Beint í efni

Samræming úrgangsflokkunar - Bókun 535. fundar stjórnar SSH

Málsnúmer 2201388

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (899). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu samstarfshóps aðildarsveitarfélaganna um samræmda úrgangsflokkun á höfuðborgarsvæðinu og samþykkir yfirlýsingu um samstarf sveitarfélaganna vegna málsins. Bæjarstjóra falið fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita yfirlýsinguna.

Bæjarráð Garðabæjar

02

6. (2013). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu samstarfshóps aðildarsveitarfélaganna um samræmda úrgangsflokkun á höfuðborgarsvæðinu og samþykkir yfirlýsingu um samstarf sveitarfélaganna vegna málsins. Bæjarstjóra falið fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita yfirlýsinguna.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

41. fundur

Umhverfisnefnd samþykkir tillögur vinnuhóps sem lagðar eru fram í skýrslunni og telur samræming úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu mjög mikilvæga. Tímasett aðgerðaráætlun, áætlun um grenndarstöðvar og pöntun á ílátum er í fullum gangi og verður kynnt nánar á næsta fundi.

Bæjarráð Garðabæjar

04

4. (2011). fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda kynnti niðurstöður verkefnahóps á vegum SSH um samræmt úrgangsflokkunarkerfi fyrir höfuðborgarsvæðið og áætlun um innleiðingaferli í sveitarfélögunum.

Umræða var um málið sem verður tekið fyrir að nýju á fundi bæjarráðs 15. febrúar nk. eftir umfjöllun í umhverfisnefnd.

Björg Fenger og Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúar voru á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Jón Kjartan Ágústsson, svæðisskipulagsstjóri, var á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrálið.

Bæjarráð Garðabæjar

05

3. (2010). fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umfjöllunar umhverfisnefndar. Bæjarráð samþykkir að fara fram á kynningu svæðisskipulagsstjóra á málinu á fundi bæjarráðs 1. febrúar nk.

Fylgiskjöl