16. (1831). fundur
16. (1831). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
08.05.2018
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um úthlutun framlaga Jöfnunarsjóðs árið 2018, dags. 30.04.18.
03
Erindi IOGT í tilefni af afgreiðslu á erindi um rekstur vínbúðar að Litlatúni, dags. 30.04.18.
Lagt fram erindi ásamt umsögn IOGT í tilefni af frumvarpi um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak.
Fylgiskjöl
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar um deiliskipulag austurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts.
Fylgiskjöl
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, Vífilsstaðaland-rammahluti.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gerðar rammahluta aðalskipulags fyrir Vífilstaðaland og Hnoðarholt þar sem lýst er þróun nýrrar byggðar og einstaka deiliskipulagsáföngum, sbr. 4. mgr. 28. gr. skipulagslaga.
Fylgiskjöl
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar vegna staðsetningu íþróttamannvirkja.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hliðs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna færslu byggingarreitar.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis en sótt er um stækkun byggingarreits vegna byggingar sólskála við íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsinu við Arnarás 19.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun húss að Engimýri 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Engimýri 7. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
10
Bréf Fólksins í bænum um styrk til öldrunarmála, dags. 03.05.18.
Lagt fram bréf Fólksins í bænum þar sem fram kemur að samtökin leggi niður störf félagsins og ánafna eignum sínum að fjárhæð kr. 1.200.000 til öldrunarmála í Garðabæ.
Fylgiskjöl
11
Bréf Fólksins í bænum um upplýsingar vegna hækkunar á tilboðsfjárhæðum samkvæmt útboði og samningum Strætó bs. um akstursþjónustu, dags. 03.05.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útvega umbeðin gögn og upplýsingar hjá Strætó bs.
Fylgiskjöl
12
Tillaga bæjarfulltrúa AG og SHJ um að settar verði vinnureglur um íbúasamráð.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að hlutast til um að semja drög að vinnureglum sem lagðar skulu fram í bæjarráði.
Fylgiskjöl
13
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um val á bæjarlistamanni Garðabæjar 2018.
Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2018. Tilnefningin verður tilkynnt á menningaruppskeruhátíð miðvikudaginn 16. maí nk. kl. 17:30 í samkomuhúsinu á Garðaholti.
14
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um úthlutun styrkja úr hvatningarsjóði ungra listamanna árið 2018.
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita eftirfarandi styrki úr Hvatningarsjóði ungra listamanna.
Sindri Engilbertsson og Eyrún Engilbertsdóttir kr. 150.000
Magnús Stephensen kr. 150.000
Sigríður Óska Hrafnkelsdóttir kr. 150.000
Alexandar Rós Norðkvist og Salóme Sól Norðkvist kr. 150.000
15
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um stefnumarkandi landsáætlun 2018-2029, 479. mál., dags. 20.04.18.
Lagt fram.
16
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða, 425. mál., dags. 20.04.18.
Lagt fram.
17
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum (EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.), 467. mál., dags. 20.04.18.
Lagt fram.
18
Bréf Sorpu bs. um skýrslu PWC um góða stjórnarhætti, dags. 17.04.18.
19
Bréf Guðbjargar Ólafsdóttur um rekstrarleyfi fyrir gistiaðstöðu að Bólstað, dags. 23.04.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umsagnar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
20
Samkomulag við Félag eldri borgara á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir samkomulag við Félag eldri borgara á Álftanesi.
Fylgiskjöl
21
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað (flokkur II) að Strandvegi 13.
Bæjarráð telur ekki vera fyrir hendi skilyrði til að veita leyfi til reksturs gistiheimilis að Strandvegi 13 þar sem starfsemi gistiheimilis er ekki í samræmi við skipulagsskilmála er gilda um íbúðabyggð á Sjálandi.
22
Fyrirspurn Bjartrar framtíðar um framkvæmdir við fjölnota sal, dags. 26.04.18.
Lögð voru fram drög að svari sem er í vinnslu.
Fylgiskjöl
23
Greinargerð starfshóps um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ, dags í apríl 2018.
24
Bréf Hestamannafélagsins Spretts um framkvæmdaleyfi fyrir reiðvegi um Grunnuvatnaskarð og Grunnuvötn, dags. 27.04.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar og meðferðar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
25
Opnun tilboða í framkvæmdir við viðbyggingu Álftanesskóla.
Eftirfarandi tilboð voru lögð fram.
Eykt, ehf. kr. 865.932.549 þar af reikningsvinna kr. 39.990.000
Munck á Íslandi, ehf. kr. 835.188.771 þar af reikningsvinna kr. 40.267.040
Flotgólf, ehf. kr. 930.528.996 þar af reikningsvinna kr. 35.855.030
Jáverk, ehf. kr. 783.192.000 þar af reikningsvinna kr. 91.750
Kostnaðaráætlun kr. 768.583.629 þar af reikningsvinna kr. 37.270.000
26
Íþróttaaðstaða fyrir GKG
Bæjarstjóri kynnti umræðu í sameiginlegum samráðshópi Garðabæjar og GKG um mögulegar breytinga á aðstöðu á golfsvæði GKG vegna byggingar fjölnota íþróttahúss og breytinga á skipulagi svæðisins.