og Grjót ehf. kr. 226.362.450
Sumargarðar og Bjössi ehf. kr. 235.000.000
Háfell ehf. kr. 248.168.286
Prima ehf. kr. 286.647.525
Kostnaðaráætlun kr. 201.817.200
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Góðs verks ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Málsnúmer 1703048
11
Tilkynning frá innanríkisráðuneytinu varðandi skýrslu um endurskoðun fjármálakafla sveitarstjórnarlaga, dags. 28.02.17.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir helstu atriðum og niðurstöðum í skýrslu um endurskoðun á fjármálakafla sveitarstjórnalaga.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1703054
12
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis), 106. mál., dags. 03.03.17.
Lagt fram og vísað til umfjöllunar mannréttinda- og forvarnanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1703070
13
Framlög til stjórnmálaflokka 2017
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu á greiðslu til stjórnmálasamtaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2017.
Framsóknarflokkur kr. 231.301
Sjálfstæðisflokkur kr. 2.058.576
Björt framtíð kr. 517.798
Samfylking kr. 346.951
Fólkið í bænum kr. 345.374
Samtals: kr. 3.500.000
Málsnúmer 1703013
14
Bréf Sorpu bs. varðandi ársreikning 2016, dags. 06.03.17.
Lagt fram.
Málsnúmer 1703078
15
Bréf Sorpu bs. varðandi uppgjör vegna reksturs endurvinnslustöðva, dags. 06.03.17.
Bæjarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins þar til fyrir liggja niðurstöður rekstrarúttektar byggðasamlagsins og tillögur starfshóps um endurskoðun á núverandi fyrirkomulagi á rekstri endurvinnslustöðvanna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1703076
16
Erindi Landlæknis um heilsueflandi samfélag, dags. 07.03.17.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi að þátttöku bæjarins í vinnustofu um heilsueflandi samfélag. Fram kom að skammur fyrirvari á boðun takmarki þátttöku sem er miður þar sem um mjög áhugavert málefni er að ræða.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1702192
17
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga um boðun aðalfundar 2017.
Málsnúmer 1703099
18
Erindi erfingja SÞ um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarinnar við Grænagarð, dags. 05.03.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1703098
19
Bréf Nordjobb varðandi sumarstörf 2017, dags. 06.03.17.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611066
20
Umhverfisstefna Garðabæjar - endurskoðun
Bæjarráð vísar endurskoðun á umhverfisstefnu ásamt viðauka um líffræðilegan fjölbreytileika í Garðabæ til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701094
21