Fundargerð bæjarráðs frá 14/3 ´17.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (808). fundur
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Björt framtíð leggur til að fyrirhugaðri lokun á gamla Álftanesveginum við Herjólfsgötu verði frestað á meðan áhættumat og mælingar á umferð fer fram á þessari leið. Þannig yrði komið til móts við þarfir allra íbúa Garðabæjar á upplýstan hátt.“
Greinargerð:
Lokunin myndi bitna verulega á íbúum og rekstraraðilum sem þurfa að fara aukalega 2 kílómetra um gatnamót á nýjum Álftanesvegi sem kunna að vera hættuleg. Annar kostur er að fara í gegnum skólahverfi í norðurbæ Hafnarfjarðar sem ekki getur talist ákjósanlegt. Íbúar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Hafnarfjarðarbær og Sjómannadagsráð (Hrafnista) hafa ítrekað andmælt þessari lokun. Björt framtíð telur að kanna þurfi betur kosti og galla við lokunina með viðeiagandi áhættumati á báðum kostum svo hægt sé að taka upplýsta og vel rökstudda ákvörðun í þessu máli.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi og framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi framkomna tillögu og lagði til henni verði vísað til bæjarráðs.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs með vísan til 16. tl., erindis Landlæknis um heilsueflandi samfélag og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að skipa fimm manna starfhóp til að vinna að undirbúningi byggingar fjölnota íþróttahúss á svæði austan Reykjanesbrautar. Í tillögu að nýju aðalskipulagi er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðabyggðar á svæðinu sem fléttast saman við skóla- og íþróttasvæði.
Starfshópurinn skal skipaður þremur fulltrúum tilnefndum af bæjarráði, einum fulltrúa tilnefndum af UMF-Stjörnunni og einum fulltrúa tilnefndum af UMF-Álftaness.
Starfsmaður hópsins verði íþróttafulltrúi Garðabæjar en aðrir embættismenn Garðabæjar starfa með hópnum eftir þörfum. Starfshópurinn skal skila greinargerð til bæjarráðs fyrir lok maí 2017.
Bæjarráð skal setja hópnum erindisbréf.“
Greinargerð:
Á árinu 2016 var lagður nýr gervigrasvöllur á skóla- og íþróttasvæði Álftaness og samkvæmt framkvæmdaáætlun ársins 2017 verður unnið að endurnýjun og byggingu nýrra gervigrasvalla á Ásgarðssvæðinu sem mun stórbæta aðstöðu til knattspyrnuiðkunar. Í framhaldi af þessari uppbyggingu íþróttamannvirkja er eðlileg þróun að hafinn verði undirbúningur að byggingu fjölnota íþróttahúss á svæði austan Reykjanesbrautar. Lagt er til að skipaður verði starfshópur til að undirbúa málið með þarfagreiningu þar sem áhersla verður lögð á að húsið geti nýst öllum bæjarbúum. Í því sambandi verði horft m.a. til þess að húsið verði nýtt til knattspyrnuiðkunar, fyrir skólaíþróttir á skólatíma, sýninga- og menningaviðburða og göngu- og líkamsþjálfunar eldri borgara. Starfshópurinn skal jafnframt leggja mat á nánari staðsetningu, stærð og gerð, umferðamál og aðgengi, bílastæðaþörf, o.fl. auk þess sem gróf kostnaðargreining valkosta skal liggja fyrir.
Lögð er áhersla á að starfshópurinn skili niðurstöðum í maílok vegna undirbúnings fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018 (2018-2021).
Tillagan samþykkt samhljóða.
Fundargerðin sem er 21 tl.., er samþykkt samhljóða.