28. fundur
28. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
26.01.2018
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1711209
01
Hofsstaðir - minjagarður - hugmyndahönnun
Hringur Hafsteinssson frá Gagarín mætir á fundinn.
Hringur Hafsteinsson frá Gagarín var gestur fundarins undir þessum lið. Hringur kynnti starfsemi fyrirtækisins og hugmyndafræði við vinnslu verkefna.
Hringur kynnti hugmyndir að sk. hönnunarfasa eða tillögu að 1. áfanga í að endurskoða margmiðlunarefni á Hofsstöðum og framsetningu þess með því að gera grein fyrir markmiðum verkefnisins, fara yfir mögulega frásagnarleið og heildarupplifun gesta. Hringi var þakkað fyrir greinargóða kynningu.
Umræður voru um málið. Menningar- og safnanefnd samþykkir að fela upplýsingastjóra að leita samninga við Gagarín um vinnslu á sk. hönnunarfasa eða tillögu að 1. áfanga vegna minjagarðsins á Hofsstöðum skv. fyrirliggjandi drögum.
Málsnúmer 1711210
02
Vetrarhátíð 2018 - safnanótt og sundlauganótt
Vetrarhátíð verður haldin dagana 1.-4. febrúar nk. með þátttöku safna og sundlauga frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Í Garðabæ verður dagskrá föstudagskvöldið 2. febrúar þegar verður opið hús í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi, Króki á Garðaholti og í forsetasetrinu á Bessastöðum. Að þessu sinni verður dagskrá í Álftaneslaug á föstudagskvöldinu 2. febrúar en ekki á laugardeginum vegna þorrablóts í íþróttahúsinu.
Dagskráin verður kynnt með dreifibréf í hús til íbúa og með auglýsingu í Garðapóstinum auk umfjöllunar á vefsíðu og fésbókarsíðu Garðabæjar og safnanna.
Málsnúmer 1801315
03
Jazzhátíð Garðabæjar 2018
Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin með upphaf að kvöldi til á Sumardaginn fyrsta, 19. apríl nk. Byrjað er að huga að dagskrá sem verður kynnt nánar á næsta fundi menningar- og safnanefndar. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er sem fyrr Sigurður Flosason tónlistarmaður.
Málsnúmer 1709092
04
Listadagar barna og ungmenna 2018
Listadagar barna og ungmenna verða haldnir síðustu vikuna í apríl eða frá 19.-29. apríl með þátttöku skóla á öllum skólastigum í bænum. Þema listadaganna í ár er Sköpunargleði. Á listadögunum er ætlunin að vekja athygli á því listræna starfi sem á sér stað innan skólanna en einnig að hvetja til nýrra verkefna á sviði lista og menningar.
Umræður voru um listadagana og rætt um mikilvægi þess að hafa listadagana sýnilega á ákveðnum stöðum í bænum þar sem hægt er að ganga að því sem vísu að sjá listsýningar á meðan á listadögunum stendur.
Málsnúmer 1801327
05
Fræðslu- og sögugöngur 2018
Á liðnum árum hefur menningar- og safnanefnd staðið að sögugöngum í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar og einnig hafa verið fræðslugöngur í samstarfi við umhverfisnefnd Garðabæjar. Síðastliðið haust tók Garðabær þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur og tengdi þær við áframhaldandi sögugöngur bæjarins.
Lagt er til að áframhald verði á vel heppnuðum sögugöngum og upplýsingastjóra falið að skoða málið í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar og umhverfisnefnd.
Málsnúmer 1801088
06
Beiðni um styrk vegna leiksýningar í FG vorið 2018
Erindi leikfélagsins Verðandi um styrk, dags. 7. janúar 2018, vegna leiksýningarinnar Pétur Pan í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ vorið 2018 var tekið fyrir.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið. Útfærsla á styrkveitingu verður skoðuð með það í huga að bjóða nemendum úr 10. bekk í Garðabæ frítt á sýninguna.
Málsnúmer 1801314
07
Styrkumsókn nemenda við Fata- og textílhönnunarbraut vorið 2018
Erindi kennara á fata- og textílhönnunarbraut Fjölbrautaskólans við Garðabæ, f.h. nemenda, dags. 15. janúar 2018, um styrk vegna lokasýningar nemenda var tekið fyrir.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita fjárstyrk að upphæð 100.000 kr til að standa straum af kostnaði við sýninguna. Nefndin mælist til þess að tískusýningin verði kynnt vel í Garðabæ.
Málsnúmer 1709093
08
Verkefni veturinn 2017-2018
Áframhaldandi umræður um listaverkasafn bæjarins.
Greint var frá fundi formanns og upplýsingastjóra með Hörpu Þórsdóttur, forstöðumanni Listasafns Íslands, sem var áður í forstöðu Hönnunarsafns Íslands, þar sem rætt var um með hvaða hætti væri hægt að endurbæta skráningu á listaverkum í eigu bæjarins samkvæmt umræðu nefndarinnar á síðasta fundi.
Upplýsingastjóra ásamt formanni var falið að vinna áfram að málinu og kynna á næsta fundi.
Málsnúmer 1710188
09
Íbúakönnun - þjónustukönnun 2017
Lögð var fram til kynningar þjónustukönnun Gallup þar sem viðhorf íbúa til þjónustu í 19 stærstu sveitarfélögum landsins er mælt. Farið var yfir helstu þætti könnunarinnar.