Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Unnargrund 2.

Málsnúmer 1703077

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

22. (1788). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Unnargrund 2. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

7. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda að lokinni grenndarkynningu. Í breytingunni fólst breytt lögun byggingarreits. Engar athugasemdir hafa borist.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.ml.3.mgr.41.gr Skipulagslaga.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

6. (808). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna breytingar á byggingareit lóðarinnar við Unnargrund 2, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna íbúum og eigendum við Sjávargrund og Unnargrund 1, 3, 5, 6, 7, 8, og 9.

Bæjarráð Garðabæjar

04

10. (1776). fundur

Bæjarráð samþykkir að lega til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna breytingar á byggingareit lóðarinnar við Unnargrund 2, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna íbúum og eigendum við Sjávargrund og Unnargrund 1, 3, 5, 6, 7, 8, og

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytinu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Unnargrund 2. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit til að laga hann að hönnun á íbúðarhúsi fyrir fatlað fólk.
Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunaað vísa tillögunni í grenndarkynningu í samræmi við 2.mgr.43.gr. Grenndarkynna skal íbúum og eigendum við Sjávargrund og Unnargrund 1,3,4,5,6,7,8 og 9.