12. fundur
12. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
12.10.2023
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 8.Arnarnesháls/Arnarland
Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa í forkynningu tillögu að breytingu aðalskipulags og að deiliskipulagi Arnarlands.
Almennur kynningarfundur var haldinn í Sveinatungu þann 31.ágúst og var hann vel sóttur. Að loknum kynningarfundi óskuðu íbúar í Akrahverfi eftir því að boðað yrði til annars kynningarfundar og var orðið við því. Frestur til að skila inn ábendingum var framlengdur um viku eða til 2.október. Aukakynningarfundur var haldinn í Sveinatungu þann 20.september og var hann sömuleiðis vel sóttur. Fundargerðir beggja funda lagðar fram.
Jóhanna Helgadóttir hjá Nordic gerði grein fyrir samantekt um innihald ábendinga sem borist hafa.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að umhverfissvið og skipulagsráðgjafi skoði vandlega útfærslu umferðartenginga og flæðis umhverfis skipulagssvæðið í samráði við Vegagerðina og Kópavogsbæ.
Ábendingum, umsögnum og fundargerðum vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
02
Arnarland. Deiliskipulag
Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa í forkynningu tillögu að breytingu aðalskipulags og að deiliskipulagi Arnarlands.
Almennur kynningarfundur var haldinn í Sveinatungu þann 31.ágúst og var hann vel sóttur. Að loknum kynningarfundi óskuðu íbúar í Akrahverfi eftir því að boðað yrði til annars kynningarfundar og var orðið við því. Frestur til að skila inn ábendingum var framlengdur um viku eða til 2.október. Aukakynningarfundur var haldinn í Sveinatungu þann 20.september og var hann sömuleiðis vel sóttur. Fundargerðir beggja funda lagðar fram.
Jóhanna Helgadóttir hjá Nordic gerði grein fyrir samantekt um innihald ábendinga sem borist hafa.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að umhverfissvið og skipulagsráðgjafi skoði vandlega útfærslu umferðartenginga og flæðis umhverfis skipulagssvæðið í samráði við Vegagerðina og Kópavogsbæ.
Ábendingum, umsögnum og fundargerðum vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
03
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, breyting á rammahluta, Vífilsstaðaland
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir því að ákvæði um fjölda hæða á landnotkunarreit 4.11 Íb (Þorraholt) breytist úr 4 hæðum í 5 og á landnotkunarreit 4.12. Íb (Vorbraut) breytist úr 3 hæðum í 4, í báðum tilfellum verði efstu hæðir inndregnar. Töflur um áætlaðan heildarfjölda íbúða breytast lítillega.
Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram.
Skipulagsstjóri og skipulagsráðgjafi Sigurður Hallgrímsson arkitekt hjá Nordic arkitektum gerðu grein fyrir fundi með íbúum við Háholt sem hafa gert athugasemdir.
Skipulagsnefnd telur að athugasemdir gefi ekki tilefni til þess að breyta aðalskipulagsbreytingartillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu á rammahluta Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands í samræmi við 1.mgr.32.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
04
Hnoðraholt N,dsk.br. efstu hæðir ofl.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að hús sunnan Vorbrautar hækki um eina hæð úr þremur í fjórar og verði efsta hæð inndregin. Einnig verður gert ráð fyrir bílakjöllurum á sömu lóðum.
Tillagan var í auglýsingu frá 27.júlí til 11.september sl.
Athugasemd sem borist hefur lögð fram.
Skipulagsnefnd telur að athugasemdin gefi ekki tilefni til þess að gera breytingu á auglýstri breytingartillögu.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
05
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholt vegna lóða við Þorraholt.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða við Þorraholt aukist úr 220 í 236. Einnig að hluti bygginga geti orðið allt að 5 hæðir.
Tillagan var í auglýsingu frá 27.júlí til 11.september sl.
Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram.
Skipulagsstjóri og skipulagsráðgjafi Sigurður Hallgrímsson arkitekt hjá Nordic arkitektum gerðu grein fyrir fundi með íbúum við Háholt sem hafa gert athugasemdir.
Skipulagsnefnd telur að innsendar athugasemdir gefi tilefni til þess að komið sé til móts við þær og leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að 5. hæðin á tveimur húshlutum að Þorraholti 7 verði felld út. (miðbygging og syðsta bygging)
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
06
Vetrarmýri - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem unnin er af skipulagsráðgjafa Vetrarmýrar Sigurði Einarssyni fyrir hönd Framkvæmdafélagsins Arnarhvols ehf sem vinnur að uppbyggingu við Vetrarbraut í Vetrarmýri.
Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum innan deiliskipulagssvæðis Vetrarmýrar fjölgi úr 664 íbúðum í 795 íbúðir. Íbúðagerðir breytist ekki og áfram verði miðað við að flatarmál íbúðar sé 100 m² að meðaltali. Þannig verði stefnt að því að bjóða upp á fjölbreytta vöru í ólíkum stærðum. Áfram er miðað við lágmarkskröfur sem eru 1,5 bílastæði á íbúð 90 m² eða stærri og 1 bílastæði á íbúðir minni en það. Nýlega var samþykkt breyting á deiliskipulagi Vetrarmýrar þar sem almennt verður heimilt að byggja tvöfalda bílakjallara undir húsum. Við þá breytingu rýmka möguleikar byggingaraðila fyrir fleiri stæðum en lágmarkskröfur gera ráð fyrir.
Bílastæði sem áður áttu að vera í tveimur sjálfstæðum bílahúsum meðfram Reykjanesbraut (nr.9) verða byggð sem kjallarar undir tveimur skrifstofubyggingum sem verði 5 hæðir. Í þessum húsum auk þriðju skrifstofubyggingarinnar á reitnum sem yrði 4 hæða (nr.13) verða lágmarkskröfur um bílastæði auknar þannig að í stað 1 bílastæðis á hverja 100m² verða kröfurnar 1 bílastæði á hverja 60m² atvinnuhúsnæðis. Byggingarreitur fyrir hús nr. 1 skiptist í tvennt og verður nr.1-3.
Auk þess gerir tillagan ráð fyrir því að atvinnusvæði minnki úr 36.461 m² í 29.558 m². Í tillögunni er gert ráð fyrir að ekkert atvinnuhúsnæði verði í Vetrarbraut 1-3. Í öðrum byggingum ætluðum fyrir atvinnu í gildandi deiliskipulagi að frátaldri byggingu Vorbraut 14 við suðurenda íþróttaleikvangs, verður eingöngu atvinnurekstur á jarðhæð. Hinsvegar koma nýjar byggingar ofan á bílahús meðfram Reykjanesbraut eingöngu ætlaðar fyrir atvinnurekstur.
Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu efh gerði grein fyrir tillögunni og minnisblaði sem hann hefur tekið saman um tillöguna og áhrif hennar á uppbyggingu í Vetrarmýri og Hnoðraholti.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.greinar skipulagslaga nr.123/2010.
07
Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.
Formaður skipulagsnefndar, skipulagsstjóri og skipulagsráðgjafi Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerðu grein fyrir þeirri mótun sem unnið hefur verið að á tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts og því samtali sem hefur átt sér stað við Kópavogsbæ og GKG.
Tillögu vísað til áframhaldandi úrvinnslu.
08
Hraunhólar 18 - Ósk um deiliskipulagsbreytingu
Lögð fram tillaga að breytingu Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits að Hraunhólum 18 til austurs vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við einbýlishúsið.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Hraunhóla 16,19,20, 21 og 23.
09
Vinastræti 22-28 - Deiliskipulag
Lögð fram umsókn Oddfellowreglunnar að breytingu að deiliskipulagi Urriðaholts 3.áfanga sem næri til lóðanna Vinastræti 20-26 og 28.
Ástæða umsóknar er fyrirhuguð uppbygging regluheimils Oddfellowa í samræmi við niðurstöðu úr hönnunarsamkeppni sem Oddfellowreglan stóð fyrir fyrr á árinu.
Skipulagsnefnd óskar eftir ítarlegri kynningu á tillögunni og áhrifum hennar á aðliggjandi lóðir sem og vinningstillögu hönnunarsamkeppninnar.
10
Tinnuvellir 11 - stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu hesthúsbyggingar að Kjóavöllum og umsögn deiliskipulagsráðgjafa um fyrirspurnina. Skipulagsstjóri gerði einnig grein fyrir drögu að tillögu um breytingu deiliskipulags Kjóavalla sem gerir ráð fyrir ákvæðum um þakgerð í Andvarahverfi.
Fyrirspurn, tillögudrögum og minnisblaði vísað til umsagnar stjórnar hestamannafélagsins Spretts.
13
Sundabraut - aðalskipulagsbreyting og umhverfismat. Verklýsing til kynningar
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugsemd við framlagða verkefnislýsingu.
14
Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna iðnaðarsvæðisins 14
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugsemd við framlagða verkefnislýsingu.
15
Hamraneslína 1 og 2 - Breyting á ask. Hafnarfjarðar
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Hafnarfjarðar sem gerir ráð fyrir að Hamraneslína verði lögð í jörð frá endavirki við Kaldárselsveg að Hamranesi. Tillaga er í auglýsingu og óskað er eftir umsögn Garðabæjar um hana.
Skipulagsnefnd Garðabæjar bendir á að æskilegt væri að fram kæmi á uppdrætti staðsetning strengendavirkis. Nefndin bendir á ósamræmi milli texta og uppdráttar eftir breytingu þar sem að háspennulínan er sýnd í jörð að frá strengendavirki að bæjarmörkum við Garðabæ. Það er hvorki í samræmi við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 sem sýnir Hamraneslínur sem loftlínu né niðurstöðu samtals Garðabæjar við Landsnet um útfærslu Hamraneslína innan bæjarmarka Garðabæjar að svo stöddu.
16
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 8
Fundargerð lögð fram.
16.1 - 2306401 - Vesturtún 52 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
16.2 - 2306403 - Vinastræti 1-3 - deiliskipulagsbreyting Urriðaholtsskóli lóð
Fylgiskjöl
16.3 - 2306249 - Hraunhólar 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
16.4 - 2304220 - Ljósakur 6 ( íb. 01 0201) - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
- Umsækjandi (eigandi - einstaklingur/ fyrirtæki) - tilkynningarskyld mannvirkjagerð undanþegin byggingarheimild eða -leyfi.pdf
- Tilkynning um breytingu - Ljósakur 6 stækkun glugga í kjallara.pdf
- Sæl Anna Guðrún, ég vildi bara rétt fylgja á eftir þessu málið. Eruð þið búin að ná að skoða þetta?.pdf
- Sæl Anna Guðrún, ég vildi bara rétt fylgja á eftir þessu málið. Eruð þið búin að ná að skoða þetta?.pdf
17
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 9
Fundargerð lögð fram.
17.1 - 2304055 - Fífumýri 15 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
17.2 - 2307012 - Holtsbúð 33 gluggabreyting - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
17.3 - 2102111 - Víðiholt íbúðabyggð. Deiliskipulag
Fylgiskjöl
18
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 10
Fundargerð lögð fram.
18.1 - 2303468 - Krókamýri 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
18.2 - 2306458 - Bæjargil 122 - Umsókn um byggingarleyfi
18.3 - 2304192 - Hagaflöt 14 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
18.4 - 2304056 - Rjúpnahæð 5- Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
18.5 - 2305047 - Hraungata 42 - Tilkynning um framkvæmd
Fylgiskjöl
18.6 - 2306378 - Urriðaholtsstræti 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
19
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 11
Fundargerð lögð fram.