4. (2011). fundur
4. (2011). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
01.02.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2201388
01
Kynning á erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samræmingu úrgangsflokkunar.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda kynnti niðurstöður verkefnahóps á vegum SSH um samræmt úrgangsflokkunarkerfi fyrir höfuðborgarsvæðið og áætlun um innleiðingaferli í sveitarfélögunum.
Umræða var um málið sem verður tekið fyrir að nýju á fundi bæjarráðs 15. febrúar nk. eftir umfjöllun í umhverfisnefnd.
Björg Fenger og Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúar voru á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Jón Kjartan Ágústsson, svæðisskipulagsstjóri, var á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrálið.
Málsnúmer 2109051
02
Búsetukjarni Brekkuási - hönnun og undirbúningur.
Deildarstjóri umhverfis og framkvæmda og sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerðu grein fyrir samantekt um undirbúning, samráð og hönnun búsetukjarna við Brekkuás. Fram kom að verið er að vinna að gerð byggingarnefndarteikninga þar sem gert er ráð fyrir að í búsetukjarnanum verði 7 íbúðir. Á grundvelli samþykktrar byggingarnefndarteikninga verður unnið að gerð útboðsgagna og stefnt er að útboð verði auglýst sem fyrst.
Umræða var um málið.
Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.
„Fyrir hönd Garðabæjarlistans fagna ég því að verið sé að ráðast í þessa uppbyggingu sem hefur verið á áætlun lengi og greinilegt að engu verður til sparað.
Hins vegar vek ég athygli á því að það er brýnt að rýna frekar þá þarfagreiningu sem liggur fyrir í víðtækara samráði en þegar hefur verið viðhaft.
Til þess að tryggja eins og kostur er framkvæmd þeirra ákvæða í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks til sjálfstæðrar búsetu.
Ég gagnrýni það vinnulag sem viðhaft hefur verið þar sem nú þegar liggja fyrir teikningar eftir þarfagreiningu sem ekki hefur fengið neina umfjöllun hvorki í bæjarráði né í samráðsnefnd fatlaðs fólks fyrr en undirrituð kallaði sérstaklega eftir upplýsingum um þá greiningu sem fram hefur farið. Enn frekar þykir mér það miður að umdeild ákvörðun um 7 íbúða kjarna hafi verið tekin án þessa mikilvæga samráðs.
Þess utan leggur samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks ríka áherslu á samráð við fatlað fólk sjálft og samtök fatlaðs fólks og því miður er ekki hægt að sjá þess merki í framlagðri þarfagreiningu að því hafi verið framfylgt.
Einnig er mikilvægt að hafa í huga að um varanleika húsnæðis er að ræða og mikilvægi þess að vanda vel til verka áður en farið er að setja fjármuni í uppbyggingu á húsnæði án þess samráðs sem sveitarfélaginu ber skylda til að framfylgja.“
Björg Fenger, bæjarfulltrúi var á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu um málið.
Málsnúmer 2201334
03
Húseiningar fyrir leikskóla í Urriðaholti.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um staðsetningu leikskóla sem byggður verður úr húseiningum á þjónustulóð á útvistarsvæði í Urriðaholti (Holtsvegur 22). Leitað verður verðtilboða í leigu á einingum sem reistar verða á lóðinni með lóðarréttindum.
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um að kanna möguleika á að leita til áhugasamra aðila um rekstur leikskólans.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór nánar yfir möguleika varðandi samstarfsaðila um rekstur leikskólans.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að koma að viðræðum um rekstur leikskólans.
Svanhildur Þengilsdóttir, vék af fundi kl. 09:00.
Málsnúmer 2003086
04
Lyngmóar 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Torfa Geir Símonarsyni, kt. 090589-2539, leyfi til að loka svölum og gera sólstofu í íbúð 0101 í fjölbýlishúsinu við Lyngmóa 3.
Málsnúmer 2105605
05
Ögurás 1-7 Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ögurási 1-7 - húsfélagi, kt. 571001-3220, leyfi til koma fyrir pöllum á neðri hæðum og svölum á eftir hæðum á suð-austurhlið fjölbýlishússins við Ögurás 1-7.
Málsnúmer 2110128
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 fyrir svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna almenningi samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis á Arnarneshálsi. (Svæði 3.37 VÞ)
Málsnúmer 2110129
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna deiliskipulags svæðis á norðanverðu Arnarneshálsi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna almenningi samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna mótunar tillögu að deiliskipulagi á norðanverðum Arnarneshálsi.
Málsnúmer 2110364
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Lindarflöt 44.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um að heimilað verði að stækka byggingarreit lóðarinnar við Lindarflöt 44. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Lindarflatar 41, 42, 43, 45 og 46 og Hagaflatar 8 og 10.
Málsnúmer 2110329
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar vegna lóðarinnar við Iðnbúð 6.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar vegna lóðarinnar við Iðnbúð 6. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2108423
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir að nýtingarhlutfall breytist úr 0,3 í 0,35. Vekja skal athygli á tillögunni með því að senda dreifibréf í öll hús í Silfurtúni.
Málsnúmer 2003384
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Aratún 36.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir bílskúr á lóðinni við Aratún 36. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Aratúns 19, 21, 23, 24, 34 og 38.
Málsnúmer 2112033
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðanna við Lyngás 7 og 9.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir m.a. ráð fyrir sameiningu lóðanna við Lyngás 7 og 9.
Málsnúmer 2105498
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna íbúðarbyggðar við Þorraholt.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna íbúðarbyggðar við Þorraholt. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda þegar fyrir liggur samningur við framkvæmdaaðila um uppbyggingu svæðisins.
Málsnúmer 2109351
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóða fyrir leikskóla og búsetukjarna.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóða fyrir leikskóla og búsetukjarna. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2110166
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis á norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefnda að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr. sömu laga breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 breytingu á reitum 5.04 Vþ, 5. 08 Vþ og 5.05 Íb.
Samhliða er er lagt til að auglýst verði breyting á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.
Sara Dögg Svanhildardóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins og leggur fram eftirfarandi bókun.
„Fyrir hönd Garðabæjarlistans kalla ég eftir frekari gögnum til að styðjast við ákvörðun á breytingu á skipulagi með þeim hætti að breyta atvinnusvæði í íbúabyggð á byggingarreit við Urriðaholtsstræti 9, eins og verið er að leggja hér til.
Það er gríðarlega mikilvægt að vita hver stefna Garðabæjar er í atvinnuuppbyggingu sveitarfélagsins.
Hér er verið að leggja fram tillögu að breytingu á uppbyggingu í hverfi sem er að vaxa með áherslu á þjónustu við íbúa hverfisins. Atvinnuuppbygging er farin að taka á sig mynd og hverfið stefnir í fyrirmyndar 15 mínútna hverfi sem gerir það heilsueflandi og framsækið. Að fjölga atvinnutækifærum með því að laða enn frekar til okkar öfluga starfsemi fjölbreyttra fyrirtækja gerir hverfið sjálfbærara og styrkir tekjustofna.
Til þess að geta tekið afstöðu til þessara áforma vantar öll gögn til styðja við forsendur þessara breytinga.
Til að mynda er skortur á hágæða skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og því kalla ég eftir frekari greiningu á stöðunni áður en tekin er ákvörðun um þessar breytingar á uppbyggingu byggingareitar við Urriðaholtsstræti 9.“
Málsnúmer 2105343
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að lóðin við Urriðaholtsstræti 9 breytist úr lóð fyrir verslun og þjónustu í lóð fyrir íbúðir fyrir 50 ára og eldri.
Samhliða er er lagt til að auglýst verði breyting á aðalskipulagi 2016 - 2030 vegna svæðis á norðurhluta Urriðaholts.
Sara Dögg Svanhildardóttir, situr hjá með vísan til bókunar undir 15. tl.
Málsnúmer 2108312
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Prýðahverfi, sunnan Garðahraunsvegar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Málsnúmer 1806404
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lagningu stígs í Garðahrauni.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu stígs í Garðahrauni. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Málsnúmer 1909084
19
Afgreiðska skipulagsnefndar varðandi nýtt leiðanet Strætó bs.
Lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 2201471
20
Gjaldskrá grunnskóla vegna stuðnings við nemendur með lögheimili utan Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána.
Málsnúmer 2107099
21
Umsókn um leyfi fyrir utanvegahlaup í upplandinu.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að veita leyfi fyrir hlaupinu og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
Málsnúmer 2201515
22
Bréf kærunefndar útboðsmála varðandi kæru Rafmagnsþjónustunnar ehf. á rammaútboði Garðabæjar - raflagnir, dags. 27.01.22.
Bæjarráð felur Andra Árnasyni, lögmanni að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2201465
23
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál, 20. mál, dags. 25.01.22.
Lagt fram.
Málsnúmer 2201496
24
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara, 12. mál., dags. 26.01.22.
Lagt fram.
Málsnúmer 2201529
25
Tillaga Garðabæjarlistans um skipan rýnihóps um framtíðarstarfsemi í fjölnota íþróttahúsi.
Lögð fram eftirfarandi tillaga.
„Í ljósi þess að nú styttist í afhendingu á fjölnota íþróttahúsi leggur Garðabæjarlistinn til að skipaður verði rýnihópur skipaður af fulltrúum meiri- og minnihluta ásamt íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa, fulltrúa ungmennaráðs og félags eldri borgara.
Hlutverk rýnihóps er að kalla eftir hugmyndum um starfsemi í húsinu og kappkosta að sem fjölbreyttust sjónarmið komi fram. Rýnihópurinn kalli eftir sjónarmiðum félagasamtaka ásamt öðrum sem tengjast íþrótta- og tómstundastarfi í bænum.“
Greinargerð.
Með tilkomu nýs fjölnota íþróttahúss skapast mikið rými fyrir fjölbreytta starfsemi íbúum til heilsubóta.
Því skiptir máli að hugað sé sérstaklega vel að því hvers konar starfsemi fær að njóta sín í slíku húsi. Huga þarf sérstaklega að fjölbreyttri starfsemi og ólíkum þörfum og getu til heilsueflandi iðkunar hvers konar sem styður lýðheilsu bæjarbúa að teknu tilliti til þeirra yngstu jafnt sem þeirra elstu.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til íþrótta- og tómstundaráðs.
Málsnúmer 2201110
26
Drög að framsalssamningi vegna úthlutunarréttar lóðar við Hestamýri á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning Húsbyggs ehf. og Hestamýrar ehf. um framsal lóðarréttinda vegna lóðarinnar við Hestamýri 1, 2 og 3, samkvæmt úthlutunasamningi um lóðir í Breiðumýri, dags. 14.ágúst 2020
Byggingarréttargjöld hafa verið að fullu greitt og við undirritun framsalssamnings kemur til greiðslu helmingur áætlaðra lágmarksgatnagerðargjalda kr. 107.949.232.