Beint í efni

5. fundur

09.03.2018
Skipulagsnefnd Garðabæjar

5. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

09.03.2018

Kl. 08:00 - 10:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Birgir Örn Birgisson - varamaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1703045

01

Deiliskipulag áfanga 1-4 í austurhluta Urriðaholts

Skipulagsráðgjafar og fulltrúi Urriðaholts ehf kynntu tillögu að deiliskipulagi Austurhluta Urriðaholts 1.-4.áfanga. Eftirfarandi mættu til fundarins: Jón Pálmi Guðmundsson Urriðaholti ehf, Þráinn Hauksson Landslagi ehf, Hrafnhildur Brynjólfsdóttir Alta ehf og Egill Guðmundsson Arkís ehf.

Tillagan gerir ráð fyrir íbúðarbyggð í góðu samræmi við rammaskipulag Urriðaholts. Gert verður ráð fyrir 495 íbúðareiningum sem skiptast í 416 einingar í fjölbýli, 50 einingar í raðhúsum, 22 einingar í parhúsum og 7 í einbýlishúsum.

Þegar Austurhluti er talinn með þá verða íbúðir í Urriðaholti orðnar 1579 og eru þá íbúðarsvæði fullbyggð. Þó getur verið að eitthvað að íbúðum verði inni á athafnasvæðinu norðan Urriðaholtsstrætis en það svæði hefur ekki verið deiliskipulagt.

Skipulagsnefnd vísar tillögu til forkynningar í samræmi við 3.mgr. 40.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 . Halda skal almennan kynningarfund á meðan forkynningu stendur.

Málsnúmer 1802150

02

Víkurgata 11 - DSK breyting - fyrirspurn

Lögð fram fyrirspun lóðarhafa um það hvort heimilað verði að sækja um leyfi fyrir einfaldrara bílageymslu í stað tvöfaldar. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf sem er jákvæð gagnvart fyrirspurninni. Með vísan í umsögn skipulagshöfundar og 3.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 hvað umrætt atriði varðar. Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1802154

03

Keldugata 1 - byggingarreitur

Frestað þar til útskýring og umsögn deiliskipulagshöfundar liggur fyrir.

Málsnúmer 1801385

04

Kinnargata 27 - Ósk um dsk breytingu

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Vesturhluta sem gerir m.a. gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 6 í 7. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf um tillöguna. Í umsögn eru lagðar til útfærslur um lagfæringu tillögunnar. Breytingartillögunni með þeim breytingum sem lagðar eru til í umsögn er vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 . Skipulagsnefnd mælir með því að skipulagshöfundur gangi frá breytingarupprætti áður en tillagan er auglýst. Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1711043

05

Urriðaholtsstræti 34 - umsókn um fjölgun íbúða

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 sem gerir m.a. ráð fyrir fjölgun íbúða úr 12 í 15. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf þar sem gerðar eru tillögur að lagfæringu á tillögunni. Breytingartillögunni með þeim breytingum sem lagðar eru til í umsögn er vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 . Skipulagsnefnd mælir með því að skipulagshöfundur gangi frá breytingarupprætti áður en tillagan er auglýst. Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1801191

06

Vinastræti 2-18, tilfærsla byggingarmagns

Tillaga að tilfærslu byggingarheimilda á lóð Vinastrætis 2-18 lögð fram að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Breytingin skoðast því samþykkt.

Málsnúmer 1709351

07

Álftanes-Miðsvæði. Deiliskipulag

Þórhallur Sigurðsson kynnti tillögu að deiliskipulagi Miðsvæðis á Álftanesi.

Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1803108

08

Norðurnes Álftaness, deiliskipulag

Lögð fram tillaga sem Landslag ehf hefur unnið að verkefnislýsingu fyrir deiliskipulag Norðurness Álftaness og matslýsingu fyrir umhverfismat deiliskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykktir lýsinguna í samræmi við 1.mgr. 40 gr Skipulagslaga nr. 123/2010 og matslýsinguna í samræmi við lög um umhverfismat áætlana .

Málsnúmer 1704011

09

Holtstún - deiliskipulag

Lögð fram ný tillaga að deiliskipulagi Holttúns þar sem gert er ráð fyrir 4 íbúðareiningum í 2 parhúsum á milli Stekkjar og Asparvíkur og 6 íbúðareiningum við Evindarholt í einu parhúsi og raðhúslengju. Þráinn Hauksson hjá Landslagi vinnur að gerð deiliskipulagsins og kynnti hann tillöguna.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.greinar Skipulagslaga nr.123/2010. Fallið er frá gerð lýsingar og forkynningar þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi sbr. 2.og3.mgr. 40.greinar sömu laga.

Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1802322

10

Reiðskemma Sóta

Lögð fram tillaga að reiðskemmu á hesthúsasvæði Sóta á Álftanesi. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.

Málsnúmer 1801202

11

Haukanes 12 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir breytingum innanhúss og á hurðum og gluggum að Haukanesi 12. Ekkert deiliskipulag er í gildi í Arnarnesi. Fallið er frá grenndarkynningu þar sem að tillagan varðar ekki aðra aðila en umsækjanda og Garðabæ sbr.s.mgr. 44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1801229

12

Garðprýði 7- Umsókn um byggingarleyfi

Bygging fer út fyrir byggingarreit á 3 stöðum.

Lögð fram byggingarleyfisumsókn af byggingu sem fer lítillega út fyrir byggingarreit. Með vísan í 3.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 hvað umrædd atriði varðar.

Málsnúmer 1802014F

13

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 1

Lögð fram. Engar athugasemdir.