Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
28. (2081). fundur
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. júní 2023, um deiliskipulag fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun Urriðavallar um 9 holur, sem fer að hluta inn í gróðurlægð í Urriðakotshrauni, og nýjum útivistarstígum. Samhliða gerð deiliskipulagsins er unnið að því að friðlýsa Urriðakotshraun sem fólkvang og verður hluti golfvallarins innan fólkvangsins.
Tillagan var auglýst 9. febrúar 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. maí 2023. Athugasemdir og umsagnir við tillögurnar voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 22. maí 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir.
Vegna umsagnar Landsnets er eftirfarandi ákvæðum bætt við í kafla 4.15 í greinargerð tillögunnar. „Hafa skal samráð við Landsnet um allar framkvæmdir í grennd við raflínur og mannvirki tengd þeim. Háspennulínur eru á vegum Landsnets sem fer með öll málefni sem þær varðar. Upplýsa skal Landsnet ef vinna er fyrirhuguð nærri spennuhafa háspennulínu og ekki má hefja vinnu nálægt flutningsvirki í rekstri nema fyrir liggi heimild frá fyrirtækinu. Sérstaka aðgát skal hafa við vinnu nærri eða undir spennuhafa háspennulína og tryggja skal að framkvæmdir ógni ekki afhendingaröryggi rafmagns." Helgunarsvæði raflína er þar að auki bætt við á deiliskipulagsuppdrátt og texti í kafla 4.15 uppfærður m.t.t. helgunarsvæðis. Vegna athugasemdar Skógræktarinnar er eftirfarandi bætt við kafla 4.8. í greinargerð: „Taka skal mið af 19. gr. laga um skóga og skógrækt nr. 33/2019 sem fjallar um varanlega eyðingu skóga, áður en framkvæmdir við stígagerð og/eða lagningu golfbrauta hefjast.“
Athugasemdir og umsagnir kalla ekki að öðru leyti á breytingar á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarráðs auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag Golfvallar í Urriðavatnsdölum sem staðfest var af Skipulagsstjóra ríkisins þann 15. desember 1992.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
9. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.
Vegna athugsemda hestamannafélaganna Spretts og Sörla vill skipulagsnefnd taka fram að nefndin telur að ástæða sé til að finna legu fyrir reiðstíg sem tengir reiðstíg undir Vífilsstaðahlíð við hestamannasvæði Sörla sem komi í stað þeirrar reiðvegatengingar meðfram Flóttamannavegi sem nú er felld út úr skipulagi. Eins og fram hefur komið náðist ekki samkomulag við landeigendur Setbergs um þá tengingu. Óskum hestamannafélaganna er vísað til yfirstandandi vinnu við endurskoðun á framsetningu stígakerfis í aðalskipulagi Garðabæjar.
Tillaga að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs hefur verið kynnt samhliða deiliskipulagstillögunni og fyrir liggur ósk Umhverfisstofnunar eftir samþykki Garðabæjar á henni. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti þá friðlýsingu.
Samkomulag hefur náðst um stafestingu á landamerkjum Vífilsstaða og Urriðakots og falla mörk friðlýsingar og deiliskipulags Urriðavatnsdala og Heiðmerkur nú að þeim mörkum. Liggja mörkin að mestu leyti í legu núverandi stofnstígs undir Vífilsstaðahlíð.
Vegna umsagnar Landsnets er eftirfarandi ákvæðum bætt við í kafla 4.15 í greinargerð tillögunnar. „Hafa skal samráð við Landsnet um allar framkvæmdir í grennd við raflínur og mannvirki tengd þeim. Háspennulínur eru á vegum Landsnets sem fer með öll málefni sem þær varðar. Upplýsa skal Landsnet ef vinna er fyrirhuguð nærri spennuhafa háspennulínu og ekki má hefja vinnu nálægt flutningsvirki í rekstri nema fyrir liggi heimild frá fyrirtækinu. Sérstaka aðgát skal hafa við vinnu nærri eða undir spennuhafa háspennulína og tryggja skal að framkvæmdir ógni ekki afhendingaröryggi rafmagns."
Helgunarsvæði raflína er þar að auki bætt við á deiliskipulagsuppdrátt og texti í kafla 4.15 uppfærður m.t.t. helgunarsvæðis.
Vegna athugasemdar Skógræktarinnar er eftirfarandi bætt við kafla 4.8. í greinargerð:Taka skal mið af 19. gr. laga um skóga og skógrækt nr. 33/2019 sem fjallar um varanlega eyðingu skóga, áður en framkvæmdir við stígagerð og/eða lagningu golfbrauta hefjast.
Skipulagsnefnd telur að hvorki umsagnir né athugasemdir sem borist hafa kalli að öðru leyti á breytingu á auglýstri tillögu.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri textabreytingu í greinargerð sem deiliskipulag Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag Golfvallar í Urriðavatnsdölum sem staðfest var af Skipulagsstjóra ríkisins þann 15.desember 1992.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Tillaga að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum lögð fram að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
7 (22-26). fundur
Skipulagsstjóri ásamt Þráni Haukssyni landslagsarkitekt kynntu tillögu af nýju deiliskipulagi útivistasvæðis í Urriðavatnsdölum. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
18. (914). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Svæðið sem deiliskipulagstillagan nær til afmarkast af landamerkjum Urriðakots og Vífilsstaða til vesturs, að landi Setbergs til austurs, að Flóttamannavegi til norðurs og að landamerkjum Urriðakots og Garðalands til suðurs. Samhliða verður kynnt tillaga að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs sem er í ferli á vegum Umhverfisstofnunar. Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.“ [Mál nr. 2009538]
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
06
45. (2052). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Svæðið sem deiliskipulagstillagan nær til afmarkast af landamerkjum Urriðakots og Vífilsstaða til vesturs, að landi Setbergs til austurs, að Flóttamannavegi til norðurs og að landamerkjum Urriðakots og Garðalands til suðurs. Samhliða verður kynnt tillaga að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs sem er í ferli á vegum Umhverfisstofnunar. Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
12. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum.
Svæðið sem deiliskipulagstillagan nær til afmarkast af landamerkjum Urriðakots og Vífilsstaða til vesturs, að landi Setbergs til austurs, að Flóttamannavegi til norðurs og að landamerkjum Urriðakots og Garðalands til suðurs.
Samhliða verður kynnt tillaga að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs sem er í ferli á vegum Umhverfisstofnunar.
Innan svæðisins er gert ráð fyrir golfvelli þar sem núverandi golfvöll er að finna auk þess sem gert verður ráð fyrir golfbrautum í Urriðakotshrauni sem verður innan fyrirhugaðs fólkvangs og í samræmi við tillögu að friðlýsingarákvæðum. Gert verður ráð fyrir útivistarstígum um fólkvanginn, sem tengjast aðliggjandi stígum sem er í samræmi við tillögu að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur.
Reiðstígur í Urriðakotshrauni mun samkvæmt tillögu tengjast nýjum reiðstíg niður Vífilsstaðahlíð eins og tillaga að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur gerir ráð fyrir. Núverandi reiðstígur næst Maríuhellum breytist í útivistarstíg.
Markmið með gerð deiliskipulagsins eru eftirfarandi:
-Stuðlað verði að verndun og viðhaldi sérstæðra hraun- og jarðmyndana og náttúrulegs gróðurfars á svæðinu.
-Í Urriðavatnsdölum verði góð aðstaða til fjölbreyttrar útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu.
-Aðgengi fyrir almenning um útivistarsvæðið verði gott, stígar verði vandaðir og í góðum tengslum við stígakerfi í upplandi Garðabæjar.
-Á Urriðavelli verði aðstaða til golfiðkunar í hæsta gæðaflokki.
-Stuðlað verði að fræðslu um jarðfræði, sögu svæðisins og menningarminjar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Auglýsa skal tillögu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær m.a. til stíga-og umferðarkerfis í Upplandi Garðabæjar og samhliða tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
11. fundur
Þóra Kjarval hjá Alta ehf gerði grein fyrir vinnu við mótun tillögu að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og Umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
10. fundur
Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri gerðu grein fyrir fundum sem haldnir hafa verið í tengslum við ábendingar sem bárust í forkynningu tillögunnar. Gerð tillögunnar er langt komin og stefnt er að því að hún verði hún lögð fyrir næsta fund nefndarinnar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
6. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum að lokinni forkynningu í samræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan var forkynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis í upplandi sveitarfélagsins og tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni.
Almennur kynningarfundur var haldinn 6. apríl sl þar sem tillögurnar voru kynntar og ræddar.
Frestur til að skila inn ábendingum vegna tillögunnar rann út 25.apríl.
Ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna tillögunnar lagðar fram.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni ásamt ábendingum og umsögnum til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
5. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum að lokinni forkynningu í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan var forkynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis í upplandi sveitarfélagsins og tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni.
Almennur kynningarfundur var haldinn 6.apríl sl þar sem tillögurnar voru kynntar og ræddar.
Frestur til að skila inn ábendingum vegna tillögunnar rann út 25.apríl.
Ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna tillögunnar lagðar fram.
Skipulagsanefnd vísar tillögunni ásamt ábendingum og umsögnum til nýrrar bæjarstjórnar að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
12
42. fundur
Hildur Kristjánsdóttir, Þóra Kjarval, Halldóra Hreggviðsdóttir frá Alta og Edwin Roald kynntu tillögu að nýju deiliskipulagi útivistasvæðis í Urriðavatnsdölum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
4. (900). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að vísa til kynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Tillagan skal sérstaklega kynnt Golfklúbbnum Oddi, Hestamannafélaginu Spretti og Landsneti hf. Áður en til kynningar kemur skal tillagan send til umfjöllunar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar, sbr. 68. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. (Mál nr. 2009538)
Bæjarráð Garðabæjar
14
7. (2014). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að vísa til kynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Tillagan skal sérstaklega kynnt Golfklúbbnum Oddi, Hestamannafélaginu Spretti og Landsneti hf. Áður en til kynningar kemur skal tillagan send til umfjöllunar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar, sbr. 68. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
3. fundur
Lögð fram öðru sinni tillaga að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðakotsdölum sem unnin hefur verið á vegum landeiganda í samráði við tækni-og umhverfissvið.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni umfjöllun í umhverfisnefnd og hjá Umhverfisstofnun.
Stefnt skal að því að forkynning verið samhliða kynningu á tillögum að friðlýsingu fólkvangs í Urriðakotshrauni og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til upplands Garðabæjar.
Leita skal umsagna hjá Landsneti og Hestamannafélaginu Spretti auk hefðbundinna umsagnaraðila.
Halda skal almennan kynningarfund á meðan forkynningu stendur.
Bæjarráð Garðabæjar
16
6. (2013). fundur
Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum. Skipulags- og matslýsing hefur verið kynnt og tekin fyrir í skipulagsnefnd ásamt athugasemdum. Tillaga að deiliskipulagi til forkynningar var kynnt á fundi skipulagsnefndar 27. janúar sl. og vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
17
2. fundur
Fulltrúar landeiganda,ráðgjafastofunnar Alta og Edwin Róald Rögnvaldsson golfvallarhönnuður kynntu tillögur að golfbrautum innan fyrirhugaðs fólkvangs í Urriðakotshrauni.
Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
18
13. fundur
Skipulags-og matslýsing deiliskipulagstillögu útivistarsvæðis í Urriðakotsdölum lögð fram ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Umsögnum og ábendingum vísað til mótunar deiliskipulagstillögu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
19
15. (874). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna deiliskipulags fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnum, öðrum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi. (Mál nr. 2009538)
Bæjarráð Garðabæjar
20
39. (1947). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna deiliskipulags fyrir útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnum, öðrum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
21
10. fundur
Lögð fram verkefnislýsing deiliskipulagsgerðar sem Alta ehf hefur unnið. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða lýsingu og vísar henni til tækni- og umhverfissviðs til meðferðar.