25. (1840). fundur
25. (1840). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
17.07.2018
Kl. 08:00 - 09.00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1803133
01
Brekkugata 22 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Brekkugötu 22.
Málsnúmer 1803139
02
Brekkugata 24 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Brekkugötu 24.
Málsnúmer 1711185
03
Hegranes 28 - Afturköllun umsóknar um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afturköllun umsóknar um byggingarleyfi og eru álögð gjöld felld niður.
Málsnúmer 1712159
04
Hraungata 20 (áður 22) - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita SK30 ehf., kt. 561215-2510, leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni að Hraungötu 20.
Málsnúmer 1707200
05
Steinás 3 - Afturköllun umsóknar um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afturköllun umsóknar um byggingarleyfi og eru álögð gjöld felld niður.
Málsnúmer 1807114
06
Þórsmörk - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á móttöku reyndarteikninga sem sýna breytingar á innra skipulagi húsnæðis vegna starfsemi Alþjóðaskólans á Íslandi.
Málsnúmer 1806306
07
Afgreiðsla umhverfisnefndar og skipulagsnefndar varðandi breytingar á mörkum fólkvangs að Hliði á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir tillögu um breytingu á mörkum friðlýsts svæðis Hliðs á Álftanesi en svæðið var friðlýst sem fólkvangur með auglýsingu umhverfisráðherra nr. 549 frá 5. júlí 2002.
Bæjarráð samþykkir að fela skipulagsnefnd og umhverfisnefnd að vinna að gerð endanlegrar tillögu í samráði við umhverfisstofnun á grundvelli núgildandi laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1806475
08
Tillaga umhverfisnefndar um veitingu viðurkenninga fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2018.
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2018.
Málsnúmer 1807110
09
Bréf Alþjóðaskóla Íslands varðandi stöðuleyfi fyrir bráðabirgðahús, dags. 09.07.18.
Bæjarráð frestar afgreiðslu og vísar málinu til nánar skoðunar bæjarstjóra.
Málsnúmer 1806404
10
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stofnstígs í Garðahrauni efra sunnan Flata, dags. 12.07.18.
Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar þar sem fram kemur að stofnunin heimilar ekki að farið verði í framkvæmdir við lagningu stígsins að svo stöddu þar sem deiliskipulag fyrir allt Garðahraun liggur ekki fyrir.
Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1807113
11
Bréf íbúa Urriðaholts varðandi GSM senda í Urriðaholti, dags. 10.07.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og tækni- og umhverfissviðs.
Bæjarráð bendir á að í deiliskipulagi Urriðaholts er gert ráð fyrir að ákveðnar lóðir verði nýttar fyrir fjarskiptastarfsemi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1803067
12
Framlög til stjórnmálasamtaka 2018 (síðari hluti).
Samkvæmt fjárhagsáætlun 2018 nemur framlag til stjórnmálaflokka kr. 3.500.000.
Á fyrri hluta ársins kom til greiðslu framlags að fjárhæð kr. 1.604.167.
Bæjarráð samþykkir að á síðari hluta ársins komi til greiðslu framlag að fjárhæð kr. 1.895.833 sem skiptist með eftirfarandi hætti.
Sjálfstæðisfélag Garðabæjar kr. 1.212.796
Bæjarmálaafl Garðabæjar kr. 550.145
Miðflokkurinn kr. 132.892
Málsnúmer 1711138
13
Drög að persónuverndarstefnu Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir persónuverndarstefnu Garðabæjar til að gilda samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsingar.
Bæjarstjóri upplýsti að Eva Ósk Ármannsdóttir, skjalastjóri hefur verið tilnefnd til bráðabirgða sem persónufulltrúi Garðabæjar og verður tilkynning um tilnefninguna send Persónuvernd í samræmi við 7. tl. 37. gr. persónuverndarreglugerðarinnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801026
14
Bréf umboðsmanns Alþingis varðandi álit í tilefni af frumkvæðisathugun vegna húsnæðisvanda utangarðsfólks í Reykjavík, dags. 06.07.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar fjölskylduráðs.