Beint í efni

13. (909). fundur

06.10.2022
Bæjarstjórn Garðabæjar

13. (909). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

06.10.2022

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
  • Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 15. september 2022 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2209025F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 20/9 ´22.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., móttöku flóttafólks og 2. tl., fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026) - forsendur og vinnuferli.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., móttöku flóttafólks og 2. tl., fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026) - forsendur og vinnuferli.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi, 1. tl., móttöku flóttafólks og 2. tl., fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026) - forsendur og vinnuferli.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026) - forsendur og vinnuferli.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., móttöku flóttafólks, 2. tl., fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026) - forsendur og vinnuferli og 13. tl., drög að samningi við Knattspyrnusamband Íslands um aðstöðu í Miðgarði.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026).

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026).

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., móttöku flóttafólks.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026) - forsendur og vinnuferli.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., móttöku flóttafólks og 2. tl., fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026) - forsendur og vinnuferli.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026) - forsendur og vinnuferli.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., móttöku flóttafólks og 2. tl., fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026) - forsendur og vinnuferli.

Fundargerðin sem er 18 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

1.17 - 2209224 - Drög að samkomulagi við Urriðaholt ehf. um uppbyggingu lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9 - Viðauki XII.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum samkomulag við Urriðaholt vegna uppbyggingar á lóðinni við Urriðaholtsstræti 9. Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Ingvar Arnarson sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209043F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 27/9 ´22

Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2209062F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 4/10 ´22.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Bæjarfulltrúi Viðreisnar hvetur stjórnarmenn bæjarstjórnar Garðabæjar í stjórn Strætó og stjórn SSH til þess að tala fyrir og ýta á eftir því að farið verði í frekara útboð á rekstri Strætó. Kominn er tími á endurnýjun vagna og rekstur stoðþjónustu við Strætó er dýr.

Í ljósi fjárhagsstöðu Strætó sýnir það hversu brýnt það er að fara í þessa aðgerð fyrr en seinna.“

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag.

Björg Fenger, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag og 6 tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir breytingum á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar. Þá vakti Björg athygli á málum til afgreiðslu varðandi deiliskipulag lóða og byggða.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag.

Almar Guðmundsson, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag.

Fundargerðin sem er 21 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

3.1 - 2106536 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - viðauki nr. 4.

„Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2022 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 4.
Fjölskyldusvið.
Aukinn kostnaður vegna nýrra einstaklinga í þjónustu. Afsláttur fasteignagjalda elli- og örorkulífeyrisþega er meiri en áætlun gerði ráð fyrir.

Sólarhringsþjónusta og búsetuúrræði kr. 5.000.000 02567-1110
Stoðþjónusta kr. 8.000.000 02530-4993
Afsláttur fasteignagjalda kr. 15.000.000 02415-9919
Samtals fjölskyldusvið kr. 28.000.000

Fræðslusvið.
Í maí sl. samþykkti bæjarstjórn sérstaka fjárveitingu til að eflingar starfsmannamála á leikskólum bæjarins.

Skólaskrifstofa kr. 25.000.000 04010-1981

Á fundi bæjarstjórnar í júní sl. samþykkti bæjarstjórn reglur um greiðslur til forráðmanna barna 12 mánaða og eldri sem eru á biðlista eftir leikskólavist í Garðabæ.

Greiðslur til forráðamanna barna kr. 35.000.000 04175-9174
Dagforeldrar niðurgreiðslur kr. 8.000.000 04170-9173
Samtals fræðslusvið kr. 68.000.000

Æskulýðs- og íþróttamál.
Frístundaakstur fyrir skólabörn var boðinn út á árinu. Aðeins eitt tilboð barst sem var yfir kostnaðaráætlun. Það ásamt viðbótarakstri vegna Miðgarðs og fjölgunar barna í Urriðaholtsskóla hefur í för með sér aukinn kostnað. Hækka þarf styrk til GKG vegna niðurfellingar fasteignagjalda.

Frístundaakstur kr. 13.000.000 6310-4111
Styrkur vegna fasteignagjöld GKG kr. 11.400.000 06830-9919
Samtals æskulýðs- og íþróttamál kr. 24.400.000

Sameiginlegur kostnaður.
Kostnaðarþátttaka Garðabæjar til Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamningsgerðar á árinu 2022 er um 4 m.kr.

Samtals sameiginlegur kostnaður kr. 4.000.000 21710-9612

Samtals aukin rekstrarútgjöld kr. 124.400.000

Tekjur.
Í maí var undirritaður samningur við Framkvæmdafélagið Arnarhvol um sölu byggingarréttar lóða í Vetrarmýri samtals að fjárhæð kr. 3.281.897.000. Þá hefur einnig komið til sala á byggingarrétti lóða á öðrum svæðum.
Áætluð fjárhæð vegna selds byggingarréttar í fjárhagsáætlun var 1,0 ma og er hækkuð um 2,5 ma. Gera má ráð fyrir að vegna selds byggingarréttar minnki þörf fyrir að nýta lántökuheimild ársins.

Seldur byggingaréttur kr. 2.589.000.000 31400-0397

Rekstrarafgangur að teknu tilliti til viðauka 1-4 kr. 2.526.872 000.“

Fylgiskjöl

3.13 - 2209647 - Minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag, dags. 27.09.22.

„Bæjarstjórn samþykkir að framlag til Strætó bs. fyrir árið 2022 verði hækkað um kr. 38.963.562. Samþykktin er með fyrirvara um að öll aðildarsveitarfélög að byggðasamlaginu samþykki tillögu um hækkun á framlagi til Strætó. bs.“

Fylgiskjöl

3.5 - 2102111 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir íbúðarbyggð við Víðiholt á Álftanesi.

„Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag íbúðarbyggðar við Víðiholt á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 15 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og eftirfarandi breytingar gerðar á auglýstri tillögu.

-Íbúðareiningum innan skipulagssvæðisins fækkar úr 75 í 70.
Raðhús næst Lyngholti fellt út, íbúðum í fjölbýlishúsum fækkar um fjórar.
-Byggingarreitir fjölbýlishúsa styttast um 4,5 m í suðurenda. Fjarlægð þeirra frá lóðarmörkum við Asparholt 2 og 4 verður 15,1 í stað 10,6.
-Byggingarreitir raðhúsa minnka lítillega og færast fjær húsum við Asparholt, verða 10,4 m frá lóðarmörkum þeirra húsa í stað 6-7 m.
-Gert verði ráð fyrir 3 m bili fyrir göngustíg á milli lóða í Asparholti og Víðiholti frá Breiðumýri að göngustíg milli Lyngholts og Asparholts.
-Hámarkshæð raðhúsa lækkar úr 6,5 m í 6,3 m.
-Hámarkshæð fjölbýlishúss lækkar úr 10 m í 9,1 m. Hámarkshæð lyftuhúss verði 10 m.
-Leiksvæði norðan við Víðiholt fellt út.
-Bílastæðum fjölgar og er nú 2,3 stæði á íbúð þegar bílastæði á lóðum og gestastæði utan lóða eru reiknuð með.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr.2102111)

Fylgiskjöl

3.6 - 2008661 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir breytingum á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar.

„Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framkvæmdaleyfi vegna breytinga á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir.“ (Mál nr. 2008661)

Fylgiskjöl

3.7 - 2107195 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 1.

„Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 1. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 4 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og gefa þær ekki tilefni til að gera breytingar á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr. 2107195)

Fylgiskjöl

3.8 - 2102110 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir hesthúsabyggð á Álftanesi.

„Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag hesthúsahverfis á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 15 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og eftirfarandi breytingar gerðar á auglýstri tillögu.
Gert verður ráð fyrir aðkomugötu milli nýrra hesthúsalóða og eldri lóða nr.1, 2 og 3 og þar gert ráð fyrir bílastæðum sem nýtast eldri hesthúsum. Við það færast byggingarreitir sem því nemur í átt að reiðskemmu og hestagerði.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr. 2102110)

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209027F

04

Fundargerð fjölskylduráðs frá 21/9 ´22.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., kynningu á málaflokki fatlaðs fólks og 4. tl., breytt skipulag barnaverndarmála.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., kynningu á málaflokki fatlaðs fólks.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 3. tl., undirbúning að myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.

Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., breytt skipulag barnaverndarmála.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2209006F

05

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 7/9 ´22.

Björg Fenger ræddi 1. tl. nýtingu á óráðstöfuðu rými í Miðgarði.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2209016F

06

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/9 ´22.

Björg Fenger, ræddi 4. tl., ráðstefnu um starf félagsmiðstöðva og áherslur í starfi þeirra á næstu árum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2209009F

07

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 14/9 ´22.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., undirbúning að nafngiftum og fegrun hringtorga í bænum og 4. tl., menningardagskrá haust 2022.

Stela Stefánsdóttir, ræddi 3. tl., menningardagskrá fyrir skólahópa.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., undirbúning að nafngiftum og fegrun hringtorga í bænum og 3. tl., menningardagskrá fyrir skólahópa.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 4. tl. menningardagskrá haust 2022.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2209044F

08

Fundargerð skipulagsnefndar frá 27/9 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2209017F

09

Fundargerð umhverfisnefndar frá 14/9 ´22.

Stella Stefánsdóttir, ræddi 1. tl., endurnýjun samstarfs við Veiðikortið, 3. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts, 4. tl. umsókn í framkvæmdasjóð ferðamálastaða, 5. tl., skipun starfshóps til að skoða og gera tillögur um nýtingu vindorku, 6. tl., tillögu um örugg hjólastæði og 7. tl., tillögu um kolefnisjöfnun reksturs sveitarfélagsins.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 6. tl., tillögu um örugg hjólastæði.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2202013

10

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 3/10 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2203555

11

Fundargerð 38. eigendafundar Strætó bs. frá 26/9 ´22

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201281

12

Fundargerðir Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 11/8, 18/8, 14/9 og 30/9 ´22.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2203017

13

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 16/9 ´22.

Björg Fenger ræddi 3. tl., erindi Garðabæjar um breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags.

Ingvar Arnarson, ræddi reglur um fresti til athugasemda samkvæmt ákvæðum skipulagslaga en frestir til að gera athugasemdir voru liðnir í málum sem voru til afgreiðslu.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201365

14

Fundargerð stjórnar SSH frá 12/9 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2209661

15

Tilnefning áheyrnarfulltrúa í fjölskylduráð, skipulagsnefnd og skólanefnd grunnskóla.

Eftirfarandi tilnefningar lágu fyrir.

Fjölskylduráð.

Áheyrnarfulltrúi: Sara Dögg Svanhildardóttir. (C)

Varaáheyrnarfulltrúi: Guðlaugur Kristmundsson. (C)

Nýr varamaður.

Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir. (B)

Skipulagsnefnd.

Áheyrnarfulltrúi: Guðlaugur Kristmundsson. (C)

Varaáheyrnarfulltrúi: Sara Dögg Svanhildardóttir. (C)

Nýr varamaður.

Brynja Dan Gunnarsdóttir. (B)

Skólanefnd

Áheyrnarfulltrúi: Vilborg Inga Grétarsdóttir. (B)

Varaáheyrnarfulltrúi: Brynja Dan Gunnarsdóttir. (B)

Varamaður: Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir (C)

Íþrótta og tómstundaráð:

Svanur Þorvaldsson, (C) verður varamaður í stað Árna Björns Kristjánssonar. (C)

Ofangreindar tilnefningar samþykktar samhljóða.

Málsnúmer 2106536

16

Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2022.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 500.000.000. Um er að ræða tvo lánasamninga. Lán samkvæmt samningi nr. 2210_28 að fjárhæð kr. 210.000.000, jafngreiðslulán til 17 ára, verðtryggt með 2,4% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar. Lán samkvæmt samningi nr. 2210_29 að fjárhæð kr. 290.000.000, jafngreiðslulán til 33 ára, verðtryggt með ávöxtunarkröfunni 2,12% og er uppgreiðsluheimild tvisvar á lánstímanum í nóvember 2035 og 2045.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á fundi bæjarstjórnar í dag að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 210.000.000, með lokagjalddaga þann 20. mars 2039, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórn hefur kynnt sér. Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir sveitarfélagsins sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt.030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á fundi bæjarstjórnar í dag að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 290.000.000, með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórn hefur kynnt sér. Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnun á framkvæmdum við Urriðaholtsskóla sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“