Listadagar barna og ungmenna 2018
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
30. fundur
Listadagar barna og ungmenna verða haldnir í áttunda sinn dagana 19.-29. apríl nk. Dagskráin verður kynnt með bæklingi sem verður dreift inn á heimili á sumardaginn fyrsta og á vef Garðabæjar. Mikil smiðjuvinna fer fram í leik- og grunnskólum í tilefni listadaganna auk þess sem lokasýningar nemenda við listnámsbrautir í FG eru á sama tíma. Greint var frá undirbúningi og helstu dagkráratriðum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
28. fundur
Listadagar barna og ungmenna verða haldnir síðustu vikuna í apríl eða frá 19.-29. apríl með þátttöku skóla á öllum skólastigum í bænum. Þema listadaganna í ár er Sköpunargleði. Á listadögunum er ætlunin að vekja athygli á því listræna starfi sem á sér stað innan skólanna en einnig að hvetja til nýrra verkefna á sviði lista og menningar.
Umræður voru um listadagana og rætt um mikilvægi þess að hafa listadagana sýnilega á ákveðnum stöðum í bænum þar sem hægt er að ganga að því sem vísu að sjá listsýningar á meðan á listadögunum stendur.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
25. fundur
Listadagar barna og ungmenna hafa verið haldnir í Garðabæ á tveggja ára fresti með þátttöku allra skóla í bænum.
Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá fyrirhuguðum undirbúningi vegna listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir vorið 2018, eða frá sumardeginum fyrsta til aprílloka.