10. fundur
10. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
18.08.2023
Kl. 13:00 - 13:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2303468
01
Krókamýri 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð var fram umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun á húsi um 5,7 m². Þar sem að deiliskipulag Hofsstaðamýrar telst ekki í gildi var fyrirhuguð framkvæmd grenndarkynnt íbúum Fífumýri 15, Krókamýri 16, 20, 32, 34 sem og Ljósamýri 1 til og með 17. júlí í samræmi 44.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2306458
02
Bæjargil 122 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð var fram umsókn um byggingarleyfi fyrir niðurrifi á glerskála og byggingu viðbyggingar út frá stofu þar sem svalir munu koma ofan á viðbyggingu, auk þess að bæta við kvist í svefnherbergi í suðvesturhorni 2. hæðar. Þar sem að ekkert deiliskipulag liggur fyrir í hverfinu var fyrirhuguð framkvæmd grenndarkynnt íbúum að Bæjargili 94, 96, 98, 100, 102, 104, 106, 108, 110, 120 og 124 til og með 25. júlí í samræmi 44.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2304192
03
Hagaflöt 14 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Hagaflöt 14. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækki á baklóð sem nemur áformum um viðbyggingu einbýlishússins. Ennfremur er gert ráð fyrir lengingu bílageymslu um 1,8 m á lóðarmörkum. Heildarlengd bílageymslu á lóðarmörkum verður þá 11,5 m en deiliskipulag heimilar 7,5 m.
Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir voru gerðar.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.og 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2304056
04
Rjúpnahæð 5- Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis (Bæjargil 2.áf) sem nær til lóðarinnar Rjúpnahæð 5. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur byggingarreitum fyrir viðbyggingar, önnur á baklóð sem verður með sömu gólfhæð og 2.hæð húss en hin til vesturs með sömu gólfhæð og kjallari húss.
Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir voru gerðar.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Hæðahverfis (Bæjargil 2.áfangi) í samræmi við 2.mgr.43.gr.og 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2305047
05
Hraungata 42 - Tilkynning um framkvæmd
Lögð fram tilkynnning um framkvæmd við frágang á framlóð húsanna Hraungata 40 og 42.
Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar og bæjarstjórnar vegna Kinnargötu 26 (Málsnr.2108126) gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofangreinda útfærslu á bílastæði varðar þar sem að móttaki ofanvatns er innan lóðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2306378
06
Urriðaholtsstræti 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir fjarskiptaloftnet og tilheyrandi tæknibúnað á galvanhúðuðum stálrörum á suðurgafl stigahús fjölbýlishússins að Urriðaholtsstræti 22B. Búnaðurinn er til að sinna farsímaþjónustu í nærumhverfinu. Tæknibúnaður mun tengjast húsrafmagni og ljósleiðaraneti í núverandi tæknirými/inntaksrými á 1.hæð.
Umsókn vísað til umsagnar deiliskiplagshöfundar.