Beint í efni

35. fundur

09.11.2021
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

35. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

09.11.2021

Kl. 16:15 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Gestir fundarins voru Hulda Hauksdóttir upplýsingafulltrúi, Tómas Þór Jakobsen Klakanum, John Bond og Vilborg Harðardóttir Garðalundi og Sigríður Elísabet Ragnarsdóttir Elítunni.

Dagskrá

Málsnúmer 1911163

01

Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun

Lýðræðisstefna Garðabæjar er í endurskoðun. Starfshópur þvert á svið Garðabæjar hefur nú lagt drög fram til umsagnar í nefndum bæjarins og fyrir almenning á vefsíðu bæjarins. Hulda Hauksdóttir kynnti þau drög sem liggja fyrir.

ÍTG fagnar framkomnum tillögum og hvetur fólk til að kynna sér þessi nýju drög vel.

Málsnúmer 2111135

02

Ungmennaráð og ungmennaþing 2021

Nýlega for fram Ungmennaþing í Flataskóla. Formaður Ungmennaráðs greinir frá helstu niðurstöðum þess og öðrum málefnum sem á ungmennum brenna í dag.

Tómas þór Jakobsen fór yfir hlutverk Ungmennaráðs og starfsemi. Fyrir dyrum stendur kynningarátak meðal elstu bekkja grunnskólanna í Garðabæ. Fulltrúar URG finna fyrir auknum áhuga bæjaryfirvalda á því að virkja ráðið og gefa þeim verðug verkefni s.s. í forvarnavikunni og að halda ungmennaþing, auk þess eru þau virk inni í vinnu við innleiðingu á "Barnvænu samfélagi".

Málsnúmer 2111134

03

Starf félagsmiðstöðva Garðabæjar

Forstöðumenn félagsmiðstöðva unglinga í Garðabæ fóru yfir starfsemina á hverjum stað. Verið er að virkja 7. bekkinga í Urriðaholtsskóla með miðdeild Sjálandsskóla. Klakinn og Elítan vinna saman við að setja upp böll og samstarf við Garðalund er líka alltaf að aukast. Ýmsir viðburðir hafa legið niðri eða verið óreglulegir í Covid og lítið starf með foreldrum. Mikil nýbreytni hefur sprottið upp og gamlar hefðir eru að lifna aftur. Tækifæri til breytinga og að ná til einstaklinga sem ekki hafa áður fundið sig í starfinu. Mikið er lagt upp úr því að unglingarnir sjái sjálf um alla skipulagningu. Garðalundur hefur umsjón með miðdeildaropnun fyrir 7. bekk í Flataskóla og Hofsstaðaskóla. Kallað er eftir auknu fjármagni í miðdeildarstarfið almennt.

Sameiginleg starfsemi Klakans, Elítunnar og Garðalundar eru með Götuvaktina á föstudögum og einstaka böll.

Elítan á Álftanesi hefur haft miðdeildarstarf fyrir 5.-7. bekk en finna þörf á að hafa 7. bekk á sér kvöldi. Stefna að opnun 8.-10.b þrjú kvöld í viku eins og Garðalundur. Finna mikla þörf á að hafa opið oftar. Sérstaða Elítunnar er að vera í sínu húsnæði utan skólans. Elítan er alltaf með opið á morgnana í frímínútum fyrir skólakrakkana.

Málsnúmer 2110208

04

Styrkbeiðni. (Ösp)

ÍTG fagnar starfi Asparinnar og þeirri þjónustu sem félagið veitir íbúum úr Garðabæ með fatlanir, þó starfsemi félagsins sé mest í Reykjavík. Styrkbeiðni félagsins verður afgreidd með öðrum styrkveitingum Garðabæjar í mars 2022 samkvæmt afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2022.

Málsnúmer 2111133

05

Forvarnasjóður 2022

Drög að útgjaldaliðum forvarnasjóðs 2022

Drög að útgjaldaliðum forvarnasjóðs 2022 voru lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 2110328

06

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur til Davíðs Freys Eiríkssonar kt.221103-2540 vegna U19 í blaki í Finnlandi 27. október 2021.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000,- til Davíðs Freys Eiríkssonar kt.221103-2540 vegna U19 í blaki í Finnlandi 27. október 2021.

Málsnúmer 2104420

07

Vífilsstaðahraun, deiliskipulag Fólkvangs

ÍTG fagnar áætlunum um stígagerð og tengingar milli Urriðaholts og íþrótta- og útivistarsvæða í nálægð við hverfið.

Önnur mál:
a. Umræður um fjárhagsáætlun 2022. Björg fór yfir helstu liði í framkvæmdum er snerta íþróttir og tómstundamál.