Hegranes 28 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
03
25. (1840). fundur
Bæjarráð samþykkir afturköllun umsóknar um byggingarleyfi og eru álögð gjöld felld niður.
Bæjarráð Garðabæjar
04
22. (1837). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigrúnu Gísladóttur, kt. 10668-3199, leyfi fyrir breytingu á innra skipulagi núverandi einbýlishúss að Hegranesi 28.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
7. (829). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Hegranes 28. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Bæjarráð Garðabæjar
06
14. (1829). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Hegranes 28. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
6. fundur
Grenndarkynningu lýkur 19. mars
Umsókn um byggingarleyfi lögð fram að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.grein Skipulagslaga nr.123/2010. Engar athugasemir hafa verið gerðar við umsóknina. Skipulagsnefnd gerir ekki athugsemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
3. (825). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Hegranes 28 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag fyrir svæðið.
Bæjarráð Garðabæjar
09
6. (1821). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Hegranes 28 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag fyrir svæðið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
3. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsið að Hegranesi 28. Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi í Arnarnesi. Grenndarkynna skal íbúum og eigendum Hegraness 26, 29, 30, 33 og 35.