Beint í efni

6. (808). fundur

16.03.2017
Bæjarstjórn Garðabæjar

6. (808). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

16.03.2017

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 2. mars 2017 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1703007F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 7/3 ´17.

Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1703017F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 14/3 ´17.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Björt framtíð leggur til að fyrirhugaðri lokun á gamla Álftanesveginum við Herjólfsgötu verði frestað á meðan áhættumat og mælingar á umferð fer fram á þessari leið. Þannig yrði komið til móts við þarfir allra íbúa Garðabæjar á upplýstan hátt.“

Greinargerð:

Lokunin myndi bitna verulega á íbúum og rekstraraðilum sem þurfa að fara aukalega 2 kílómetra um gatnamót á nýjum Álftanesvegi sem kunna að vera hættuleg. Annar kostur er að fara í gegnum skólahverfi í norðurbæ Hafnarfjarðar sem ekki getur talist ákjósanlegt. Íbúar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Hafnarfjarðarbær og Sjómannadagsráð (Hrafnista) hafa ítrekað andmælt þessari lokun. Björt framtíð telur að kanna þurfi betur kosti og galla við lokunina með viðeiagandi áhættumati á báðum kostum svo hægt sé að taka upplýsta og vel rökstudda ákvörðun í þessu máli.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi og framkomna tillögu.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi framkomna tillögu og lagði til henni verði vísað til bæjarráðs.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs með vísan til 16. tl., erindis Landlæknis um heilsueflandi samfélag og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að skipa fimm manna starfhóp til að vinna að undirbúningi byggingar fjölnota íþróttahúss á svæði austan Reykjanesbrautar. Í tillögu að nýju aðalskipulagi er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðabyggðar á svæðinu sem fléttast saman við skóla- og íþróttasvæði.

Starfshópurinn skal skipaður þremur fulltrúum tilnefndum af bæjarráði, einum fulltrúa tilnefndum af UMF-Stjörnunni og einum fulltrúa tilnefndum af UMF-Álftaness.

Starfsmaður hópsins verði íþróttafulltrúi Garðabæjar en aðrir embættismenn Garðabæjar starfa með hópnum eftir þörfum. Starfshópurinn skal skila greinargerð til bæjarráðs fyrir lok maí 2017.

Bæjarráð skal setja hópnum erindisbréf.“

Greinargerð:

Á árinu 2016 var lagður nýr gervigrasvöllur á skóla- og íþróttasvæði Álftaness og samkvæmt framkvæmdaáætlun ársins 2017 verður unnið að endurnýjun og byggingu nýrra gervigrasvalla á Ásgarðssvæðinu sem mun stórbæta aðstöðu til knattspyrnuiðkunar. Í framhaldi af þessari uppbyggingu íþróttamannvirkja er eðlileg þróun að hafinn verði undirbúningur að byggingu fjölnota íþróttahúss á svæði austan Reykjanesbrautar. Lagt er til að skipaður verði starfshópur til að undirbúa málið með þarfagreiningu þar sem áhersla verður lögð á að húsið geti nýst öllum bæjarbúum. Í því sambandi verði horft m.a. til þess að húsið verði nýtt til knattspyrnuiðkunar, fyrir skólaíþróttir á skólatíma, sýninga- og menningaviðburða og göngu- og líkamsþjálfunar eldri borgara. Starfshópurinn skal jafnframt leggja mat á nánari staðsetningu, stærð og gerð, umferðamál og aðgengi, bílastæðaþörf, o.fl. auk þess sem gróf kostnaðargreining valkosta skal liggja fyrir.

Lögð er áhersla á að starfshópurinn skili niðurstöðum í maílok vegna undirbúnings fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018 (2018-2021).

Tillagan samþykkt samhljóða.

Fundargerðin sem er 21 tl.., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1703003F

03

Fundargerð leikskólanefndar frá 6/3 ´17.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 2. tl., ósk um fjölgun starfsdaga.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1702025F

04

Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 1/3 ´17.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., samningur við KVAN um námskeiðið „verkfærakistan“.

Sturla Þorsteinsson, ræddi sama mál.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1703004F

05

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 3/3 ´17.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., vetrarhátíð, 5. tl., jazzhátíð og 10. tl., auglýsing eftir forstöðumanni Hönnunarsafns. Gunnar Valur, færði Hörpu Þórsdóttur, fráfarandi forstöðumanni þakkir fyrir frábær störf í þágu safnsins.

Sigríður Hulda Jóndóttir, ræddi 8. tl., miðbæjarhátíð og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar leggur til að Garðabær boði til fundar með rekstrar- og þjónustuaðilum á Garðatorgi. Markmið fundarins er annars vegar að tengja þessa aðila saman og hins vegar að fara yfir hvernig bæjarfélagið getur stutt við starfsemina á Garðatorgi.“

Greinargerð:

Garðatorg er í hjarta bæjarins og framkvæmdir við torgið eru langt komnar. Margir rekstrar- og þjónustuaðilar eru á torginu og mikilvægt er að starfsemi þeirra sé blómleg, þjónusti bæjarbúa vel og efli menningu og bæjarbrag í Garðabæ.

Á slíkum fundi væri hægt að ræða ýmis hagnýt málefni, svo sem bílastæðamál, merkingar og skilti, öryggismál, stofnun samtaka, samskiptavettvang, þráðlaust net á torginu, árlega viðburði sem efla bæjarbrag og frekara samstarf.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 8. tl., miðbæjarhátíð og framkomna tillögu.

Framkomin tillaga samþykkt samhljóða.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1703011F

06

Fundargerð skipulagsnefndar frá 9/3 ´17.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1, tl., nýtt deiliskipulag fyrir Lundi, 3. tl., br á deiliskipulagi Akrahverfis vegna Akrabrautar 1, 6. tl., beiðni um skiptinu eignar að Hrísholti 11.

María Grétarsdóttir ræddi 3. tl.,

Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl.,

Halldór Jörgensson, ræddi 3. tl.,

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1703008F

07

Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla Garðabæjar frá 9/3 ´17.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1703006F

08

Fundargerð umhverfisnefndar frá 8/3 ´17.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., styrkumsókn til endurheimt votlendis, 4. tl., hreinsunarátak 2017.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., hreinsunarátak 2017.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., hreinsunarátak.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 4. tl., hreinsunarátak.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1702023

09

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7/3 ´17.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1701135

10

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 3/3 ´17.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., ársreikningur 2016, 3. tl., dómsmál og 4. tl., leiðakerfisbreytingar.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1611066

11

Endurskoðun Umhverfisstefnu Garðabæjar ásamt viðauka um líffræðilegan fjölbreytileika í Garðabæ.

Jóna Sæmundsdóttir, formaður umhverfisnefndar fylgdi stefnunni úr hlaði og sagði frá vinnu við endurskoðun stefnunnar og helstu atriðum. Jóna færði starfsmönnum bæjarins sem komið hafa að vinnu við endurskoðun stefnunnar þakkir fyrir þeirra störf.

Til máls tóku

Sturla Þorsteinsson (2)

Sigríður Hulda Jónsdóttir

Jóna Sæmundsdóttir

Áslaug Hulda Jónsdóttir

Gunnar Valur Gíslason

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða endurnýjaða umhverfisstefnu Garðabæjar.

Málsnúmer 1611204

12

Ársreikningur Garðabæjar 2016

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2016. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum.

Á fundinum er lögð fram sundurliðun ársreiknings og skýrsla endurskoðenda.

Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Til máls tóku:

María Grétarsdóttir (2), Gunnar Einarsson (2), Sturla Þorsteinsson, Almar Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson, Gunnar Valur Gíslason.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2016 til síðari umræðu í bæjarstjórn.