Fræðslu- og sögugöngur 2018
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
43. fundur
Unnið verður að skipulagi fræðslu og söguganga fyrir árið 2018.
Unnið er að skipulagningu í samstarfi við menningar- og safnanefnd. Fyrsta gangan mun verða 25. apríl á degi umhverfisnins.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
42. fundur
Umhverfisnefnd ásamt menningar- og safnanefnd skipulegga fræðslu- og sögugöngur fyrir sumarið 2018. Stefnt er á fyrstu göngu á degi umhverfis 25. apríl.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
28. fundur
Á liðnum árum hefur menningar- og safnanefnd staðið að sögugöngum í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar og einnig hafa verið fræðslugöngur í samstarfi við umhverfisnefnd Garðabæjar. Síðastliðið haust tók Garðabær þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur og tengdi þær við áframhaldandi sögugöngur bæjarins.
Lagt er til að áframhald verði á vel heppnuðum sögugöngum og upplýsingastjóra falið að skoða málið í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar og umhverfisnefnd.