3. fundur
3. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
08.02.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1709351
01
Álftanes-Miðsvæði. Deiliskipulag
Þórhallur Sigurðsson arkitekt hjá Arkitektastofunni Andersen & Sigurdsson í Friðriksbergi kynnti tillögur að deiliskipulagi miðsvæðis Álftaness.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá deiliskipulagshöfundi og tækni-og umhverfissviði.
Lögð fram verkefnislýsing að deiliskipulaggerð miðsvæðis á Álftanesi. Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna.
Málsnúmer 1302243
02
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags 5.janúar 2018 ásamt tillögum aðalskipulagsráðgjafa að viðbrögðum við þeim ábendingum og athugasemdum sem fram koma í erindinum.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögurnar og felur skipulagsstjóra og aðalskipulagsráðgjöfum að ganga frá aðalskipulagi með þeim leiðréttingum og lagfæringum sem tillögurnar gera ráð fyrir. Senda skal Skipulagsstofnun aðalskipulagið og óska eftir því að stofnunin staðfesti aðalskipulagið.
Málsnúmer 1707058
03
Hraunprýði 12- Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðanna Hraunprýði 6,8,10 og 12. Tillagan gerir ráð fyrir því að unnt verður að breyta bílskýli í lokaða bílageymslu. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal öllum íbúum í Hraunprýði.
Málsnúmer 1711185
04
Hegranes 28 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsið að Hegranesi 28. Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi í Arnarnesi. Grenndarkynna skal íbúum og eigendum Hegraness 26, 29, 30, 33 og 35.
Málsnúmer 1801385
05
Kinnargata 27 - Ósk um dsk breytingu
Tillaga að breyttu deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir að fjölga íbúðum úr 6 í 7. Bílastæðum fjölgar úr 12 í 13 st. Gólfkóti beggja álma verður hinn sami og í stað 3-4 hæða byggingar verður heimiluð 4 hæða bygging auk annarra atriða í skilmálum.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa og Urriðaholts ehf.
Guðrún Dóra Brynjólfdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 1710188
06
Íbúakönnun - þjónustukönnun 2017
Lagt fram
Málsnúmer 1801253
07
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, miðborgin
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Málsnúmer 1801265
08
Breyting á ASK Hafnarfjarðar 2013-2025 - Breytt lega Ásvallabrautar og teng. við Kaldárselsveg
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við lýsinguna en óskar eftir því að tillagan verði kynnt fyrir nefndinni þegar henni verður vísað til forkynningar. Gera þarf grein fyrir áhrifum umferðarflæðis á svæðinu m.t.t. áhrifa á "Ofanbyggðarveg" og stofnbrautakerfi.