42. fundur
42. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
09.03.2022
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
01
Vífilsstaðahraun, deiliskipulag Fólkvangs
Halldóra Narfadóttir landslagsarkitektar hjá Landslagi ehf kynnti tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðarhrauni.
Umhverfisnefnd fagnar tillögunni og vill benda á mikilvægi þess að koma á góðri og öruggri stígatengingu milli Urriðaholts og annar hverfa í Garðabæ. Leiðarval í hrauninu þarf að taka mið af umhverfis og öryggissjónarmiðum og ættu stígarnir að vera samhliða, það veldur minna raski.
02
Útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum - nýtt deiliskipulag
Hildur Kristjánsdóttir, Þóra Kjarval, Halldóra Hreggviðsdóttir frá Alta og Edwin Roald kynntu tillögu að nýju deiliskipulagi útivistasvæðis í Urriðavatnsdölum.
03
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 4. Stígakerfi í Upplandi
Halldóra Narfadóttir landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf kynnti tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna stígkerfis í upplandi.
04
Umsóknir um utanvegahlaup/hjól
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að skipulagðir viðburðir séu háðir leyfi sveitafélagsins.
Skipulagðir viðburðir í Friðlandi og þá sérstaklega við Vífilsstaðarvatn þar sem viðkvæmt lífríki er, skulu ekki heimilir norðan við vatnið, aðeins sunnan við vatnið utan varptíma, þó háð leyfi Garðabæjar. Þá er ekki heimilt að teppa bílastæði við Vífilsstaðarvatn fyrir aðstöðusköpun vegna viðburða og passa þarf uppá að aðgengi að bílastæðum sé fyrir gesti friðlandsins.
Vinna við rafrænt umsóknarkerfi er langt komin og er stefnt á að það verði tekið í notkun í mars.
05
Grenndargámar
Í skýrslu vinnuhóps um samræmingu úrgangs? á höfuðborgarsvæðinu er lögð áhersla á að bæta aðgengi að grenndargámastöðvum og að samræma úrgangsflokka á stöðvunum. Þá leggur starfshópurinn til að tvær gerðir af grenndargámastöðvum verði viðhafðar, hefðbundnar stöðvar (gler, málma, skilagjaldsskyldar umbúðir og textíl) sem þjónar 500 m radius og stærri stöðvar (gler, málma, skilagjaldsskyldar umbúðir og textíl ásamt pappír/pappa og plast.)sem þjóna 1000m radius. Þá kemur fram að fjölga þarf um tvær stöðvar í Garðabæ eina stóra stöð og eina minni.
Umhverfisnefnd leggur því áherslu á að fjölga stöðvum í sveitafélaginu og felur umhverfis og tæknisviði að finna staðsetningar.
06
Hreinsunarátak 2022
Umhverfisnefnd leggur til að hreinsunarátakið og vorhreinsun lóða verði með sama sniði og undanfarin ár.
Hreinsunarátakið mun fara fram dagana 25. apríl - 9. maí.
Vorhreinsun lóða fer fram 9. - 20. maí.
Götusópun hefst í apríl á aðalgötum og í maí verða íbúagötur sópaðar.
07
Mikill ágangur máva í Sjálandshverfi
Skoðaðar hafa verið margar leiðir til að fækka mávum. Í vor verður stungið á mávaegg til að ýta varpinu til baka inn í Gálgahraunið. Meindýraeyðir hefur bent á að íbúar geti sett veifur á þök húsa sinna til að reyna að fæla mávana frá.
09
Mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa
Lagt fram.