Beint í efni

Hlið, breyting friðlýsingarmarka

Málsnúmer 1806306

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

6. fundur

Skipulagsstjóri kynnti stöðu mála og niðurstöður fundar Garðabæjar með Umhverfisstofnun.

Bæjarráð Garðabæjar

02

38. (1853). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir að fyrirhugaður er fundur með fulltrúum Umhverfisstofnunar 2. nóvember nk. til að ræða úrlausn málsins.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

10. (832). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

04

25. (1840). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um breytingu á mörkum friðlýsts svæðis Hliðs á Álftanesi en svæðið var friðlýst sem fólkvangur með auglýsingu umhverfisráðherra nr. 549 frá 5. júlí 2002.

Bæjarráð samþykkir að fela skipulagsnefnd og umhverfisnefnd að vinna að gerð endanlegrar tillögu í samráði við umhverfisstofnun á grundvelli núgildandi laga um náttúruvernd nr. 60/2013.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

1. fundur

Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri Garðabæjar kynnti tillögu að breyttum mörkum fólksvangs á Hliði.
Umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að friðlýsingarmörkum fólkvangsins verði breytt og felur tækni og umhverfissviði að vera í samstarfi við umhverfisstofnun varðandi það.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

9. fundur

Í kjölfar umsagna Umhverfisstofnunar um tillögu að breytingu á deiliskipulags Hliðs þar sem einnig voru gerðar athugasemdir við umgengni við uppbyggingu ferðaþjónustunnar leggur skipulasstjóri fram minnisblað þar sem gerð er tillag að viðbrögðum við þau atriði sem fram koma í umsögn dags 16.nóvember 2017. Skipulagsstjóri kynnti tillögu að breytingu fólkvangsmarka sem gerir ráð fyrir stækkun hans um 1,4 ha.
Tillögunni vísað til umfjöllunar umhverfisnefndar.