26. (2079). fundur
26. (2079). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
04.07.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
- Egill Daði Gíslason - verkfræðingur
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2304477
01
Tilboð í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti.
Lögð voru fram 159 óopnuð umslög með tilboðum í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti, sbr. tilkynningu um sölu á byggingarrétti lóða á Hnoðraholti sem birt var á vef Garðabæjar á tímabilinu _.06-29.06.2023.
Tilboðin komu frá söluaðilum, þ.e. Torg - fasteignasölu, Garðatorg eignamiðlun og Fasteignamarkaðinum. Þá bárust umslög með tilboðum frá Miklaborg - fasteignasölu. Öll tilboð voru móttekin fyrir kl. 16:00, fimmtudaginn 29. júní 2023.
Eitt umslag með tilboði barst eftir að tilboðsfresti lauk og telst ekki gilt tilboð.
Umslögin voru opnuð og tilboðin flokkuð eftir tegundum lóða.
Tilboð í fjölbýlishúsalóðir 179
Tilboð í par/raðhúsalóðir 67
Tilboð í einbýlishúsalóðir 53
Tilboðin verða skráð, flokkuð nánar og tekin til afgreiðslu á fundi bæjarráðs þriðjudaginn 11. júlí 2023.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2212321
02
Langamýri 19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Árna Jóni Pálssyni, kt. 111290-2969, leyfi fyrir viðbyggingu og breytingu á núverandi einbýlishúsið að Löngumýri 19.
Málsnúmer 2303055
03
Sunnuvellir 4-6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingibjörgu Guðrúnu Jafetsdóttur, kt. 030760-3607, leyfi til að byggja hesthús með aðstöðu fyrir tamningar og námskeiðahaldi á lóðinni við Sunnuvelli 4-6.
Málsnúmer 2306473
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, er varðar rammahluta, Vífilsstaðaland.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er varðar rammahluta aðalskipulags fyrir Vífilsstaðaland.
Skipulagsákvæði fyrir landnotkunarreit 4.11 Íb Hnoðraholt norður (Þorraholt) hljóði svo:
Íbúðarbyggð, fjölbýlishús. Miðað við u.þ.b. 69 íbúðir/ha eða allt að 236 íbúðir.
Hámarkshæð bygginga er 5 hæðir og skal 5. hæð vera inndregin. Heimilt er að hafa bílageymslur undir fjölbýlishúsum. Frekari skilmálar skulu settir í deiliskipulagi fyrir svæðið.
Skipulagsákvæði fyrir landnotkunarreit 4.12 Íb Hnoðraholt norður hljóði svo:
Íbúðarbyggð, áhersla á fjölbreytt form íbúða, einbýli, sérbýli s.s. raðhús og fjölbýli. Miðað er við u.þ.b.23 íbúðir/ha eða allt að 280 íbúðir. Einbýli efst á holtinu. Hámarkshæð húsa er 4 hæðir og skal efsta hæð fjölbýlishúsa vera inndregin. Heimilt er að hafa bílageymslur undir fjölbýlishúsum. Frekari skilmálar skulu settir í deiliskipulagi fyrir svæðið.
Tafla 2 í kafla 4.5.1. breytist á eftirfarandi hátt.
Hnoðraholt-norður: Fjöldi íbúða 470-520 íbúðir.
Vífilsstaðaland: Fjöldi íbúða samtals 2.070-2.470.
Tillagan hefur að efni til verið kynnt við afgreiðslu á tillögum að breytingum á deiliskipulagi og hefur með því verið fullnægt skilyrðum 30. gr. skipulagslaga þar sem kveðið er á um kynningu og samráð (lýsingu og forkynningu) enda voru ekki gerðar athugasemdir hvað varðar hámarkshæð húsa eða fjölgun íbúða. Leita skal umsagnar umsagnaraðila á auglýsingartíma og óska eftir athugun Skipulagsstofnunar áður en tillaga er auglýst.
Tillaga að breytingu aðalskipulags skal auglýst samhliða breytingum á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem nær annarsvegar til svæðisins vestan Vetrarbrautar (Þorraholt) og hinsvegar til svæðisins austan Vetrarbrautar.
Málsnúmer 2302671
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir að hámarkshæð fjölbýlishúsa við Vorbraut hækki sem nemur einni inndreginni hæð en skipulagsákvæði sem sett er fram í aðalskipulagi gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.12 Íb sé að hámarki 3 hæðir. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi gerir ráð fyrir því að fjölbýlishús sunnan Vorbrautar geti verið 4 hæðir. Þá gerir tillagan ráð fyrir að bílageymslur verði heimilaðar undir fjölbýlishúsum (bílakjallari). Við þá breytingu getur íbúðum við Vorbraut 8, 10, 12, 14 og 16 fjölgað úr 9 í 12 enda eru uppfylltar kröfur um fjölda bílastæða.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.12 Íb geti verið 4 hæðir auk þess sem töflum með áætluðum íbúðafjölda í greinargerð rammahluta aðalskipulags verði breytt.
Málsnúmer 2305398
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna fjölbýlishúsalóða við Þorraholt.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða við Þorraholt aukist úr 220 í 236. Þá er einnig gert ráð fyrir að hámarkshæð hluti byggingar hækki úr 4 hæðum í 5 hæðir.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.11 Íb geti verið 5 hæðir auk þess sem töflum með áætluðum íbúðafjölda í greinargerð rammahluta aðalskipulags verði breytt.
Málsnúmer 2304192
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu við núverandi hús á lóðinni við Hagflöt 14. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Hagaflatar 12 og 16, Tjarnarflatar 1 og 2, Bakkaflatar 1 og Lindarflatar 38, 40 og 42.
Málsnúmer 2305476
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn lóðarhafa að Hraunhólum 7 um aðkomu að neðri hæð hússins frá Lynghólum.
Lagður fram tölvupóstur lóðarhafa að Hraunhólum 7, dags. 30. júní 2023 þar sem afgreiðslu skipulagsnefndar er mótmælt.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar um að synja umsókn lóðarhafa að Hraunhólum 7 um breytingu á deiliskipulagi er varðar að heimila aðkomu að lóðinni frá Lynghólum.
Málsnúmer 2304056
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis vegna lóðarinnar við Rjúpnahæð 5.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu við núverandi hús á lóðinni við Rjúpnahæð 5. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Rjúpnahæðar 2, 3, 4, 6, og 7, Nónhæðar 6.
Málsnúmer 2306193
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að endurskoðun aðalskipulags Mosfellsbæjar 2022-2040.
Lögð fram.
Málsnúmer 2206112
11
Úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2023.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja.
Garðakórinn kr. 450.000
Garðaálfar - kór eldri borgara á Álftanesi kr. 450.000
Stígamót kr. 600.000
Samtök um kvennaathvarf kr. 600.000
ADHD - samtökin kr. 300.000
Sjálfsbjörg - Samvera og súpa kr. 100.000
Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi kr. 250.000
Bjarkahlíð -miðstöð fyrir þolendur ofbeldis kr. 400.000
Kvennaráðgjöfin kr. 250.000
Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins kr. 100.000
Málsnúmer 2306576
12
Upplýsingabréf Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir íþrótta- og tómstundastarf, dags. 27.06.23.
Bæjarráð vísar bréfinu til fræðslu- og menningarsviðs og til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundaráði.
Málsnúmer 2306435
13
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi skýrslu starfshóps um úrbætur á brunavörnum í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu, dags. 23.06.23.
Lögð fram.
Málsnúmer 2306532
14
Ársskýrsla Persónuverndar 2022.
Á fund bæjarráðs kom Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögmaður og fór yfir nokkur mál í ársskýrslu Persónuverndar sem hafa verið til úrlausnar og geta varðað starfsemi sveitarfélaga.