Beint í efni

Umhverfisstefna - endurskoðun

Málsnúmer 1611066

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

42. fundur

Sýnieintak af bækling með umhverfisstefnu Garðabæjar lagður fram. Von er á bæklingi úr prentun á næstu dögum og verður hann borinn í hús.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

31. fundur

Lagt fram til skoðunar

ÍTG fagnar þeim áherslum á hjóla og göngustíga sem fram koma í umhverfisstefnunni. Slíkt er í samræmi við markmið bæjarins um að ýta undir aukna hreyfingu almennings.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

35. fundur

Útlit umhverfisstefnu Garðabæjar lögð fram.

Umhverfisnefnd samþykkir útlit og innihald umhverfisstefnunnar.
Umhverfisstefnan verður sett á vef Garðabæjar í vikunni og stefnan verður svo gefin út á pappírsformi í haust.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

32. fundur

Umhverfisstefna Garðabæjar sem nefndin hefur unnið að undanfarið ásamt viðauka um líffræðilegan fjölbreytileika í Garðabæ hefur verið tekin fyrir í bæjarráði og samþykkt

Umhverfisnefnd leggur til að þessi gögn fari í prófarkalestur og áfram til hönnunar með myndum til birtingar á www.gardabaer.is og til útgáfa bæklings.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

6. (808). fundur

Jóna Sæmundsdóttir, formaður umhverfisnefndar fylgdi stefnunni úr hlaði og sagði frá vinnu við endurskoðun stefnunnar og helstu atriðum. Jóna færði starfsmönnum bæjarins sem komið hafa að vinnu við endurskoðun stefnunnar þakkir fyrir þeirra störf.

Til máls tóku

Sturla Þorsteinsson (2)
Sigríður Hulda Jónsdóttir
Jóna Sæmundsdóttir
Áslaug Hulda Jónsdóttir
Gunnar Valur Gíslason

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða endurnýjaða umhverfisstefnu Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

06

10. (1776). fundur

Bæjarráð vísar endurskoðun á umhverfisstefnu ásamt viðauka um líffræðilegan fjölbreytileika í Garðabæ til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

07

31. fundur

Umhverfisstefna Garðabæjar hefur verið í vinnslu og til umfjöllunar í nefndum bæjarins.

Umhverfisnefnd afgreiðir stefnuna.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

2. fundur

Lögð fram drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu Garðabæjar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við drögin.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

09

29. fundur

Lagt fram til kynnningar

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

10

20. fundur

Drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu lögð fram til umsagnar.

Drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu Garðabæjar lögð fram til kynningar og umsagnar.
Menningar- og safnanefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu.

Fjölskylduráð Garðabæjar

11

1. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1611066 Umhverfisstefna - endurskoðun. Drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu Garðabæjar lögð fram og rædd. Fjölskylduráð getur fyrir sitt leyti samþykkt fyrirliggjandi drög að umhverfisstefnu en bendir á að gagnlegt væri að stefnan innihéldi ákvæði um kattahald.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

12

30. fundur

Drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu Garðabæjar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

13

29. fundur

Lögð fram drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu.

Lögð fram drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

14

28. fundur

Umhverfisstefna Garðabæjar var samþykkt af bæjarstjórn og útgefin árið 2001 og umhverfisstefna sveitarfélagsins Álftaness árið 2004.
Nú er unnið að endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 eftir sameiningu sveitarfélaganna.

Umhverfisnefnd telur mikilvægt að endurskoða og sameina umhverfisstefnurnar.