Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Vífilsstaðahraun .

Málsnúmer 2104420

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (2081). fundur

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. júní 2023, um deiliskipulag fyrir Vífilsstaðahraun, Vatnsmýri og Maríuhella. Með tillögunni er verið að skipuleggja svæði sem hentar til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu samhliða því að vernda jarðmyndanir, gróðurfar, fuglalíf og menningarminjar. Skilgreint er fyrirkomulag stíga, m.a. lega nýs stofnstígs og einnig er fyrirkomulag fræðslu- og áningarstaða skilgreint. Veglína Flóttamannavegar er endurskoðuð til að bæta öryggi á veginum.
Tillagan var auglýst 9. febrúar 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. maí 2023. Athugasemdir og umsagnir við tillögurnar voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 22. maí 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir.
Í tilefni af umsögn Vegagerðarinnar leggur skipulagsnefnd til að á skipulagsuppdrætti bæði aðalskipulags og deiliskipulags verði skilgreint 30 metra breitt veghelgunarsvæði fyrir Flóttamannaveg sem er tengibraut samkvæmt skipulaginu. Landnotkunarreitur Íb 4.13 austan Vífilsstaða minnkar sem nemur veghelgunarsvæði Flóttamannavegar.
Athugasemdir og umsagnir kalla ekki að öðru leyti á breytingar á auglýstri tillögu.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarráðs auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.
Varðandi umsögn Umhverfisstofnunar og athugasemdir Landssamtaka hjólreiðamanna um stöðu og útfærslu stofnstígs í gegnum fólkvang Vífilsstaðahrauns samhliða Reykjanesbraut þá lítur nefndin svo á að stofnstígurinn þjóni sama hlutverki og stofnstígur handan Reykjanesbrautar í fólkvangi Garðahrauns efra, þ.e. að bæði gangandi og hjólandi vegfarendum sé heimil för. Hinsvegar vísar skipulagsnefnd því til umhverfissviðs að við mótun deiliskipulags Reykjanesbrautar sem stefnt er að þá verði gert ráð fyrir sérstökum hjólreiðastíg (samgöngustíg) þétt upp við brautina sem þjóni þeim hjólreiðamönnum sem þurfi að komast leiðar sinnar með hraði.
Sú lega stofnstígsins sem fram kemur á deiliskipulagsuppdrætti hefur verið valin af kostgæfni í kjölfar skoðunar Umhverfisstofnunar, ráðgjafa og umhverfissviðs en ljóst er að við hönnun og framkvæmd verður farið enn nánar ofan í saumana með það að markmiði að laga stíginn að viðkvæmri ásýnd og náttúru hraunsins.
Í umsögn Vegagerðar kemur fram að Flóttamannavegur (Elliðavatnsvegur) sé flokkaður sem stofnvegur í umsjá stofnunarinnar og beri að sýna hann sem slíkan á skipulagsuppdráttum. Skipulagsnefnd bendir á að dæmi eru um að tengibrautir í aðalskipulagi sveitarfélaga séu stofnvegir í umsjá Vegagerðarinnar og því sé ekki ástæða til að skilgreina Flóttamannaveg sem stofnbraut. Skipulagsnefnd leggur til að á aðalskipulagsuppdrætti og á deiliskipulagsuppdráttum þar sem að tengibrautina Flóttamannaveg er að finna skuli skilgreint 30 m breitt veghelgunarsvæði tengibrautar.
Skipulagsnefnd telur að hvorki umsagnir né athugasemdir sem borist hafa kalli að öðru leyti á breytingu á auglýstri tillögu.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem deiliskipulag Vífilsstaðahrauns, Vatnsmýrar og Maríuhella í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns lögð fram að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

7 (22-26). fundur

Skipulagsstjóri ásamt Þráni Haukssyni landslagsarkitekt kynntu tillögu að deiliskipulagi fólkvangs í Vífilsstaðahrauni. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

18. (914). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns, Maríuhella og Vatnsmýrar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Um er að ræða 70 ha svæði sem afmarkast að Reykjanesbraut að vestan, Vífilsstaðalæk að norðan, Heiðmörk að austan og Urriðaholti að sunnan. Maríuhellar eru innan svæðisins.
Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.“ [Mál nr. 2104420]

Bæjarráð Garðabæjar

06

45. (2052). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns, Maríuhella og Vatnsmýrar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Um er að ræða 70 ha svæði sem afmarkast að Reykjanesbraut að vestan, Vífilsstaðalæk að norðan, Heiðmörk að austan og Urriðaholti að sunnan. Maríuhellar eru innan svæðisins.
Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

12. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns.
Tillagan nær til um 70 ha svæðis sem afmarkast að Reykjanesbraut að vestan, Vífilsstaðalæk að norðan, Heiðmörk að austan og Urriðaholti að sunnan. Maríuhellar eru innan svæðisins.
Markmiðið með deiliskipulaginu er að skipuleggja svæði sem henti til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu samhliða því að vernda jarðmyndanir, gróðurfar, fuglalíf og menningarminjar. Skilgreint er fyrirkomulag stíga, m.a. er nýr stofnstígur staðsettur og einnig er fyrirkomulag fræðslu- og áningarstaða skilgreint. Veglína Flóttamannavegar er endurskoðuð til að bæta öryggi á veginum og er gert ráð fyrir brú yfir Flóttamannaveg við Vatnsmýrina. Lega og útfærsla vegarins er í samræmi við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 þar sem gert er ráð fyrir að vegurinn verði skilgreindur sem tengibraut. Gert er ráð fyrir stígatengingu við mögulega göngubrú yfir Reykjanesbraut.
Fyrirkomulag göngu- og hjólastíga þarf að mynda tengingu milli hverfanna sem eru norðan, sunnan og vestan við svæðið. Sérstaklega þarf að tryggja aðgengi íbúa hverfanna að íþróttasvæðinu í Vetrarmýrinni, sem er norðan við fólkvanginn, úr hverfunum umhverfis. Einnig þarf að tryggja tengingu við útivistarsvæðin í Heiðmörk og Urriðakotshrauni.
Tillagan hefur verið mótuð í samráði við Umhverfisstofnun enda er Fólkvangur Vífilsstaðahrauns og Maríuhella innan svæðisins.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Auglýsa skal tillöguna samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær m.a. til stíga-og umferðarkerfis í Upplandi Garðabæjar og samhliða tillögu að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

11. fundur

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi gerði grein fyrir samráði við Umhverfisstofnun sem hefur farið fram við mótun tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns.
Gerði hann grein fyrir þeim valkostum sem staðið er frammi fyrir um legu og útfærslu stígakerfis. Skipulagsnefnd fellst á tillögu ráðgjafa um legu á stíg í gegnum hraunið í hæfilegri fjarlægð frá Reykjanesbraut.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

10. fundur

Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri gerðu grein fyrir fundum sem haldnir hafa verið í tengslum við ábendingar sem bárust í forkynningu tillögunnar. Samráðsfundur verður haldinn með Umhverfisstofnun síðar í þessari viku. Gerð tillögunnar er langt komin og stefnt er að því að hún verði hún lögð fyrir næsta fund nefndarinnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

6. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns að lokinni forkynningu í samræmi við 3. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Þráinn Hauksson skipulagsráðgjafi gerði grein fyrir tillögunni.
Tillagan var forkynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis í upplandi sveitarfélagsins og tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum.
Almennur kynningarfundur var haldinn 6.apríl sl þar sem tillögurnar voru kynntar og ræddar.
Frestur til að skila inn ábendingum vegna tillögunnar rann út 25.apríl.
Ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna tillögunnar lagðar fram.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni ásamt ábendingum og umsögnum til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

5. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns að lokinni forkynningu í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan var forkynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis í upplandi sveitarfélagsins og tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum.
Almennur kynningarfundur var haldinn 6.apríl sl þar sem tillögurnar voru kynntar og ræddar.
Frestur til að skila inn ábendingum vegna tillögunnar rann út 25.apríl.
Ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna tillögunnar lagðar fram.
Skipulagsanefnd vísar tillögunni ásamt ábendingum og umsögnum til nýrrar bæjarstjórnar að afloknum sveitarstjórnarkosningum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

12

42. fundur

Halldóra Narfadóttir landslagsarkitektar hjá Landslagi ehf kynnti tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðarhrauni.

Umhverfisnefnd fagnar tillögunni og vill benda á mikilvægi þess að koma á góðri og öruggri stígatengingu milli Urriðaholts og annar hverfa í Garðabæ. Leiðarval í hrauninu þarf að taka mið af umhverfis og öryggissjónarmiðum og ættu stígarnir að vera samhliða, það veldur minna raski.

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

4. (900). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að vísa til kynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Áður en til kynningar kemur skal tillagan send til umfjöllunar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar, sbr. 68. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. (Mál nr. 2104420)

Bæjarráð Garðabæjar

14

7. (2014). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að vísa til kynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Áður en til kynningar kemur skal tillagan send til umfjöllunar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar, sbr. 68. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

3. fundur

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf kynnti tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni umfjöllun í umhverfisnefnd og hjá Umhverfisstofnun.
Halda skal almennan kynningarfund á meðan forkynningu stendur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

14. fundur

Þráinn Hauksson og Halldóra Narfadóttir hjá Landslagi ehf kynntu drög að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns.
Vísað til frekari mótunar hjá ráðgjöfum og tækni-og umhverfissviði.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

17

35. fundur

ÍTG fagnar áætlunum um stígagerð og tengingar milli Urriðaholts og íþrótta- og útivistarsvæða í nálægð við hverfið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

18

13. (891). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að deiliskipulagi Fólkvangs í Vífilsstaðahrauni, Maríuhellum og Vatnsmýrinni." (Mál nr. 2104420)

Bæjarráð Garðabæjar

19

38. (1996). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að deiliskipulagi Fólkvangs í Vífilsstaðahrauni, Maríuhellum og Vatnsmýrinni.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

20

11. fundur

Þráinn Hauksson landlagsarkitekt og Halldóra Narfadóttir landfræðingur, bæði hjá Landslagi ehf, kynntu tillögu að lýsingu deiliskipulagsferlis vegna Vífilsstaðahrauns í samræmi við 1.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu sem lýsingu verkefnisins og vísar henni til umsagnar og kynningar í samræmi við 2.mgr.sömu greinar sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

21

6. fundur

Formaður skipulagsnefndar leggur fram tillögu um að tækni-og umhverfissviði verði falið að hefja vinnu við mótun tillögu að deiliskiplagi Fólkvangs í Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum. Deiliskipulagssvæðið verði um 70 ha og afmarkast það af Reykjanesbraut í vestri, Vífilsstaðalæk í norðri, Heiðmörk í austri og Urriðaholti í suðri.
Skipulagsnefnd tekur undir tillögu formanns og vísar henni til tækni-og umhverfissviðs.