Beint í efni

3. (2010). fundur

25.01.2022
Bæjarráð Garðabæjar

3. (2010). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

25.01.2022

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2201107

01

Brekkubyggð 33 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Marvin Pálssyni, leyfi til að gera útlitsbreytingar og færslu á burðarsúlu íbúðar í fjölbýlishúsi að Brekkubyggð 33.

Málsnúmer 2201266

02

Framlög til stjórnmálaflokka 2022

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu á greiðslu til stjórnmálasamtaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2022.

Sjálfstæðisflokkur kr. 932.920

Garðabæjarlistinn kr. 423.189

Miðflokkur kr. 102.224

Samtals: kr. 1.458.333

Fyrir liggja gögn til staðfestingar á að ofangreind stjórnmálasamtök hafa sinnt upplýsingaskyldu sinni gagnvart Ríkisendurskoðun samkvæmt 5. gr. a. laga nr. 162/2006 um starfsemi stjórnmálasamtaka.

Málsnúmer 2102515

03

Tillaga um útboð á skólamat.

Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar um að farið verði í útboð á skólamat fyrir skólana í bænum og felur bæjarstjóra að vinna að útboðslýsingu sem lögð verður fram til samþykktar í bæjarráði.

Málsnúmer 2102111

04

Víðiholt íbúðabyggð. Kynningarfundur með íbúum.

Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 20. janúar sl. var samþykkt að fresta fyrirhuguðum kynningarfundi með íbúum sem boðaður var 27. janúar 2022 fram í febrúar þegar nýjar reglur um samkomutakmarkanir hafa tekið gildi.

Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að fundurinn verði haldinn föstudaginn 4. febrúar kl. 16:00 og verður fundurinn staðfundur ef aðstæður leyfa og jafnframt í beinu streymi á vef Garðabæjar.

Málsnúmer 2102035

05

Leigusamningur um húsnæði að Garðatorgi 1.

Bæjarráð samþykkir leigusamning við Reginn atvinnuhúsnæði ehf. um leigu á 370,6 fermetrar rými í húsnæði að Garðatorgi 1.

Málsnúmer 2111360

06

Umsagnarbeiðni vegna breytingar á umsókn um rekstrarleyfi fyrir veitingastað að Urriðaholtsstræti 2.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við þá breytingu á umsókn að gestum fækki úr 100 í 55.

Málsnúmer 2201384

07

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið, dags. 20.01.22.

Málsnúmer 2201388

08

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samræmingu úrgangsflokkunar, dags. 20.01.22.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umfjöllunar umhverfisnefndar. Bæjarráð samþykkir að fara fram á kynningu svæðisskipulagsstjóra á málinu á fundi bæjarráðs 1. febrúar nk.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2201383

09

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi drög að endurnýjun samstarfssamnings um rekstur skíðasvæða, dags. 20.01.22.

Málsnúmer 2201364

10

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um almannavarnir (almannavarnastig o.fl.), 181. mál., dags. 20.01.22

Lagt fram.

Málsnúmer 2201389

11

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um loftferðir, 186. mál, dags. 20.01.22.

Lagt fram.