Beint í efni

Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um val á bæjarlistamanni Garðabæjar 2018.

Málsnúmer 1803149

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

16. (1831). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2018. Tilnefningin verður tilkynnt á menningaruppskeruhátíð miðvikudaginn 16. maí nk. kl. 17:30 í samkomuhúsinu á Garðaholti.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

31. fundur

Áframhald umræðu frá síðasta fundi.

Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að einn listamaður verði útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar í ár. Nefndin leggur til að útnefningin á bæjarlistamanni Garðabæjar verði tilkynnt með formlegum hætti á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar 16. maí nk. og fer þess jafnframt á leit við alla þá sem að málinu koma að nafni viðkomandi listamanns verði haldið leyndu þangað til.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

30. fundur

Ábendingar lagðar fram.

Auglýst var eftir ábendingum um tilnefningu til bæjarlistamanns Garðabæjar 2018 í mars og apríl. Listi með framkomnum ábendingum var lagður fram og ræddur. Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

29. fundur

Farið var yfir reglur vegna útnefningar bæjarlistamanns og drög að auglýsingu. Auglýsingin verður birt á vef Garðabæjar og í Garðapóstinum auk þess sem hún verður send til helstu ýmissa samtaka og hagsmunaaðila listamanna. Ábendingum um bæjarlistamenn skal skilað inn fyrir 4. apríl nk.
Tilkynnt verður um val á bæjarlistamanni á menningaruppskeruhátíð í vor.