Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 4/10 ´22.

Málsnúmer 2209062F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (909). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Bæjarfulltrúi Viðreisnar hvetur stjórnarmenn bæjarstjórnar Garðabæjar í stjórn Strætó og stjórn SSH til þess að tala fyrir og ýta á eftir því að farið verði í frekara útboð á rekstri Strætó. Kominn er tími á endurnýjun vagna og rekstur stoðþjónustu við Strætó er dýr.
Í ljósi fjárhagsstöðu Strætó sýnir það hversu brýnt það er að fara í þessa aðgerð fyrr en seinna.“

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag.

Björg Fenger, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag og 6 tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir breytingum á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar. Þá vakti Björg athygli á málum til afgreiðslu varðandi deiliskipulag lóða og byggða.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag.

Almar Guðmundsson, ræddi 13. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag.

Fundargerðin sem er 21 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.