Hnoðraholt N,dsk.br. efstu hæðir ofl.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
14. (929). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. október 2023, um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir því að hús sunnan Vorbrautar hækki um eina hæð eða úr þremur í fjórar og verði efsta hæðin inndregin. Einnig verður gert ráð fyrir heimild til að hafa bílakjallara á sömu lóðum.
Tillagan var auglýst 27. júlí 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. september 2023. Ein athugasemd barst og var hún lögð fram á fundi skipulagsnefndar 14. september 2023. Umsögn um athugasemd liggur fyrir og þykir athugasemd ekki gefa tilefni til breytinga á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.“ (Mál nr. 2302671)
Bæjarráð Garðabæjar
02
39. (2092). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. október 2023, um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir því að hús sunnan Vorbrautar hækki um eina hæð eða úr þremur í fjórar og verði efsta hæðin inndregin. Einnig verður gert ráð fyrir heimild til að hafa bílakjallara á sömu lóðum.
Tillagan var auglýst 27. júlí 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. september 2023. Ein athugasemd barst og var hún lögð fram á fundi skipulagsnefndar 14. september 2023. Umsögn um athugasemd liggur fyrir og þykir athugasemd ekki gefa tilefni til breytinga á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að hús sunnan Vorbrautar hækki um eina hæð úr þremur í fjórar og verði efsta hæð inndregin. Einnig verður gert ráð fyrir bílakjöllurum á sömu lóðum.
Tillagan var í auglýsingu frá 27.júlí til 11.september sl.
Athugasemd sem borist hefur lögð fram.
Skipulagsnefnd telur að athugasemdin gefi ekki tilefni til þess að gera breytingu á auglýstri breytingartillögu.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Tillaga að breytingu Hnoðraholts norður lögð fram að lokinni auglýsingu. Tvö erindi með athugasemdum hafa borist. Tillögu og athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Bæjarráð Garðabæjar
05
26. (2079). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir að hámarkshæð fjölbýlishúsa við Vorbraut hækki sem nemur einni inndreginni hæð en skipulagsákvæði sem sett er fram í aðalskipulagi gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.12 Íb sé að hámarki 3 hæðir. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi gerir ráð fyrir því að fjölbýlishús sunnan Vorbrautar geti verið 4 hæðir. Þá gerir tillagan ráð fyrir að bílageymslur verði heimilaðar undir fjölbýlishúsum (bílakjallari). Við þá breytingu getur íbúðum við Vorbraut 8, 10, 12, 14 og 16 fjölgað úr 9 í 12 enda eru uppfylltar kröfur um fjölda bílastæða.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.12 Íb geti verið 4 hæðir auk þess sem töflum með áætluðum íbúðafjölda í greinargerð rammahluta aðalskipulags verði breytt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
9. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norðurhluta sem gerir ráð fyrir því að hæðafjöldi fjölbýlishúsa við Vorbraut aukist sem nemur einni hæð sem verði inndregin.
Við skoðun hefur komið í ljós að ósamræmi er við ákvæði aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 og hefur bæjarráð afturkallað deiliskipulagsbreytinguna sem búið var að samþykkja.
Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarkshæð fjölbýlishúsa við Vorbraut hækki sem nemur einni inndreginni hæð en skipulagsákvæði sem sett er fram í aðalskipulag gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.12 Íb sé að hámarki 3 hæðir. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi gerir ráð fyrir því að fjölbýlishús sunnan Vorbrautar geti verið 4 hæðir.
Skipulagsstjóri leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að bílageymslur verði heimilaðar undir fjölbýlishúsum (bílakjallari). Við þá breytingu getur íbúðum við Vorbraut 8, 10,12,14 og 16 fjölgað úr 9 í 12 þar sem að þá verður unnt að uppfylla kröfur um fjölda bílastæða.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindri breytingu til auglýsingar að nýju í samræmi við 1.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og skal hún auglýst samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.12 Íb geti verið 4 hæðir auk þess sem töflum með áætluðum íbúðafjölda í greinargerð rammahluta aðalskipulags verði breytt.
Bæjarráð Garðabæjar
07
25. (2078). fundur
Í minnisblaði kemur fram að tillaga í samþykktu deiliskipulagi sem leyfir að fjölbýlishús að sunnanverðu við Vorbraut megi vera 4 hæðir er ekki í samræmi við rammahluta aðalskipulags fyrir svæðið þar sem fram kemur að hámarkshæð húsa sé 3 hæðir.
Bæjarráð samþykkir að falla frá tillögu um viðbótarhæð fjölbýlishúsa að sunnanverðu við Vorbraut. Fjölbýlishúsin verða áfram 3 hæðir eins og fram kemur í rammahluta aðalskipulags. Bæjarráð felur skipulagstjóra að leggja fyrir skipulagsnefnd tillögu um breytingu á rammahluta aðalskipulags sem heimili að fjölbýlishúsin verði 4. hæðir og samhliða verði auglýst að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi sem geri ráð fyrir að hámarkshæð húsa að sunnanverðu við Vorbraut verði 4 hæðir.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
9. (924). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Tillagan gerir ráð fyrir viðbótar hæðum fjölbýlishúsa sem verða inndregnar og fjölgun bílastæða innan lóða til að mæta mögulegri fjölgun íbúða vegna aukins byggingarmagns. Einnig er gert ráð fyrir því að fjórum tveggja hæða einbýlishúsalóðum verði breytt í raðhús og parhús.
Lagt er til að gera eftirfarandi breytingar á auglýstri tillögu. Fækkað verði um eina íbúðareiningu í raðhúslengjunni við Stekkholt næst bæjarmörkum við Kópavog. Ákvæði verði sett um uppbrot efstu hæða í fjölbýlishúsum sem snúa að Vorbraut. Ákvæðum um Hnoðraholtslínu í jörð verði bætt við greinargerð sbr. umsögn Landsnets.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr. 2302671)
Bæjarráð Garðabæjar
09
23. (2076). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Tillagan gerir ráð fyrir viðbótar hæðum fjölbýlishúsa sem verða inndregnar og fjölgun bílastæða innan lóða til að mæta mögulegri fjölgun íbúða vegna aukins byggingarmagns. Einnig er gert ráð fyrir því að fjórum tveggja hæða einbýlishúsalóðum verði breytt í raðhús og parhús.
Lagt er til að gera eftirfarandi breytingar á auglýstri tillögu. Fækkað verði um eina íbúðareiningu í raðhúslengjunni við Stekkholt næst bæjarmörkum við Kópavog. Ákvæði verði sett um uppbrot efstu hæða í fjölbýlishúsum sem snúa að Vorbraut. Ákvæðum um Hnoðraholtslínu í jörð verði bætt við greinargerð sbr. umsögn Landsnets.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd leggur til eftirfarandi breytingar á tillögunni:
Fækkað verði um eina íbúðareiningu í raðhúslengjunni við Stekkholt næst bæjarmörkum.
Ákvæði verði sett um uppbrot efstu hæða í fjölbýlishúsum sem snúa að Vorbraut.
Ákvæðum um Hnoðraholtslínu í jörð sé bætt við greinargerð sbr.umsögn Landsnets.
Í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.1123/2010 samþykkir skipulagsnefnd tillöguna sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður með þeim breytingum sem taldar eru upp hér að ofan.
-
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
7. fundur
Tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður lögð fram að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Bæjarstjórn Garðabæjar
12
5. f.(920). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna. Tillagan gerir ráð fyrir viðbótar hæðum fjölbýlishúsa sem verða inndregnar og fjölgun bílastæða innan lóða til að mæta mögulegri fjölgun íbúða vegna aukins byggingarmagns. Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að fjórum tveggja hæða einbýlishúsalóðum verði breytt í raðhús og parhús. Samkvæmt tillögunni getur íbúðareiningum fjölgað um 32. (Mál nr. 2302671)
Bæjarráð Garðabæjar
13
11. (2064). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna. Tillagan gerir ráð fyrir viðbótar hæðum fjölbýlishúsa sem verða inndregnar og fjölgun bílastæða innan lóða til að mæta mögulegri fjölgun íbúða vegna aukins byggingarmagns. Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að fjórum tveggja hæða einbýlishúsalóðum verði breytt í raðhús og parhús. Samkvæmt tillögunni getur íbúðareiningum fjölgað um 32.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
4. fundur
Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Hnoðraholts Norður sem miðar að því að nýta vel þá innviði sem byggðir hafa verið upp í Hnoðraholti. Sigurður Einarsson arkitekt og höfundur deiliskipulagsins gerði grein fyrir tillögunni. Tillagan gerir ráð fyrir því að bæta við inndregnum hæðum á fjölbýlishús og bæta við bílastæðum innan lóða til að mæta mögulegri fjölgun íbúða vegna aukins byggingarmagns. Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að fjórum tveggja hæða einbýlishúsalóðum verði breytt í raðhús og parhús.
Samkvæmt tillögu getur íbúðareiningum fjölgað um 32.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.og 31.gr. skipulagslaga nr.123/2010.