Hagaflöt 14 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
10. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Hagaflöt 14. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækki á baklóð sem nemur áformum um viðbyggingu einbýlishússins. Ennfremur er gert ráð fyrir lengingu bílageymslu um 1,8 m á lóðarmörkum. Heildarlengd bílageymslu á lóðarmörkum verður þá 11,5 m en deiliskipulag heimilar 7,5 m.
Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir voru gerðar.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.og 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Bæjarráð Garðabæjar
04
26. (2079). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu við núverandi hús á lóðinni við Hagflöt 14. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Hagaflatar 12 og 16, Tjarnarflatar 1 og 2, Bakkaflatar 1 og Lindarflatar 38, 40 og 42.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækki á baklóð sem nemur áformum um viðbyggingu einbýlishússins. Ennfremur er gert ráð fyrir lengingu bílageymslu um 1,8 m á lóðarmörkum. Heildarlengd bílageymslu á lóðarmörkum verður þá 11,5 m en deiliskipulag heimilar 7,5 m.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Hagaflatar 12 og 16, Tjarnaflatar 1 og 2, Bakkaflatar 1 sem og Lindarflatar 38, 40 og 42.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
7. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um hugmynd að viðbyggingu sem nær út fyrir byggingarreit að vestanverðu. Lengd bílageymslu á lóðarmörkum verður lengri en deiliskipulag heimilar.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.