Víðiholt íbúðabyggð. Deiliskipulag
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
9. fundur
Lögð er fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu Víðiholts sem gerir ráð fyrir að djúpgámalóðir og bílastæði í götu við lóð, sameinist lóð Víðiholt 1 og Víðiholt 3. Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Víðiholts í samræmi við 2.mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Í samræmi við 2.ml. 3.mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
13. (909). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag íbúðarbyggðar við Víðiholt á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 15 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og eftirfarandi breytingar gerðar á auglýstri tillögu.
-Íbúðareiningum innan skipulagssvæðisins fækkar úr 75 í 70.
Raðhús næst Lyngholti fellt út, íbúðum í fjölbýlishúsum fækkar um fjórar.
-Byggingarreitir fjölbýlishúsa styttast um 4,5 m í suðurenda. Fjarlægð þeirra frá lóðarmörkum við Asparholt 2 og 4 verður 15,1 í stað 10,6.
-Byggingarreitir raðhúsa minnka lítillega og færast fjær húsum við Asparholt, verða 10,4 m frá lóðarmörkum þeirra húsa í stað 6-7 m.
-Gert verði ráð fyrir 3 m bili fyrir göngustíg á milli lóða í Asparholti og Víðiholti frá Breiðumýri að göngustíg milli Lyngholts og Asparholts.
-Hámarkshæð raðhúsa lækkar úr 6,5 m í 6,3 m.
-Hámarkshæð fjölbýlishúss lækkar úr 10 m í 9,1 m. Hámarkshæð lyftuhúss verði 10 m.
-Leiksvæði norðan við Víðiholt fellt út.
-Bílastæðum fjölgar og er nú 2,3 stæði á íbúð þegar bílastæði á lóðum og gestastæði utan lóða eru reiknuð með.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr.2102111)
Bæjarráð Garðabæjar
06
35. (2042). fundur
Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag íbúðarbyggðar við Víðiholt á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 15 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og eftirfarandi breytingar gerðar á auglýstri tillögu.
-Íbúðareiningum innan skipulagssvæðisins fækkar úr 75 í 70.
Raðhús næst Lyngholti fellt út, íbúðum í fjölbýlishúsum fækkar um fjórar.
-Byggingarreitir fjölbýlishúsa styttast um 4,5 m í suðurenda. Fjarlægð þeirra frá lóðarmörkum við Asparholt 2 og 4 verður 15,1 í stað 10,6.
-Byggingarreitir raðhúsa minnka lítillega og færast fjær húsum við Asparholt, verða 10,4 m frá lóðarmörkum þeirra húsa í stað 6-7 m.
-Gert verði ráð fyrir 3 m bili fyrir göngustíg á milli lóða í Asparholti og Víðiholti frá Breiðumýri að göngustíg milli Lyngholts og Asparholts.
-Hámarkshæð raðhúsa lækkar úr 6,5 m í 6,3 m.
-Hámarkshæð fjölbýlishúss lækkar úr 10 m í 9,1 m. Hámarkshæð lyftuhúss verði 10 m.
-Leiksvæði norðan við Víðiholt fellt út
-Bílastæðum fjölgar og er nú 2,3 stæði á íbúð þegar bílastæði á lóðum og gestastæði utan lóða eru reiknuð með.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
9. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt að lokinni auglýsingu ásamt innsendum athugasemdum og umsögnum.
Tillagan var auglýst frá 10. nóvember 2021 til og með 16. febrúar 2022.
Alls bárust 15 erindi með athugasemdum sem varða ýmist tillögu að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt eða tillögu að deiliskipulagi Hesthúsahverfis í Breiðumýri (Sótasvæði).
Varðandi þau varnaðarorð sem fram koma í bókun heilbrigðisnefndar um nálægð hesthúsabyggðar við íbúðarbyggð þá telur skipulagsnefnd að sú nálægð sé í samræmi við það yfirlýsta leiðarljós að Álftanes sé "sveit í borg".
Skipulagsnefnd leggur til eftirfarandi breytingar á auglýstri tillögu:
-Íbúðareiningum innan skipulagssvæðisins fækkar úr 75 í 70. Raðhús næst Lyngholti fellt út, íbúðum í fjölbýlishúsum fækkar um fjórar.
-Byggingarreitir fjölbýlishúsa styttast um 4,5 m í suðurenda. Fjarlægð þeirra frá lóðarmörkum við Asparholt 2 og 4 verður 15,1 í stað 10,6.
-Byggingarreitir raðhúsa minnka lítillega og færast fjær húsum við Asparholt, verða 10,4 m frá lóðarmörkum þeirra húsa í stað 6-7 m.
-Gert verði ráð fyrir 3 m bili fyrir göngustíg á milli lóða í Asparholti og Víðiholti frá Breiðumýri að göngustíg milli Lyngholts og Apsarholts.
-Hámarkshæð raðhúsa lækkar úr 6,5 m í 6,3 m.
-Hámarkshæð fjölbýlishúss lækkar úr 10 m í 9,1 m. Hámarkshæð lyftuhúss verði 10 m.
-Leiksvæði norðan við Víðiholt fellt út
-Bílastæðum fjölgar og er nú 2,3 stæði á íbúð þegar bílastæði á lóðum og gestastæði utan lóða eru reiknuð með.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem deiliskipulag Víðiholts með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
08
24. (2031). fundur
Lögð fram tillaga skipulagsnefndar um deiliskipulag íbúðarbyggðar við Víðiholt á Álftanes. Tillagan var auglýst 28. desember 2021 og frestur til að gera athugasemdir var til 27. janúar 2022. Boðaður var kynningarfundur í Álftanesskóla 13. janúar 2022. Vegna aðstæðna í samfélaginu var kynningarfundi frestað til 4. febrúar 2022 og athugasemdarfrestur framlengdur til 16. febrúar 2022. Á fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 17. febrúar 2022 var tillagan tekin fyrir að lokinni auglýsingu. Athugasemdum og umsögnum sem höfðu borist var vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.
Tillagan var tekin fyrir að nýju á fundi skipulagsnefndar 24. mars 2022 og samþykkt með breytingum sem fela í sér að íbúðareiningum fækkar úr 75 í 74 þar sem raðhús næst Lyngholti er fellt út. Byggingarreitir fjölbýlishúsa styttast um 4,5 m í suðurenda. Gert verður ráð fyrir 2 m breiðum stíg milli lóða í Asparholti og Víðiholti alla leið frá Breiðumýri að göngustíg milli Lyngholts og Asparholts. Hámarkshæð raðhúsa lækkar úr 6,5 í 6,3. Hámarkshæð fjölbýlishúss lækkar úr 10 m í 9,1. Hámarkshæð lyftuhúss verður 10 m. Leiksvæði norðan við Víðiholt er fellt út og bílastæðum er fjölgað.
Með breytingum á tillögunni er komið á móts við athugasemdir sem fram komu frá íbúum í athugasemdarfresti.
Bæjarráð telur mjög mikilvægt að góð sátt verði meðal íbúa á Álftanesi um uppbyggingu á íbúðarbyggð við Víðiholt og samþykkir að vísa tillögunni að nýju til skipulagsnefndar til úrvinnslu. Leitast skal við að móta tillögu með það að leiðarljósi að hún falli vel að nærumhverfi þeirrar íbúðarbyggðar sem þegar er risin í nágrenninu og tekið sé en betur tillit til þeirra athugasemda sem liggja fyrir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
4. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt að lokinni auglýsingu ásamt innsendum athugasemdum og umsögnum.
Varðandi þau varnaðarorð sem fram koma í bókun heilbrigðisnefndar um nálægð hesthúsabyggðar við íbúðarbyggð þá telur skipulagsnefnd að sú nálægð sé í samræmi við sýn margra íbúa á Álftanesi um "sveit í borg" sem einkennir bæjarhlutann.
Skipulagsnefnd leggur til eftirfarandi breytingar á tillögunni:
- Íbúðareiningum fækkar úr 75 í 74. Raðhús næst Lyngholti fellt út.
- Byggingarreitir fjölbýlishúsa styttast um 4,5 m í suðurenda.
- Gert verði ráð fyrir 2 m breiðum stíg milli lóða í Asparholti og Víðiholti alla leið frá Breiðumýri að göngustíg milli Lyngholts og Apsarholts.
- Hámarkshæð raðhúsa lækkar úr 6,5 í 6,3.
- Hámarkshæð fjölbýlishúss lækkar úr 10 m í 9,1. Hámarkshæð lyftuhúss verði 10 m.
- Leiksvæði norðan við Víðiholt fellt út
- Bílastæðum fjölgar
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem deiliskipulag Víðiholts með ofangreindum breytingum í samræmi við 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
3. fundur
Lögð fram tillaga að lokinni auglýsingu.
Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.
Bæjarráð Garðabæjar
11
3. (2010). fundur
Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 20. janúar sl. var samþykkt að fresta fyrirhuguðum kynningarfundi með íbúum sem boðaður var 27. janúar 2022 fram í febrúar þegar nýjar reglur um samkomutakmarkanir hafa tekið gildi.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að fundurinn verði haldinn föstudaginn 4. febrúar kl. 16:00 og verður fundurinn staðfundur ef aðstæður leyfa og jafnframt í beinu streymi á vef Garðabæjar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
1. fundur
Skipulagsnefnd leggur til að íbúafundi verði frestað frá 13.1.2022 til 27.1.2022, nauðsynlegt er að sjá hvort að breyttar samgöngutakmarkanir heimili opin fund, eftir atvikum þannig að fjöldatakmarkanir verði þar og hvort hægt sé að krefjast niðurstöðu úr hraðprófi fyrir fundargesti og þá streymi frá fundinum samhliða ef að takmarka þarf komu gesta, ef að slíkt gengur ekki mun verða haldin hefðbundin fjarafundur á þeim degi. Athugasemdafrestur lengist til samræmis við framangreint og verður tvær vikur eftir kynningarfund.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
14. fundur
Skipulagsstjóri greinir frá ákvörðun tækni- og umhverfissviðs að fresta kynningarfundi sem fara átti fram í dag. Ástæðan er staðan í faraldrinum og samkomutakmarkanir. Tilkynnt hefur verið að fundurinn muni fara fram eftir áramót.
Skipulagsnefnd leggur til að fundurinn verði haldinn fimmtudaginn 13. janúar 2022 og athugasemdafrestur verði framlengdur til 27. janúar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
14
15. (893). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir Víðiholt á Álftanesi. Á auglýsingartíma skal boða til kynningarfundar í Álftanesskóla." (Mál nr. 2102111)
Bæjarráð Garðabæjar
15
42. (2000). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir Víðiholt á Álftanesi.
Á auglýsingartíma skal boða til kynningarfundar í Álftanesskóla.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
16
13. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt að lokinni forkynningu ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa.
Ýmsar breytingar og lagfæringar hafa verið gerðar á forkynntri tillögu.
Helstu breytingar á tillögunni eru:
-Íbúðareiningum fækkar um 9 úr 84 í 75. Íbúðum í fjölbýli fækkar um 6 og í raðhúsum um 3.
-Byggingarreitir fjölbýlishúsa styttast og færast fjær húsum við Asparholt sem nemur 6 metrum.
-Aðkomugata að raðhúsum færist til þannig að raðhúslengjur samanstanda nú af 3 lengjum með 5 húsum og 3 lengjum með 3 húsum.
-Byggingarreitir raðhúsa færast fjær raðhúsum við Lyngholt.
-Ekki er lengur gert ráð fyrir göngustíg frá Víðiholti að hesthúsahverfinu og manir stækkaðar.
-Heimilt verður að útbúa litlar og grunnar settjarnir vegna ofanvatslausna hjá leikssvæðum.
-Göngustígur færist fjær raðhúsum við Lyngholt og gert verður ráð fyrir göngustíg meðfram lóðarmörkum milli fjölbýlishúsa í Víðiholti og Asparholti.
-Spennistöð við Breiðumýri færist um lítillega til suðurs.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga. Boða skal til kynningarfundar í Álftanesskóla á auglýsingartíma.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
17
11. fundur
Tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt lagðar fram að lokinni forkynningu.
Fjöldi ábendinga hafa borist og þær lagðar fram. Starfsmenn tækni-og umhverfissviðs funduðu með fulltrúum íbúa við Asparholt og Lyngholt og fundargerð þess fundar lögð fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
18
7. (885). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð við Víðiholt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir svæði sem liggur á milli Asparholts og hesthúsabyggðar þar sem ekki var áður staðfest deiliskipulag. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt. Leita skal umsagnar Ungmennafélags Álftaness og Hestamannafélagsins Sóta. (Mál nr. 2102111)
Bæjarráð Garðabæjar
19
16. (1974). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúarðbyggð við Víðiholt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir svæði sem liggur á milli Asparholts og hesthúsabyggðar þar sem ekki var áður staðfest deiliskipulag. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt. Leita skal umsagnar Ungmennafélags Álftaness og Hestamannafélagsins Sóta.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
20
6. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt milli Asparholts og hesthúsabyggðar Sóta.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 4.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á forkynningartíma og leita skal umsagnar umsagnaraðila sem og Ungmennafélags Álftaness og Hestamannafélagsins Sóta.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
21
5. fundur
Eigendur lands Sveinskots í Breiðumýri María Rúnarsdóttir og Davíð Freyr Albertsson kynntu sig og fylgdu kynningu úr hlaði. Arnar Þór Jónsson arkitekt hjá Arkís kynnti drög að deiliskipulagi íbúðarbyggðar á landi Sveinskots í Breiðumýri sem hann hefur unnið á vegum landeiganda í samráði við Tækni-og umhverfissvið.
Lagt hefur verið til heitið Víðiholt fyrir húsagötuna og skipulagsnefnd samþykkir það heiti.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og Tækni-og umhverfissviði.