Beint í efni

Suðurnesvegur 1 - Reiðskemma Sóta - skipulagsmál

Málsnúmer 1802322

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (847). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samning við Hestamannafélagið Sóta um styrk til byggingar reiðskemmu á svæði félagsins.

Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

02

14. (1875). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Hestamannafélagið Sóta um styrk til byggingar reiðskemmu á svæði félagsins.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

16. (838). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna reiðskemmu Sóta. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust athugasemdir um hæð hússins og litaval. Tilkynna skal þeim sem gerðu athugasemdir um niðurstöðu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

04

40. (1855). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna reiðskemmu Sóta. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust athugasemdir um hæð hússins og litaval. Tilkynna skal þeim sem gerðu athugasemdir um niðurstöðu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

13. fundur

Lögð fram tillaga að reiðskemmu hestamannafélagsins Sóta að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsóknar ásamt athugasemdum sem borist hafa. Lögð fram greinargerð hestamannafélagsins þar sem brugðist er við innsendum athugasemdum.
Það er mat tækni-og umhverfissviðs að ekki sé skynsamlegt að lækka bygginguna í landi vegna vatnsstöðu á svæðinu.
Skipulagsnefnd leggur til að við veitingu byggingarleyfis verði sett það skilyrði að litir reiðskemmunnar sé í skala jarðlita og að jarðvegsmótun umhverfis bygginguna dragi úr sjónrænum áhrifum byggingarinnar.
Að uppfylltum ofan greindum atriðum gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sbr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Baldur Ó. Svavarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

12. fundur

Lögð fram tillaga að reiðskemmu Sóta að lokinni grenndarkynningu. Tvær athugasemdir hafa borist.
Tillögunni vísað til skoðunar hjá Tækni-og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

10. (832). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

08

23. (1838). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna reiðskemmu á félagssvæði Sóta verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

9. fundur

Lögð fram að nýju tillaga að reiðskemmu á hesthúsasvæði Sóta á Álftanesi. Gert er grein fyrir fundi með tengiliðum Sóta.
Skipulagsnefnd vísar erindinu í grenndarkynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal eigendum í Asparholti 1-14 (sléttar tölur), Lyngholti 6, 8, 10, 15, 17, 19, 13 og 11, Suðurnesvegur 1, 2, 3, 4, 5, og 6, Bakkarvegur og Mýrarkot 6.
Skipulagsnefnd mælir með því að gerðar verði skýringarmyndir í þrívídd sem að skýra tillöguna betur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

6. fundur

Lögð fram ný útfærsla á reiðskemmu Sóta. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

5. fundur

Lögð fram tillaga að reiðskemmu á hesthúsasvæði Sóta á Álftanesi. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.