1. fundur
1. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
04.07.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Gunnar Hólmsteinn Ársælsson - varamaður
Starfsmenn
- Eva Ósk Ármannsdóttir - skjalastjóri
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1804130
01
Hnoðraholt og Vetrarmýri, dsk br v. fjölnota íþróttahúss
Þráinn Hauksson frá Landslagi kynnti deiliskipulagsbreytingar.
Málsnúmer 1807007
02
Djúpgámar
Kynning á djúpgámum
Friðrik K. Gunnarsson umhverfisverkfræðingur hjá Eflu kynnti djúpgáma og notkun þeirra.
Málsnúmer 1709351
03
Álftanes-Miðsvæði. Deiliskipulag
Sorp - djúpgámar
Við vinnslu deiliskipulags Álftanes er gert ráð fyrir djúpgámum. Umhverfisnefnd mælir með að sú lausn verði skoðuð nánar og að það sé gert ráð fyrir því í skipulaginu.
Málsnúmer 1806306
04
Hlið, breyting friðlýsingarmarka
Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri Garðabæjar kynnti tillögu að breyttum mörkum fólksvangs á Hliði.
Umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að friðlýsingarmörkum fólkvangsins verði breytt og felur tækni og umhverfissviði að vera í samstarfi við umhverfisstofnun varðandi það.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1806404
05
Stígur í Garðahrauni efra sunnan Flata
Lega fyrirhugaðs stígs í Garðahrauni efra var kynnt og leggur Umhverfisnefnd áherslu á að sem minnst rask verði á hrauninu og að stígurinn falli sem best að landslagi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1805303
06
Mengunarmælingar 2018
Niðurstöður mengunarmælinga sem fram fóru í maí voru lagðar fram.
Umhverfisnefnd leggur áherslu á áframhaldandi eftirfylgni og lekaleit.
Stöðug lekaleit hefur farið fram og mun tækni og umhverfisdeild í samráði við heilbrigðiseftirlitið fara í nánari rannsóknir á innstreymi í lækinn.
Einnig er mikilvægt að upplýsa íbúa um frárennslismál til að auka umhverfisvitund.
Málsnúmer 1805228
07
Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar Íslands 2017
Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar lögð fram.
Málsnúmer 1304702
08
Hundabann á varptíma
Framlenging hundabanns vegna seinkunar á varpi flórgoðans.
Framlenging hundabanns til 1. ágúst, vegna seinkunar á varpi flórgoðans.
Málsnúmer 1707017
09
Plastlaus september
Átakið Plastlaus september verður keyrt á svipuðum nótum og í fyrra og mun Garðabær styrkja verkefnið á sama hátt og þá.
Málsnúmer 1806475
10
Snyrtilegt umhverfi 2018
Umhverfisnefnd fer í garðaskoðun í næstu viku.