Arnarás 19 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (830). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis en sótt er um stækkun byggingarreits vegna byggingar sólskála við íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsinu við Arnarás 19.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (1831). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis en sótt er um stækkun byggingarreits vegna byggingar sólskála við íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsinu við Arnarás 19.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Sólskáli fer út fyrir byggingarreit.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir stækkun bygginarreits fyrir 24,6 fermetra sólskála út frá íbúð 0102 á jarðhæð.
Skipulagsnefnd hafnar tillögunni þar sem að það er mat nefndarinnar að hún skerði útlit fjölbýlishússins og sé fordæmisgefandi fyrir sambærilegar tillögur í fjölbýlishúsum í hverfinu.