23. (1838). fundur
23. (1838). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
03.07.2018
Kl. 08:00 - 08:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Brekkugata 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830 leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni að Brekkugötu 4.
02
Brekkugata 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830 leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni að Brekkugötu 6.
03
Brekkugata 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830 leyfi til að byggja raðhús á lóðinni að Brekkugötu 16.
04
Brekkugata 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830 leyfi til að byggja raðhús á lóðinni að Brekkugötu 18.
05
Brekkugata 20 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830 leyfi til að byggja raðhús á lóðinni að Brekkugötu 20.
06
Dýjagata 14 (áður Dýjagata 16) - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Björgu Jónsdóttur, kt. 081054-5179 leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni að Dýjagötu 16.
07
Haustakur 1- Afturköllun umsóknar um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afturköllun umsóknar um byggingarleyfi og fellir álögð gjöld niður.
08
Sjónarvegur 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita H.S.H. byggingameisturum ehf., kt. 681096-2059 leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Sjónarvegi 2.
09
Sjónarvegur 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita H.S.H. byggingameisturum ehf., kt. 681096-2059, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Sjónarvegi 4.
10
Vinastræti 12-14 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG íbúðum, kt. 600115-0220 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 18 íbúðum á lóðinni að Vinastræti 12-14.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Bessastaða.
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingu reiðskemmu á félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna reiðskemmu á félagssvæði Sóta verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar um umsókn um breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa að Blátúni 5 um breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis á Álftanesi þar sem farið er fram á að breyta notkun bílskúrs.
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frágang gagna vegna nýs deiliskipulags Arnarness.
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Smiðsbúðar og Iðnbúðar.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar í tilefni umsóknar lóðarhafa að Smiðsbúð 6 um stækkun byggingarreits 2, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi bæjargarðs samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, þar sem gert verður ráð fyrir sex ljósamöstrum allt að 9,15 metra háum við nýjan gervigrasvöll í bæjargarði.
Fylgiskjöl
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stofnstígs í Garðahrauni efra sunnan Flata.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lagningu stofnstígs í Garðahrauni efra frá núverandi stíg að Bæjargarði. Lagning stígsins er í samræmi við skipulagsskilmála með óverulegum tilfærslum til að hann liggi sem best í landinu.
Sækja skal um leyfi Umhverfisstofnunar vegna framkvæmda í friðlýstu landi sbr. ákvæði náttúrverndarlaga nr. 60/2013.
Fylgiskjöl
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Silfurtúns í tilefni umsóknar lóðarhafa að Goðatúni 19 um stækkun byggingareits, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa um breytingu á hámarkshæð samkvæmt skilmálum.
19
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um heimild fyrir gistiaðstöðu að Bólstað.
Lögð fram.
20
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts.
Lögð fram.
21
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, Sundahöfn.
Lögð fram.
22
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, KR-svæði.
Lögð fram.
23
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, Sjómannaskólareitur og Veðurstofuhæð.
Lögð fram.
24
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, iðnaður og önnur landfrek starfsemi.
Lögð fram.
25
Samningur um götugögn (strætóskýli)
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti enda hefur verið gert ráð fyrir kostnaðarþátttöku AFA JCDECAUX vegna breytinga í tengslum við færslu strætóskýla með tilkoma borgarlínu.
Fylgiskjöl
26
Samkomulag um matslýsingu vegna mats á landi Kirkjubrúar.
Bæjarráð samþykkir matslýsingu vegna mats á landi Kirkjubrúar en lýsingunni kemur fram að hvorugur aðili er bundinn af niðurstöðu matsins.
Fylgiskjöl
27
Útboð - Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í Garðabæ 2018-2021.
Við opnun tilboða sem fór fram þriðjudaginn 26. júní sl. voru lögð fram eftirfarandi tilboð.
Hreinsitækni ehf. kr. 42.474.000
Íslenska Gámafélagið kr. 67.500.000
Kostnaðaráætlun kr. 39.900.000
Fyrir liggur að röng dagsetning var tilgreind í auglýsingu útboðsins hvað varðar tímasetningu á opnun tilboða í en þar kom fram að opnum færi fram 16. júní en ekki 26. júní eins og tilgreint var í útboðsgögnum.
Bæjarráð samþykkir með vísan til ágalla í auglýsingu, og að öðru leyti við framkvæmd útboðsins, að hafna öllum tilboðum og auglýsa útboðið að nýju.
Bjóðendum skal tilkynnt um ágalla við framkvæmd uppboðsins og þeir upplýstir um að útboðið verði auglýst að nýju. Jafnframt skulu þeir hvattir til að senda inn tilboð í kjölfar nýrrar auglýsingar.
Fylgiskjöl
28
Tilkynning samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi ný lög um lögheimili, dags. 29.06.18.
Lögð fram.
29
Minnisblað Sambands íslenkra sveitarfélaga um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda ársins 2019 og fjárhagsáætlana þriggja ára, dags. 29.06.18.
30
Bréf íbúa í Kjarrmóum varðandi hugmynd um að gera götuna að vistgötu, dags. 28.06.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og tækni- og umhverfisviðs.
Fylgiskjöl
31
Bréf Urriðaholts varðandi umsókn um leyfi til landmótunar lóða í austurhluta Urriðaholts, dags. 25.06.18.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að hafnar verði jarðvegsframkvæmdir og landmótun á lóðum í austurhluta Urriðaholts og vísar í því sambandi til 2. mgr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 ásamt því að benda á að framkvæmdin er í samræmi við skilmála aðalskipulags Garðabæjar og rammaskipulags um uppbyggingu í Urriðaholti.