Beint í efni

Rjúpnahæð 5- Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2304056

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

15. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

12. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis (Bæjargil 2.áf) sem nær til lóðarinnar Rjúpnahæð 5. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur byggingarreitum fyrir viðbyggingar, önnur á baklóð sem verður með sömu gólfhæð og 2.hæð húss en hin til vesturs með sömu gólfhæð og kjallari húss.
Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir voru gerðar.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Hæðahverfis (Bæjargil 2.áfangi) í samræmi við 2.mgr.43.gr.og 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Bæjarráð Garðabæjar

04

26. (2079). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu við núverandi hús á lóðinni við Rjúpnahæð 5. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Rjúpnahæðar 2, 3, 4, 6, og 7, Nónhæðar 6.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis (Bæjargil 2.áf) sem nær til lóðarinnar Rjúpnahæð 5.
Tillagan gerir ráð fyrir tveimur byggingarreitum fyrir viðbyggingar, önnur á baklóð sem verður með sömu gólfhæð og 2.hæð húss en hin til vesturs með sömu gólfhæð og kjallari húss.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Rjúpnahæðar 2,3,4,6 og 7 sem og Nónhæð 6.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

6. fundur

Fyrirspurn er vísað til yfirstandandi vinnu við mótun deiliskipulagstillögu fyrir Hæðahverfi. (Bæjargil 2.áfangi)