Beint í efni

Stígur í Garðahrauni efra sunnan Flata

Málsnúmer 1806404

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. (898). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu stígs í Garðahrauni. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 1806404)

Bæjarráð Garðabæjar

02

4. (2011). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu stígs í Garðahrauni. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs fyrir lagningu stofnstígs við norðurmörk deiliskipulagssvæðis í Molduhrauns. Umsókn er í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Skipulagsnefnd veitir framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem er í samræmi við framlögð gögn.

Bæjarráð Garðabæjar

04

25. (1983). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við lagningu stígs í Garðahrauni.

Stéttarfélagið ehf. kr. 82.830.000
Loftorka ehf. kr. 41.600.000
Ljósþing ehf. kr. 100.100.000
Stálborg ehf. kr. 62.756.500
Dráttarbílar ehf. kr. 79.425.771
Urð og grjót ehf. kr. 35.001.600
Bjössi ehf. kr. 55.500.000

Kostnaðaráætlun kr. 51.938.500

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Urðar og grjóts ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu útivistarstígs í Garðahrauni efra. Um er að ræða stíg milli Molduhrauns og Flata að Bæjargarði og einnig hliðarstíg frá þeim stíg við norðurmörk Molduhrauns að vegstæði fyrirhugaðs Álftanesvegar. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag Bæjargarðs og Garðahraun efra - fólkvangur.
Samkvæmt 10. gr. auglýsingar um stofnun fólkvangsins í Garðahrauni, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum í Garðabæ nr. 510/2014 þarf að liggja fyrir leyfi Umhverfisstofnunar til framkvæmda innan marka fólkvangsins. (Mál nr. 1806404)

Bæjarráð Garðabæjar

06

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu útivistarstígs í Garðahrauni efra. Um er að ræða stíg milli Molduhrauns og Flata að Bæjargarði og einnig hliðarstíg frá þeim stíg við norðurmörk Molduhrauns að vegstæði fyrirhugaðs Álftanesvegar. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag Bæjargarðs og Garðahraun efra - fólkvangur.

Samkvæmt 10. gr. auglýsingar um stofnun fólkvangsins í Garðahrauni, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum í Garðabæ nr. 510/2014 þarf að liggja fyrir leyfi Umhverfisstofnunar til framkvæmda innan marka fólkvangsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

4. fundur

Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs fyrir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu útivistarstígs(aðalstígs skv.deiliskipulagi) í Garðahrauni efra frá núverandi stíg milli Molduhrauns og Flata að Bæjargarði við Garðfit. Einnig fyrir hliðarstíg frá þeim stíg við norðurmörk Molduhrauns að vegstæði fyrirhugaðs Álftanesvegar.
Stígurinn er innan fólkvangsins í Garðahrauni efra og Bæjargarðs og á sér stoð í deiliskipulagsáætlunum fólkvangsins og bæjargarðsins.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir útivistarstíginn í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með fyrirvara um samþykki Umhverfisstofnunar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

10. (832). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

10. (832). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

10

25. (1840). fundur

Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar þar sem fram kemur að stofnunin heimilar ekki að farið verði í framkvæmdir við lagningu stígsins að svo stöddu þar sem deiliskipulag fyrir allt Garðahraun liggur ekki fyrir.

Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

11

1. fundur

Lega fyrirhugaðs stígs í Garðahrauni efra var kynnt og leggur Umhverfisnefnd áherslu á að sem minnst rask verði á hrauninu og að stígurinn falli sem best að landslagi.

Bæjarráð Garðabæjar

12

23. (1838). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lagningu stofnstígs í Garðahrauni efra frá núverandi stíg að Bæjargarði. Lagning stígsins er í samræmi við skipulagsskilmála með óverulegum tilfærslum til að hann liggi sem best í landinu.

Sækja skal um leyfi Umhverfisstofnunar vegna framkvæmda í friðlýstu landi sbr. ákvæði náttúrverndarlaga nr. 60/2013.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

9. fundur

Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings fyrir lagningu stofnstígs í Garðahrauni efra frá núverandi stíg að Bæjargarði. Hluti stígs er í samræmi við deiliskipulag Bæjargarðs og Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2039. Lögð fram tillaga Landlags ehf að óverulegri tilfærslu stígs í kjölfar vettvangsskoðunar þar sem fulltrúi Umhverfisstofnunar var með í för. Skipulagsnefnd heimilar veitingu framkvæmdaleyfis fyrir lagningu stígsins með fyrirvara um leyfi Umhverfisstofnunar.