Bólstaður - Umsókn um rekstrarleyfi
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
9. fundur
Lögð fram umsókn um rekstrarleyfi fyrir gistiaðstöðu við einbýlishúsið að Bólstað. Bæjarráð óskar eftir umsögn skipulagsnefndar um umsóknina.
"Samkvæmt Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem tók gildi í síðasta mánuði er Bólstaður innan þróunarsvæðis A sem nær til umhverfis Hafnarfjarðaravegar frá Lyngási að Vífilsstaðavegi og til athafnasvæðis við Lyngás. Samkvæmt samþykktu rammaskipulagi Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar verður Bólstaður staðsettur við stórbyggingar sem liggja að Hafnarfjarðarvegi sem verður miðsvæði. Lega hússins er því hagstæð bæði ef litið er til núverandi ástands (miðlæg lega nálægð við stoppstöð flugrútu)og framtíðarsýnar sveitarfélagsins. Skipulagsnefnd er því jákvæð gagnvart umsókninni en mælir með því að tryggt verði að næg bílastæði séu innan lóðar fyrir gistiþjónustuna. Skipulagsnefnd mælir með því að umsóknin verði grenndarkynnt eigendum og íbúum aðliggjandi húsa. Þau hús eru Marargrund 12,14,16 og 18 sem og Hella og Mörk"
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
8. fundur
Á fundi bæjarráðs þann 8. maí var erindi Guðbjargar Ólafsdóttur um rekstrarleyfi fyrir gistiaðstöðu að Bólstað, dags. 23.04.2018, tekið fyrir og vísað til umsagnar skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
05
16. (1831). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umsagnar skipulagsnefndar.