42. fundur
42. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
13.02.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Halldór Halldórsson - varamaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - varamaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1710188
01
Íbúakönnun - þjónustukönnun 2017
Íbúakönnun lögð fram. Nefndin ánægð með niðurstöðurnar.
Málsnúmer 1801366
02
Efnagreiningarniðurstöður NMÍ, Urriða- og Vífilsstaðavatn 2017
Efnagreiningarniðurstöður NMÍ, við Urriðavatn og Vífilstaðavatn, lagðar fram. Nefndin ánægð með niðurstöður.
Málsnúmer 1712154
03
Endurheimt og varðveisla votlendis á Íslandi - lykilhlutverk sveitarfélaga
Bréf Landgræðslu Ríkisins lagt fram, þar sem sveitarfélög eru hvött til endurheimt votlendis. Endurheimt hafa verið þrjú svæði í Garðabæ og horft verður til áframhaldandi endurheimtar votlendis í landi Garðabæjar.
Málsnúmer 1802138
04
Örplast í neysluvatni
Fréttatilkynning frá Veitum varðandi örplast í neysluvatni lögð fram. Umhverfisnefnd telur nauðsynlegt að fylgjst með þróun þessara mála.
Málsnúmer 1611066
05
Umhverfisstefna - endurskoðun
Sýnieintak af bækling með umhverfisstefnu Garðabæjar lagður fram. Von er á bæklingi úr prentun á næstu dögum og verður hann borinn í hús.
Málsnúmer 1711262
06
Móttaka og flokkun á plasti til endurvinnslu
Umhverfisnefnd fagnar því að sérsöfnun á plasti við heimili sé að hefjast 1. mars.
Málsnúmer 1711080
07
Upplýsingagjöf sveitarstjórna við útgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs
Bréf frá Umhverfisstofnun varðandi upplýsingargjöf sveitastjórna við útgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs, lagt fram.
Málsnúmer 1801327
08
Fræðslu- og sögugöngur 2018
Umhverfisnefnd ásamt menningar- og safnanefnd skipulegga fræðslu- og sögugöngur fyrir sumarið 2018. Stefnt er á fyrstu göngu á degi umhverfis 25. apríl.
Málsnúmer 1802117
09
Hreinsunarátak 2018
Umhverfisnefnd leggur til að hreinsunarátakið og vorhreinsun lóða verði með sama sniði og undanfarin ár.