Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
17. (1832). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um fjölgun íbúða við Kinnargötu 27 úr 6 í 7 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 796.995 á íbúð m.v. BVT 688,4 í maí 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
8. fundur
Lögð fram að nýju auglýsing um tillögu að breytingu á deiliskipulagi þar sem m.a. er óskað eftir að fjölga íbúðum úr sex í sjö. Á fundi skipulagnefndar 9. mars var samþykkt með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa breytingartillöguna. Samþykktin var staðfest í bæjarstjórn 15. mars 2018. Auglýsingin stóð frá 26.mars til 7. maí. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 sbr. 1.mgr.43.gr.skipulagslaga.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
5. (827). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 27 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 6 í 7.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 794.217 á íbúð m.v. BVT 686,0 stig í mars 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Bæjarráð Garðabæjar
04
10. (1825). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 27 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 6 í 7.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 794.217 á íbúð m.v. BVT 686,0 stig í mars 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Vesturhluta sem gerir m.a. gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 6 í 7. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf um tillöguna. Í umsögn eru lagðar til útfærslur um lagfæringu tillögunnar. Breytingartillögunni með þeim breytingum sem lagðar eru til í umsögn er vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 . Skipulagsnefnd mælir með því að skipulagshöfundur gangi frá breytingarupprætti áður en tillagan er auglýst. Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
3. fundur
Tillaga að breyttu deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir að fjölga íbúðum úr 6 í 7. Bílastæðum fjölgar úr 12 í 13 st. Gólfkóti beggja álma verður hinn sami og í stað 3-4 hæða byggingar verður heimiluð 4 hæða bygging auk annarra atriða í skilmálum.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa og Urriðaholts ehf.
Guðrún Dóra Brynjólfdóttir vék af fundi undir þessum lið.