Beint í efni

9. fundur

29.06.2023
Skipulagsnefnd Garðabæjar

9. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

29.06.2023

Kl. 08:00 - 10:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Baldur Ó. Svavarsson mætti til fundar kl.08.40

Dagskrá

Málsnúmer 2306473

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, breyting á rammahluta, Vífilsstaðaland

Við skoðun hefur komið í ljós að auglýst og samþykkt tillaga að breytingu deiliskipulags norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir því að hámarkshæð fjölbýlishúsa við Vorbraut hækki sem nemur einni inndreginni hæð er ekki að öllu leyti í samræmi við ákvæði aðalskipulags þar sem fram kemur að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.12 Íb er 3 hæðir. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi gerir ráð fyrir því að fjölbýlishús sunnan Vorbrautar geti verið 4 hæðir.

Einnig hefur komið í ljós að sambærilegt ósamræmi er við aðalskipulag á tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem nær til Þorraholts sem hefur verið vísað í auglýsingu. Í tillögunni er gert ráð fyrir fjölgun íbúða og að hámarkshæð húsa geti verið 5. Í aðalskipulagi sem gildir fyrir svæðið (landnotkunarreitur 4.11 íb) kemur fram að íbúafjöldi er 200 og hámarkshæð húsa 4 hæðir og er tillagan að þessu leyti ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag.

Ákvæði aðalskipulags eru sett fram í rammahluta aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 fyrir Vífilsstaðaland sem tók gildi árið 2021. Ákvæðin er að finna í töflu 3 í kafla 4.5.2. í greinargerð rammahlutans.

Í kafla 4.5.1 í greinargerð rammahlutans er sett fram áætlun um byggingarmagn þ.m.t. fjölda íbúða eftir skipulagssvæðum þar sem Hnoðraholti er gróflega skipt upp í norðurhluta og suðurhluta. Norðurhluti Hnoðraholts nær þá til landnotkunarreitanna 4.11 Íb, 4.12 Íb og 4.06 Vþ ásamt 4.05 S.

Þar sem að áætlaður fjöldi íbúða samkvæmt tillögum að breytingum á deiliskipulagi sem samþykktar hafa verið í bæjarstjórn er nú talsvert hærri en tafla 4.5.1 gerir ráð fyrir, m.a. vegna minni meðalstærð íbúða, þarf að hækka þann fjölda til samræmis.

Skipulagsstjóri leggur fram tillögu að breytingu á Rammahluta aðalskipulags Garðabæjar 2016-2023 sem nær til Vífilsstaðalands sem hér segir:

Skipulagsákvæði fyrir landnotkunarreit 4.11 Íb Hnoðraholt vestur (Þorraholt) hljóði svo:

Íbúðarbyggð, fjölbýlishús. Miðað við u.þ.b.69 íbúðir/ha eða allt að 236 íbúðir(er 200). Hámarkshæð bygginga er 5 hæðir (er 4) og skal 5. hæð vera inndregin. Heimilt er að hafa bílageymslur undir fjölbýlishúsum. Frekari skilmálar skulu settir í deiliskipulagi fyrir svæðið.

Skipulagsákvæði fyrir landnotkunarreit 4.12 Íb Hnoðraholt norður hljóði svo:

Íbúðarbyggð, áhersla á fjölbreytt form íbúða, einbýli, sérbýli s.s. raðhús og fjölbýli. Miðað er við u.þ.b.23 íbúðir/ha eða allt að 280 íbúðir (er 170). Einbýli efst á holtinu. Hámarkshæð húsa er 4 hæðir og skal efsta hæð fjölbýlishúsa vera inndregin. Heimilt er að hafa bílageymslur undir fjölbýlishúsum. Frekari skilmálar skulu settir í deiliskipulagi fyrir svæðið.

Tafla 2 í kafla 4.5.1. hljóði svo

Hnoðraholt-norður: Fjöldi íbúða 470-520 íbúðir (er 400-450)

Vífilsstaðaland: Fjöldi íbúða samtals 2.100-2.500 (er nú 2.000-2.400)

Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar í samræmi við tillögu skipulagsstjóra til auglýsingar samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Þar sem að umræddar breytingar hafa verið kynntar í formi deiliskipulagstillagna lítur skipulagsnefnd svo á að skilyrðum 30. gr. sömu laga þar sem kveðið er á um kynningu og samráð (lýsingu og forkynningu) sé fullnægt enda voru ekki gerðar athugsemdir við tillöguna hvað varðar hámarkshæð húsa eða fjölgun íbúða. Leita skal umsagnar umsagnaraðila á auglýsingartíma og óska eftir athugun Skipulagsstofnunar áður en tillaga er auglýst.

Tillaga að breytingu aðalskipulags skal auglýst samhliða breytingum á deiliskipulagi Hnoðraholts sem nær annarsvegar til svæðisins vestan Vetrarbrautar (Þorraholt) og hinsvegar til svæðisins austan Vetrarbrautar.



Málsnúmer 2302671

02

Hnoðraholt N,dsk.br. efstu hæðir ofl.

Lögð fram að nýju tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norðurhluta sem gerir ráð fyrir því að hæðafjöldi fjölbýlishúsa við Vorbraut aukist sem nemur einni hæð sem verði inndregin.

Við skoðun hefur komið í ljós að ósamræmi er við ákvæði aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 og hefur bæjarráð afturkallað deiliskipulagsbreytinguna sem búið var að samþykkja.

Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarkshæð fjölbýlishúsa við Vorbraut hækki sem nemur einni inndreginni hæð en skipulagsákvæði sem sett er fram í aðalskipulag gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.12 Íb sé að hámarki 3 hæðir. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi gerir ráð fyrir því að fjölbýlishús sunnan Vorbrautar geti verið 4 hæðir.

Skipulagsstjóri leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að bílageymslur verði heimilaðar undir fjölbýlishúsum (bílakjallari). Við þá breytingu getur íbúðum við Vorbraut 8, 10,12,14 og 16 fjölgað úr 9 í 12 þar sem að þá verður unnt að uppfylla kröfur um fjölda bílastæða.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindri breytingu til auglýsingar að nýju í samræmi við 1.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og skal hún auglýst samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.12 Íb geti verið 4 hæðir auk þess sem töflum með áætluðum íbúðafjölda í greinargerð rammahluta aðalskipulags verði breytt.

Málsnúmer 2305398

03

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholt vegna lóða við Þorraholt.

Lögð fram að nýju tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norðurhluta sem gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða við Þorraholt aukist úr 220 í 236. Einnig að hluti bygginga geti orðið allt að 5 hæðir..

Við skoðun hefur komið í ljós að ósamræmi er við ákvæði aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 og hefur bæjarráð afturkallað deiliskipulagsbreytinguna sem búið var að samþykkja að vísa í auglýsingu.

Ósamræmi við aðalskipulagsákvæði felst í því að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.11 Íb sé að hámarki 4 hæðir.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindri breytingu til auglýsingar að nýju í samræmi við 1.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og skal hún auglýst samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.11 Íb geti verið 5 hæðir auk þess sem töflum með áætluðum íbúðafjölda í greinargerð rammahluta aðalskipulags verði breytt.

Málsnúmer 2302672

04

Hnoðraholt N, dsk.br. Þorraholt 2 og 4.

Lögð fram tillaga að breytingu Hnoðraholts norðurhluta sem nær til lóðanna Þorraholt 2 og Þorraholt 4 ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.

Tillögu og innsendum athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.

Málsnúmer 2306463

05

Vetrarmýri - Deiliskipulagsbreyting

Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu kynnti hugmyndir um breytingar á deiliskipulagi Vetrarmýrar sem unnar hafa verið fyrir lóðarhafa og ná til lóðanna Vetrarbraut 1,3,5,og 7 auk bílageymslulóðanna 5b og 7b.

Vísað til frekari úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.

Málsnúmer 2203422

06

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og almenningssamgöngur

Lögð fram lýsing fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til 4.kafla greinargerðar sem tekur á stígakerfi og almenningssamgöngum ásamt ábendingum og umsögnum sem borist hafa.

Í bókun skipulagsnefndar þann 22.maí sl vegna fráveitumála mælti skipulagsnefnd með að umfjöllun um fráveitumál yrði einnig hluti af aðalskipulagsbreytingu þessari og að leitað yrði ráðgjafar vegna þeirra.

Hrönn Hafliðadóttir verkefnisstjóri skipulagsmála gerði grein fyrir framlögðum umsögnum og ábendingum og ræddi hugmyndir um kynningu á vef Garðabæjar sem verður með gagnvirkum hætti.

Umsögnum og ábendingum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 1912201

07

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 4. Stígakerfi í Upplandi

Lögð fram að lokinni auglýsingu tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Upplands Garðabæjar og skipulagssvæða þeirra deiliskipulagstillagna sem auglýstar voru samhliða. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.

Í umsögn Vegagerðar kemur fram að Flóttamannavegur (Elliðavatnsvegur) sé flokkaður sem stofnvegur í umsjá stofnunarinnar og beri að sýna hann sem slíkan á skipulagsuppdráttum. Skipulagsnefnd bendir á að dæmi eru um að tengibrautir í aðalskipulagi sveitarfélaga sé stofnvegir í umsjá Vegagerðarinnar og því sé ekki ástæða til að skilgreina Flóttamannaveg sem stofnbraut. Skipulagsnefnd leggur til að á aðalskipulagsuppdrætti og á deiliskipulagsuppdráttum þar sem að tengibrautina Flóttamannaveg er að finna skuli skilgreint 30 m breitt veghelgunarsvæði tengibrautar. Landnotkunarreitur Íb 4.13 austan Vífilsstaða minnkar sem nemur veghelgunarsvæði Flóttamannavegar.

Athugasemdir og umsagnir kalla ekki að öðru leyti á breytingar á auglýstri tillögu en framsetningu hennar hefur verið breytt í kjölfar athugunar hjá umhverfissviði og ráðgjafa.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu og lagfæringu í samræmi við 1.mgr.31.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2104420

08

Vífilsstaðahraun, deiliskipulag Fólkvangs

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.

Varðandi umsögn Umhverfisstofnunar og athugasemdir Landssamtaka hjólreiðamanna um stöðu og útfærslu stofnstígs í gegnum fólkvang Vífilsstaðahrauns samhliða Reykjanesbraut þá lítur nefndin svo á að stofnstígurinn þjóni sama hlutverki og stofnstígur handan Reykjanesbrautar í fólkvangi Garðahrauns efra, þ.e. að bæði gangandi og hjólandi vegfarendum sé heimil för. Hinsvegar vísar skipulagsnefnd því til umhverfissviðs að við mótun deiliskipulags Reykjanesbrautar sem stefnt er að þá verði gert ráð fyrir sérstökum hjólreiðastíg (samgöngustíg) þétt upp við brautina sem þjóni þeim hjólreiðamönnum sem þurfi að komast leiðar sinnar með hraði.

Sú lega stofnstígsins sem fram kemur á deiliskipulagsuppdrætti hefur verið valin af kostgæfni í kjölfar skoðunar Umhverfisstofnunar, ráðgjafa og umhverfissviðs en ljóst er að við hönnun og framkvæmd verður farið enn nánar ofan í saumana með það að markmiði að laga stíginn að viðkvæmri ásýnd og náttúru hraunsins.

Í umsögn Vegagerðar kemur fram að Flóttamannavegur (Elliðavatnsvegur) sé flokkaður sem stofnvegur í umsjá stofnunarinnar og beri að sýna hann sem slíkan á skipulagsuppdráttum. Skipulagsnefnd bendir á að dæmi eru um að tengibrautir í aðalskipulagi sveitarfélaga séu stofnvegir í umsjá Vegagerðarinnar og því sé ekki ástæða til að skilgreina Flóttamannaveg sem stofnbraut. Skipulagsnefnd leggur til að á aðalskipulagsuppdrætti og á deiliskipulagsuppdráttum þar sem að tengibrautina Flóttamannaveg er að finna skuli skilgreint 30 m breitt veghelgunarsvæði tengibrautar.

Skipulagsnefnd telur að hvorki umsagnir né athugasemdir sem borist hafa kalli að öðru leyti á breytingu á auglýstri tillögu.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem deiliskipulag Vífilsstaðahrauns, Vatnsmýrar og Maríuhella í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2009538

09

Útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum - nýtt deiliskipulag

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.

Vegna athugsemda hestamannafélaganna Spretts og Sörla vill skipulagsnefnd taka fram að nefndin telur að ástæða sé til að finna legu fyrir reiðstíg sem tengir reiðstíg undir Vífilsstaðahlíð við hestamannasvæði Sörla sem komi í stað þeirrar reiðvegatengingar meðfram Flóttamannavegi sem nú er felld út úr skipulagi. Eins og fram hefur komið náðist ekki samkomulag við landeigendur Setbergs um þá tengingu. Óskum hestamannafélaganna er vísað til yfirstandandi vinnu við endurskoðun á framsetningu stígakerfis í aðalskipulagi Garðabæjar.

Tillaga að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs hefur verið kynnt samhliða deiliskipulagstillögunni og fyrir liggur ósk Umhverfisstofnunar eftir samþykki Garðabæjar á henni. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti þá friðlýsingu.

Samkomulag hefur náðst um stafestingu á landamerkjum Vífilsstaða og Urriðakots og falla mörk friðlýsingar og deiliskipulags Urriðavatnsdala og Heiðmerkur nú að þeim mörkum. Liggja mörkin að mestu leyti í legu núverandi stofnstígs undir Vífilsstaðahlíð.

Vegna umsagnar Landsnets er eftirfarandi ákvæðum bætt við í kafla 4.15 í greinargerð tillögunnar. „Hafa skal samráð við Landsnet um allar framkvæmdir í grennd við raflínur og mannvirki tengd þeim. Háspennulínur eru á vegum Landsnets sem fer með öll málefni sem þær varðar. Upplýsa skal Landsnet ef vinna er fyrirhuguð nærri spennuhafa háspennulínu og ekki má hefja vinnu nálægt flutningsvirki í rekstri nema fyrir liggi heimild frá fyrirtækinu. Sérstaka aðgát skal hafa við vinnu nærri eða undir spennuhafa háspennulína og tryggja skal að framkvæmdir ógni ekki afhendingaröryggi rafmagns."

Helgunarsvæði raflína er þar að auki bætt við á deiliskipulagsuppdrátt og texti í kafla 4.15 uppfærður m.t.t. helgunarsvæðis.

Vegna athugasemdar Skógræktarinnar er eftirfarandi bætt við kafla 4.8. í greinargerð:Taka skal mið af 19. gr. laga um skóga og skógrækt nr. 33/2019 sem fjallar um varanlega eyðingu skóga, áður en framkvæmdir við stígagerð og/eða lagningu golfbrauta hefjast.

Skipulagsnefnd telur að hvorki umsagnir né athugasemdir sem borist hafa kalli að öðru leyti á breytingu á auglýstri tillögu.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri textabreytingu í greinargerð sem deiliskipulag Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag Golfvallar í Urriðavatnsdölum sem staðfest var af Skipulagsstjóra ríkisins þann 15.desember 1992.

Málsnúmer 2009650

10

Áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns

Lögð fram tillaga að friðlýsingarskilmálum og uppdrætti fólkvangs í Urriðakotshrauni sem kynntur hefur verið samhliða tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til sama svæðis. Kynning tillögunnar hefur verið í höndum Umhverfisstofnunar í samræmi við lög um náttúruvernd.

Einnig lagt fram erindi Umhverfisstofnunar þar sem fram kemur ósk stofnunarinnar fyrir samþykki Garðabæjar á tillögunni.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og fagnar þeim merkilega áfanga að nú hefur því markmiði verið náð sem bæjarstjórn Garðabæjar hefur stefnt að frá árinu 2006 að friðlýsa Búrfellshraun frá gýg til strandar.

Málsnúmer 2210531

11

Heiðmörk, breyting deiliskipulags. Reiðstígar og deiliskipulagsmörk.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.

Varðandi athugasemdir hestamannafélaganna Spretts og Sörla þá bendir skipulagsnefnd á að deiliskipulag Heiðmerkur gerir ráð fyrir reiðstígum sem hafa ekki enn verið lagðir og því er beint til umhverfissviðs að huga að framkvæmd þeirra.

Í athugasemdum Skógræktarfélags Garðabæjar er gerð athugasemd við legu lóðar og byggingarreits fyrir aðstöðu félagsins undir Sandahlíð. Skipulagsstjóri og deiliskipulagshöfundur leggja til nýja legu við mörk skógræktarsvæðis og hesthúsabyggðar sem hefur verið unnin í samráði við stjórn skógræktarfélagsins. Skipulagsnefnd er samþykk þeirri breytingartillögu.

Vegna umsagnar Landsnets er eftirfarandi ákvæðum bætt við kafla 4.11 greinargerðar deilskipulagsins: “Háspennulínur eru á vegum Landsnets sem fer með öll málefni sem þær varðar. Upplýsa skal Landsnet ef vinna er fyrirhuguð nærri spennuhafa háspennulínu og ekki má hefja vinnu nálægt flutningsvirki í rekstri nema fyrir liggi heimild frá fyrirtækinu. Sérstaka aðgát skal hafa við vinnu nærri eða undir spennuhafa háspennulína og tryggja skal að framkvæmdir ógni ekki afhendingaröryggi rafmagns." Færa skal inn legu og helgunarsvæði Hamraneslínu á deiliskipulagsuppdrátt til samræmis við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030.

Samkomulag hefur náðst um stafestingu á landamerkjum Vífilsstaða og Urriðakots og falla mörk friðlýsingar og deiliskipulags Urriðavatnsdala og Heiðmerkur nú að þeim mörkum. Liggja mörkin að mestu leyti í legu núverandi stofnstígs undir Vífilsstaðahlíð.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2210532

12

Urriðaholt austurhluti, breyting deiliskipulags, reiðstígur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta að lokinni auglýsingu sem gerir ráð fyrir því að reiðstígur sem skilgreindur er meðfram Flóttamannavegi verði felldur út. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.

Í umsögn Vegagerðar kemur fram að Flóttamannavegur (Elliðavatnsvegur) sé flokkaður sem stofnvegur í umsjá stofnunarinnar og beri að sýna hann sem slíkan á skipulagsuppdráttum. Skipulagsnefnd bendir á að dæmi eru um að tengibrautir í aðalskipulagi sveitarfélaga sé stofnvegir í umsjá Vegagerðarinnar og því sé ekki ástæða til að skilgreina Flóttamannaveg sem stofnbraut. Skipulagsnefnd leggur til að á aðalskipulagsuppdrætti og á deiliskipulagsuppdráttum þar sem að tengibrautina Flóttamannaveg er að finna skuli skilgreint 30 m breytt veghelgunarsvæði tengibrautar.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2302240

13

Flóttamannavegur - Deiliskipulagbreyting Urriðaholt norðurhluti 4.áfangi

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 4.áfanga að lokinni auglýsingu sem gerir ráð fyrir því að reiðstígur sem skilgreindur er meðfram Flóttamannavegi verði felldur út og að undirgöng fyrir stofnstíg verði undir Flóttamannaveg. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.

Í umsögn Vegagerðar kemur fram að ekki sé gerð athugsemd við undirgögn undir Flóttamannaveg. Einnig er bent á í umsögninni að Flóttamannavegur (Elliðavatnsvegur) sé flokkaður sem stofnvegur í umsjá stofnunarinnar og beri að sýna hann sem slíkan á skipulagsuppdráttum. Skipulagsnefnd bendir á að dæmi eru um að tengibrautir í aðalskipulagi sveitarfélaga sé stofnvegir í umsjá Vegagerðarinnar og því sé ekki ástæða til að skilgreina Flóttamannaveg sem stofnbraut. Skipulagsnefnd leggur til að á aðalskipulagsuppdrætti og á deiliskipulagsuppdráttum þar sem að tengibrautina Flóttamannaveg er að finna skuli skilgreint 30 m breytt veghelgunarsvæði tengibrautar.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4.áfanga í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2305185

14

Reiðvegamál í upplandi Garðabæjar.

Lagt fram erindi Hestamannafélagsins Spretts um reiðvegamál í Upplandi Garðabæjar.

Erindi vísað til umhverfissviðs og yfirstandandi vinnu við endurskoðun á stígakerfi í aðalskipulagi Garðabæjar (4.kafli greinargerðar).

Málsnúmer 2304056

15

Rjúpnahæð 5- Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis (Bæjargil 2.áf) sem nær til lóðarinnar Rjúpnahæð 5.

Tillagan gerir ráð fyrir tveimur byggingarreitum fyrir viðbyggingar, önnur á baklóð sem verður með sömu gólfhæð og 2.hæð húss en hin til vesturs með sömu gólfhæð og kjallari húss.

Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum Rjúpnahæðar 2,3,4,6 og 7 sem og Nónhæð 6.

Málsnúmer 2305476

16

Hraunhólar 7 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn eiganda íbúðar á neðri hæð að Hraunhólum 7 um það hvort heimiluð yrði aðkoma fyrir akandi umferð að lóðinni frá Lynghólum sem auðveldaði aðgengi að íbúð á neðri hæð. Yrði þá gert ráð fyrir bílastæði innan lóðar.

Svar skipulagsnefndar: Fyrirspurn þessa efnis hefur verið til umfjöllunar hjá skipulagsyfirvöldum í Garðabæ áður. Skipulagsnefnd mælir ekki með því að aðkoma verði frá Lynghólum enda hefur deiliskipulag Hraunsholts eystra gert ráð fyrir því að aðkoma og bílastæði séu Hraunhólamegin. Íbúar við Lynghóla hafa komið því á framfæri við umhverfissvið að andstaða sé í þeirra hópi við aðkomu að lóðinni þeim megin.

Svar skipulagsnefndar er því neikvætt.

Málsnúmer 2304192

17

Hagaflöt 14 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækki á baklóð sem nemur áformum um viðbyggingu einbýlishússins. Ennfremur er gert ráð fyrir lengingu bílageymslu um 1,8 m á lóðarmörkum. Heildarlengd bílageymslu á lóðarmörkum verður þá 11,5 m en deiliskipulag heimilar 7,5 m.

Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum Hagaflatar 12 og 16, Tjarnaflatar 1 og 2, Bakkaflatar 1 sem og Lindarflatar 38, 40 og 42.

Málsnúmer 2210617

18

Gilsbúð 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi sem vísað var til grenndarkynningar ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.

Í athugasemdum kemur fram að starfsemi athafnasvæðisins er farin að valda álagi á aðliggjandi íbúðarbyggð, bæði vegna umfangs bygginga og umferðarálags (bílastæða).

Skipulagsnefnd vísar málinu til yfirstandandi vinnu við endurskoðun deiliskipulags Iðnbúðar og Smiðsbúðar og Bæjargils. Skoða skal sérstaklega hvernig stuðla megi að sátt á milli íbúðarbyggðar og athafnasvæðis.

Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 2305173

19

Keldugata 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem fram kemur að lóðarhafi hyggst sækja um stækkun lóðar út að grænu svæði. Lögð fram umögn deiliskipulagshöfundar þar sem að lagt er til að lóðarhafi geri betur grein fyrir því hvernig hann hyggist ganga frá lóðarmörkum. Skipulagsnefnd tekur undir umsögnina.

Sækja þarf um breytingu deiliskipulags og ganga frá samkomulagi við bæjaryfirvöld um kaup á því landi sem bætist við lóðina ef fallist verður á deiliskipulagsbreytinguna.

Málsnúmer 2303319

20

Urriðaholtsstræti 48 - Skjólveggur og pallur

Lögð fram umsókn lóðarhafa um gerð skjólveggja sem eru hærri en deiliskipulag gerir ráð fyrir.

Umsögn deiliskipulagshöfundar lögð fram þar sem að fram kemur að jarðvegsmön sú sem að útbúin hefur verið á grænu opnu svæði við Lindarstræti eigi sér ekki stoð í deiliskipulagi. Umrædd jarðvegsmön er ástæða þess að lóðarhafi sækir um að gera skjólvegg sem er ekki í samræmi við deiliskipulag.

Skipulagsnefnd óskar eftir útskýringu umhverfissviðs, framkvæmdaraðila og eftirlitsaðila á því að jarðvegsmön þessi var gerð án þess að stoð væri fyrir henni í deiliskipulagi.

Málsnúmer 2210509

21

Dreyravellir 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lögð umsókn um breytingu deiliskipulags Kjóavalla þar sem gert verði ráð fyrir að hluti húss geti orðið tveggja hæða svo unnt sé að útbúa setustofu og kaffistofu á efri hæð. Heimilt yrði að hækka hámarkshæð og breyta gerð þaks.

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir því að skipulagsráðgjafi vinnur að mótun tillögu sem ætlað er að auka svigrúm hesthúseigenda í Andvarahverfi til þess að útbúa kaffistofur á efri hæð en standa um leið vörð um svipmót hesthúsa.

Kvistir hafa verið útbúnir að Dreyravöllum 3, Fluguvöllum 4 og Andvaravöllum 3. Voru umsóknir grenndarkynntar í tveimur tilfellum en að Dreyravöllum 3 var umsókn samþykkt án undangenginnar grenndarkynningar.

Skipulagsnefnd telur að það sé talsverður munur á útfærslu framlagðra uppdrátta að Dreyravöllum 5 heldur en í hinum tillögunum þar sem að ekki er um kvist að ræða heldur aðra hæð.

Skipulagsnefnd er ekki reiðubúin að vísa tillögunni með þessari útfærslu til grenndarkynningar.

Málsnúmer 1902106

22

Friðlýsingar - samstarf við Umhverfisstofnun

Skipulagsnefnd telur ástæðu til að lýsa ánægju með samþykkt bæjarstjórnar um friðlýsingu Bessastaðanes sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 15. júní 2023. Í bókun bæjarstjórnar kemur fram að samþykktin er í samræmi við 49. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Friðlýsingarskilmálar hafa verið unnir á vegum Umhverfisstofnunar í samstarfi við embætti forseta Íslands, Garðabæ, forsætisráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Minjastofnun Íslands.

Málsnúmer 2306192

23

Græni stígurinn - frumgreining til umsagnar

Skipulagsnefnd Garðabæjar styður heilshugar áætlanir um Græna stíginn og lýsir yfir ánægju með þá frumgreiningu sem lögð er fram. Nefndin bendir á að Garðabær gerir ráð fyrir stígnum í öllum þeim skipulagsáætlunum í Garðabæ sem hann varða.

Málsnúmer 2306193

24

Aðalskipulag Mosfellsbæjar 2022-2040 - Heildarendurskoðun

Lögð fram tillaga að Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2022-2040 sem er á vinnslustigi (forkynningarstigi)

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna á þessu stigi.

Málsnúmer 2305492

25

Ályktun um greiðar , vistvænar og öruggar samgöngur milli höfuðborgarsvæðis og Suðurnesja

Ályktun um greiðar, vistvænar og öruggar samgöngur milli höfuðborgarsvæðis Suðurnesja lögð fram. Ályktunin er undirrituð þann 12.maí sl af formanni svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins og formanni svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja.

Skipulagsnefnd Garðabæjar tekur heilshugar undir ályktunina.

Málsnúmer 2306018F

26

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 7

26.1 - 2304158 - Kumlamýri 1- Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir parhúseingarinnar Kumlamýri 1 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Með vísan í umsögn þá bendir skipulagsstjóri á að hávaxinn gróður meðfram lóðarmörkum eins og hann er sýndur á framlögðum útlitsuppdráttum er ekki í samræmi við deiliskipulag en þar segir m.a. í grein 5.3.13. í greinargerð að á þeim hluta lóðar sem snýr að opnum svæðum skuli aðeins gera ráð fyrir runnagróðri. Því skal annaðhvort breyta útlitsteikningu eða sækja um breytingu deiliskipulags hvað þetta ákvæði varðar.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar varðandi útfærslu á hæð langveggja og heildarstærð þá gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað þessi atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

26.2 - 2304157 - Kumlamýri 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir parhúseingarinnar Kumlamýri 3 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Með vísan í umsögn þá bendir skipulagsstjóri á að hávaxinn gróður meðfram lóðarmörkum eins og hann er sýndur á framlögðum útlitsuppdráttum er ekki í samræmi við deiliskipulag en þar segir m.a. í grein 5.3.13. í greinargerð að á þeim hluta lóðar sem snýr að opnum svæðum skuli aðeins gera ráð fyrir runnagróðri. Því skal annaðhvort breyta útlitsteikningu eða sækja um breytingu deiliskipulags hvað þetta ákvæði varðar.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar varðandi útfærslu á hæð langveggja og heildarstærð þá gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað þessi atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

26.3 - 2303468 - Krókamýri 18 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun á húsi um 5,7 m2. Þar sem að deiliskipulag Hofstaðamýrar telst ekki í gildi þar sem það var samþykkt í bæjarstjórn áður en að fyrsta aðalskipulag Garðabæjar hafði tekið gildi hlýtur umsókn um byggingarleyfi ferli í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar samkvæmt ofangreindri lagagrein. Grenndarkynna skal eigendum Fífumýrar 15, Krókamýrar 16, 20, 32, 34 sem og Ljósamýrar 1.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

26.4 - 2304306 - Mávanes 17 - Gróðurhús

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávanes 17 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir smáhýsi (gróðurhús) sem er 15 fermetrar að grunnfleti eða 9 fermetrum meira en deiliskipulag Arnarness gerir ráð fyrir, 2,7 m að hæð sem er 50 cm hærra en deiliskipulag gerir ráð fyrir og nær lóðarmörkum en 3 metrar eins og deiliskipulag gerir ráð fyrir. Þar sem að undirritað samþykki þeirra sem grenndarkynning náði til lá fyrir (hús við Mávanes nr. 15,16,18,19 og 20) var tími hennar styttur sem því nemur sbr. 2.ml.3.mgr. sömu greinar. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast í því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

26.5 - 2303319 - Urriðaholtsstræti 48 - Skjólveggur og pallur

Lögð fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir stækka palla og skjólgirðing í Urriðaholtsstræti 45-58. Lögð er fram umsögn deiliskipulagshöfundar. Þar kemur m.a. fram að jarðvegsmön utan lóðar meðfram Lindastræti á sér ekki stoð í deiliskipulagi. Umsækjandi vísar til hæðar jarðvegsmanar þegar óskað er eftir hærri girðingu/skjólvegg en deiliskipulagi heimilar.
Fyrirspurn vísað til skipulagsnefndar.

26.6 - 2305255 - Keldugata 12 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn húsbyggjanda um að breyta yfirborðsefni á bílastæðum samkvæmt lóðarskilmálum úr grassteini í malbik.
Lögð fram umsögn deiliskiplagshöfundar þar sem ekki er gerð athugasemd við að aksturssvæði við yfirbyggt bílastæði sé malbikað og yfirborðsvatni veitt að grænum svæðum á lóð.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað yfirborðsefni bifreiðastæðis varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

26.7 - 2305173 - Keldugata 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem sótt er um að stækka lóðina til norðurs inn á grænt svæði við hlið lóðar. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem segir að lóðarhafi hafi steypt vegg út fyrir lóðamörk og óskar eftir að lóðin verði stækkuð sem því nemur. Töluverður hæðarmismunur er í götu og er steyptur stoðveggur á lóðamörkum ekki í samræmi við deiliskipulagsskilmála sem gerir ráð fyrir limgerði eða runnagróðri á lóðamörkum að götu en ekki stoðvegg. Girðingar á lóðamörkum skulu heldur ekki vera hærri en 0,9 m og gegnsæi þeirra skal aldrei vera minn en 50% en umræddur veggur uppfyllir hvorugt. Frágangur lóðarhafa er því ekki í samræmi við deiliskipulagskilmála jafnvel þótt lóð sé stækkuð þannig að steyptur veggur verði á lóðamörkum. Lóðarhafi hefur enn ekki gengið frá horni lóðarinnar þar sem bil myndast milli stoðveggja.
Skipulagsstjóri leggur til að lóðarhafi geri betur grein fyrir hvernig hann hyggist ganga frá lóð á lóðamörkum að grænu svæði þar sem gengið er frá fláa milli tveggja stoðveggja með möl.
Minnt er á að flái með grasi eða gróðri skal ekki vera brattari en 1:2 og skal grjóthlaðinn flái ekki bera brattari en 1:1,5. Öll stöllun lóðar skal gerð innan lóðarmarka.

26.8 - 2306272 - Sunnuvellir 4 og 6, dsk br sameining lóða

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Kjóavalla sem gerir ráð fyrir því að hesthúslóðirnar Sunnuvellir 4 og Sunnuvellir 6 sameinist í eina lóð Sunnuvellir 4-6.
Byggingarreitirnir eru tengdir með byggingarreit fyrir tengibyggingu samkvæmt deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Kjóavalla í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010.
Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að deiliskipulagsbreytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2305019F

27

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 6

27.1 - 2305337 - Sveinskot (Víðiholt 1-3) - Umsókn um byggingarleyfi

Framlagðir aðaluppdrættir eru í samræmi við gildandi deiliskipulag íbúðarbyggðar við Víðiholt. Sækja þarf sérstaklega um byggingarleyfi fyrir djúpgáma sem verða staðsettir á sameignarlóða meðfram götu.

27.10 - 2304054 - Brekkubyggð 50 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn eigenda raðhússins að Brekkubyggð 50 um hugsanlega viðbyggingu.
Í gildi er breyting deiliskipulags Brekkubyggðar frá árinu 2003 sem gerir ráð fyrir því að hægt sé að reisa allt að 25 m2 viðbyggingu á vesturhluta lóðar innan skilgreinds byggingarreits. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir slíkri framkvæmd og samþykki annarra húseigenda í sömu raðhúslengju. Ekki er þörf að deiliskipulagsferli á meðan að byggingarleyfisumsókn er innan ákvæða deiliskipulagsbreytingar frá 2003.

27.11 - 2304174 - Haustakur 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Með vísan í samþykki Garðabæjar og veggi og girðingar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að skjólveggir á lóð séu allt að 1,8 m ef þeir eru 30 cm eða lengra frá lóðarmörkum að Miðökrum þannig og gróðursett í bil á milli skjólveggjar og gangstéttar .t.d. runnagróður. Skjólveggir sem snúa að Haustakri skulu þó vera í a.m.k. 60 cm frá lóðarmörkum ef þeir eru 1,8 m háir en æskilegra væri að þeir séu lægri vegna götumyndar.

27.12 - 2304306 - Mávanes 17 - Gróðurhús

Lögð fram umsókn lóðareiganda Mávaness 17 um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir smáhýsi (gróðurhús) sem er 15 fermetrar að grunnfleti eða 9 fermetrum meira en deiliskipulag Arnarness gerir ráð fyrir, 2,7 m að hæð sem er 50 cm hærra en deiliskipulag gerir ráð fyrir og nær lóðarmörkum en 3 metrar eins og deiliskipulag gerir ráð fyrir.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Þar sem að undirritað samþykki þeirra sem grenndarkynning nær til liggur fyrir (hús við Mávanes nr. 15,16,18,19 og 20) er tími hennar styttur sem því nemur sbr. 2.ml.3.mgr. sömu greinar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

27.13 - 2303517 - Þorraholt 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir frá Nordic-arkitektum af fjölbýlishúsinu Þorraholt 1, matshlutar 1, 2 og 3. Umsögn deiliskipulagshöfundar íbúðarbyggðar í Þorraholti liggur fyrir og þar kemur fram að byggingin samræmist ákvæðum gildandi deiliskipulags.
Í byggingarlýsingu er ekki tekið fram sérstaklega hvort matshlutar séu í mismundandi litum en skipulagsstjóri lýtur svo á að það sé markmið deiliskipulags að stuðla að yfirbragði fjölbreytileika í íbúðarbyggð við Þorraholt í litavali. Því skulu matshlutar vera í mismunandi litum.
Skipulagsstjóri gerir að öðru leyti ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt hvað skipulagsþátt byggingarinnar varðar.

27.14 - 2303319 - Urriðaholtsstræti 48 - Skjólveggur og pallur

Fyrirspurn um skjólvegg vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.

27.15 - 2303054 - Kinnargata 33 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem sótt er um að breyta notkun bílgeymslu þannig að hluti bílgeymslu verði geymsla með beinu aðgengi frá íbúð en fremsti hluti bílgeymslu verði tækjarými. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem svar er að ekki er heimilt að breyta bílgeymslu með þeim hætti að ekki sé hægt að koma fyrir bifreið.
Byggð í Urriðaholti er þétt og fjöldi bílastæða er takmarkaður. Skipulagsstjóri gerir því athugasemd við að byggingarleyfi sé veitt fyrir uppskiptingu bílageymslu sem minnkar pláss fyrir bifreiðar á lóðinni. Fordæmisgildi veitingar byggingarleyfisins gæti haft mikil áhrif á deiliskipulag í Urriðaholti.

27.16 - 2305255 - Keldugata 12 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn hönnuðar um að breyta yfirborðsefni á bílastæðum samkvæmt lóðarskilmálum úr grassteini í malbik.
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

27.17 - 2305173 - Keldugata 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Umsókn um lóðarstækkun vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

27.18 - 2304122 - Súlunes 21 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem að gert er ráð fyrir tveimur íbúðum í einbýlishúsinu að Súlunesi 21.
Deiliskipulag kveður á um að íbúðir einbýlishúsa skulu ávallt vera óskiptar eignir. Í deiliskipulagi er ekki kveðið sérstaklega á um aukaíbúðir en ekki er almennt gerð athugasemd við þó að hluti húss sé leigður út, annaðhvort sem herbergi eða íbúð.
Umsóknin sýnir hinsvegar tvær aðskildar íbúðir í húsinu og stangast það því á við ákvæði deiliskipulag. Því þarf að gera ráð fyrir að innangengt sé á milli hæða. Að öðrum kosti þarf að sækja um deiliskipulagsbreytingu þar sem óskað eru eftir að skipta einbýlishúsinu upp í tvær íbúðir. Þannig umsóknum hefur yfirleitt verið hafnað.

27.19 - 2302114 - Sunnuvellir 8B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lögð fram byggingaleyfisumsókn um hesthús á lóðinni Sunnuvellir 8B. Með vísan í framlagða umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis. Tryggja þarf að taðþrær á lóðum séu lokaðar.

27.2 - 2304299 - Vesturtún 39 - Tilkynning um framkvæmdir

Lögð fram fyrirspurn um girðingar í kringum lóð Vesturtún 39. Hæð girðingar að opnu svæði og aðliggjandi stíg er 1,5 m og er því í samræmi við samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar. Uppbrot vantar þó eins og bent er á í samþykkt Garðabæjar. Ekki er fallist á að girðing á lóðarmörkum meðfram götu sé hærri en 1,2 m eins og kveðið er á um í fyrrgreindri samþykkt. Einnig þarf að brjóta upp hornið sem myndast við horn girðingar að göngustígs svo ekki skyggi á sjónlínu.

27.20 - 2302108 - Sunnuvellir 8A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lögð fram byggingaleyfisumsókn um hesthús á lóðinni Sunnuvellir 8A. Með vísan í framlagða umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis. Tryggja þarf að taðþrær á lóðum séu lokaðar.

27.21 - 2303393 - Æsuvellir 11- Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingaleyfisumsókn um hesthús að Æsuvöllum 11. Með vísan í framlagða umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis.

27.22 - 2303055 - Sunnuvellir 4-6 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingaleyfisumsókn um hesthús að Sunnuvöllum 4-6. Með vísan í framlagða umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis.

27.3 - 2305276 - Klukkuholt 4 og 6 - samkomulag um frágang á lóðamörkum

Lagt fram undirritað samkomulag eigenda lóðanna um frágang og útfærslu girðingar á lóðamörkum og smáhýsa á báðum lóðum. Samkvæmt samkomulagi er girðing um 1,6 m að hæð en hluti hennar allt að 1,85 m. Samkomulag gerir ráð fyrir að á lóðinni Klukkuholt 6 sé útigeymsla 8,5 m2 að grunnfleti og 2,4 m að hæð (þegar reist) og á lóðinni KLukkuholt 4 sé útigeymsla um 10,5 m2 að grunnfleti og 2,3 m að hæð.
Hæð girðingar og flatarmál smáhýsis víkur lítillega frá gildandi deiliskipulagi; Breiðamýri og norðanvert Sviðholt.
Skipulagsstjóri metur samkomulagið sem óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Í samræmi við 2.ml. 3.mgr. 44.gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en viðkomandi lóðarhafa og Garðabæjar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

27.4 - 2305443 - Steinprýði 13 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir íbúðarhúss á lóðinni Steinprýði 13. Uppdrættir eru í samræmi við deiliskipulag Garðahrauns. Þess skal gætt við útfærslu palls í inngarði að hann lagi sig að þeim hraunmyndunum sem þar er að finna eins og deiliskipulag kveður á um.

27.5 - 2305285 - Furuás 3 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn eigenda Furuáss 3 um útfærslu stoðveggja við lóðarmörk að götu. Fyrirspurn fylgir lóðarteikning. Samþykki nágranna liggur fyrir.
Með vísan í samþykkt Garðabæjar og veggi og girðingar gerir skipulagsstjóri, fyrir hönd Garðabæjer, ekki athugasemd við útfærslu stoðveggjar en þar sem stoðveggur er hærri en 80 cm skal þess gætt að runnagróður ofan veggjar tryggi fallvörn.

27.6 - 2305266 - Sunnuflöt 13 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á bílastæði við Sunnuflöt 13. Lóðin er á horni Sunnuflatar og Brúarflatar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærslu bílastæðis en eins og fram kemur í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar þá skal gæta að sjónlínum við innkeyrslu og horn og er það gert með því að gæta þess að hæð girðinga og gróðurs dragi ekki úr öryggi vegfarenda. Athygli er vakin á útloftunartúðum hitaveitu og ljósastaur sem liggja munu nærri innkeyrslu samkvæmt útfærslu.
Fjölgun bílastæða á lóð um eitt bílastæði er metin sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Í samræmi við 2.ml. 3.mgr. 44.gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

27.7 - 2211471 - Þórsgrund - Ægisgrund - óveruleg deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að götuheiti breytist. Gert er ráð fyrir því að gatan frá hringtorgi við Vífilsstaðaveg að gatnamótum Stóráss, Marargrundar og Njarðargrundar heiti Þórsgrund.
Skipulagsstjóri metur samkomulagið sem óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Í samræmi við 2.ml. 3.mgr. 44.gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en Garðabæjar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

27.8 - 2303388 - Ásbúð 49 skjólveggir - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu lóðar og fylgir henni lóðaruppdráttur. Þar koma m.a. fram hæðir skjólveggja og girðinga.
Með vísan í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar gerir skipulagsstjóri, fyrir hönd Garðabæjar, ekki athugsemd við hæðir skjólveggja á lóð sem snúa að götu. Varðandi kvaðir um lagnir á lóð og gerð palla gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við útfærsluna enda hefur Vatnsveitu Garðabæjar verið kynnt hugmyndin og var ekki gerð athugasemd við útfærsluna.

27.9 - 2304055 - Fífumýri 15 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi um bílageymslu á lóð. Samanlagður botnflötur íbúðarhúss og bílageymslu er 190 m2 en samkvæmt því deiliskipulagi sem íbúðarbyggð í Hofstaðamýri byggir á skal samanlagður botnflötur íbúðarhúss og bílageymslu ekki vera meiri en 150 m2. Deiliskipulagið gerði einnig ráð fyrir tvöfaldri bílageymslu en umsókn gerir ráð fyrir einfaldri bílageymslu sem verður tengd íbúðarhúsi með anddyrisbyggingu.
Þar sem að deiliskipulag Hofstaðamýrar telst ekki í gildi þar sem það var samþykkt í bæjarstjórn áður en að fyrsta aðalskipulag Garðabæjar hafði tekið gildi hlýtur umsókn um byggingarleyfi ferli í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar samkvæmt ofangreindri lagagrein. Grenndarkynna skal eigendum Fífumýrar 12, 13 og 14, Krókamýrar 13,16 18 og 20 sem og Ljósamýrar 1 og 3.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.