Beint í efni

30. fundur

13.04.2018
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

30. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

13.04.2018

Kl. 08:15 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1801315

01

Jazzhátíð Garðabæjar 2018

Dagskrá lögð fram.

Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin dagana 19.-21. apríl nk. Dagskrá hátíðarinnar var lögð fram og sagt frá kynningu hátíðarinnar með dreifibréfi, fréttum og allir tónleikar verða kynntir á fésbókarsíðu hátíðarinnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1709092

02

Listadagar barna og ungmenna 2018

Listadagar barna og ungmenna verða haldnir í áttunda sinn dagana 19.-29. apríl nk. Dagskráin verður kynnt með bæklingi sem verður dreift inn á heimili á sumardaginn fyrsta og á vef Garðabæjar. Mikil smiðjuvinna fer fram í leik- og grunnskólum í tilefni listadaganna auk þess sem lokasýningar nemenda við listnámsbrautir í FG eru á sama tíma. Greint var frá undirbúningi og helstu dagkráratriðum.

Málsnúmer 1802204

03

Fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ

Greint frá opnum fundi sem var haldinn miðvikudaginn 11. apríl sl. og um vinnu starfshópsins.

Starfshópur um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ hefur fundað fjórum sinnum og formaður greindi frá vinnu starfshópsins. Starfshópurinn stóð að opnum fundi fyrir almenning um málefnið miðvikudaginn 11. apríl sl. í Flataskóla. Niðurstöður fundarins verða teknar saman með samantekt starfshópsins.

Umræður voru um hlutverk og starfssemi fjölnota menningar- og fræðamiðstöðvar í Garðabæ.

Málsnúmer 1804150

04

Menningaruppskeruhátíð Garðabæjar 2018

Farið yfir undirbúning vegna menningaruppskeruhátíðar 16. maí nk.

Stefnt er að því að halda hina árlegu menningaruppskeruhátíð Garðabæjar miðvikudaginn 16. maí nk. í samkomuhúsinu á Garðaholti. Á menningaruppskeruhátíðinni verður tilkynnt um val á bæjarlistamanni Garðabæjar og úthlutað úr Hvatningarsjóði ungra listamanna. Umræður voru um heiðursviðurkenningar til framlags menningar og lista og þeirri umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.

Málsnúmer 1803150

05

Hvatningarsjóður ungra listamanna 2018

Umsóknir lagðar fram.

Umsóknir um Hvatningarsjóð ungra listamanna voru lagðar fram og ræddar. Samþykkt var að veita eftirtöldum aðilum styrk úr Hvatningarsjóði ungra listamanna 2018:

Sindri Engilbertsson, kt. 141295-2769, og Eyrún Engilbertsdóttir, kr. 010793-2629, styrk að upphæð 150 000 kr vegna ljósainnsetningarverkefnis.

Magnús Stephensen, kt. 040403-2480, styrk að upphæð 150 000 kr, vegna tónlistarverkefnis.

Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, kt. 150499-2919, styrk að upphæð 150 000 kr vegna tónlistarverkefnis.

Alexandra Rós Norðkvist, kt. 101299-2449, og Salóme Sól Norðkvist, kt. 220598-2339, styrk að upphæð 150 000 kr vegna tónlistarverkefnis.

Viðurkenningar fyrir úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna verða afhentar á menningaruppskeruhátíðinni í maí.

Málsnúmer 1803149

06

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2018

Ábendingar lagðar fram.

Auglýst var eftir ábendingum um tilnefningu til bæjarlistamanns Garðabæjar 2018 í mars og apríl. Listi með framkomnum ábendingum var lagður fram og ræddur. Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.

Málsnúmer 1804166

07

Kvennakór Garðabæjar - styrkumsókn vegna kóramóts og námskeiðs

Erindi Kvennakórs Garðabæjar, dags. 8. apríl 2018, um styrk vegna þátttöku í kóramóti og námskeiði var tekið fyrir.

Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið og mælir með því að kórinn fái styrk til fararinnar en vísar ákvörðun um afgreiðslu og upphæð til bæjarráðs.

Fylgiskjöl