Beint í efni

Fundargerðir ungmennaráðs frá 15/2 og 26/9 ´22.

Málsnúmer 2111135

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

36. (2043). fundur

Fundargerðir ungmennaráðs frá 15. febrúar 2022 og 26. september 2022 lagðar fram.

Bæjarráð Garðabæjar

02

6. (2013). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundaráðs að fulltrúar í ungmennaráði fái á árinu 2022 greidd hálf nefndarlaun vegna funda í ungmennaráði og formaður full nefndarlaun. Miðað er við allt að 8 fundi á ári.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

39. fundur

Umræða um nefndarlaun stjórnarmanna í Ungmennaráði.
Í UR sitja nú 10 ungmenni auk formanns.

Íþrótta- og tómstundaráð leggur til við bæjarráð að samþykkja eftirfarandi tillögu að tilraunaverkefni er varðar nefndarlaun fyrir setu í Ungmennaráði fyrir árið 2022.
Tillagan;
Nefndarmenn í Ungmennaráði fá greidd laun fyrir setu á fundum ráðsins frá 1. mars til lok árs 2022 eða að hámarki fyrir átta fundi á árinu. Lagt er til að nefndarmenn ráðsins fái greidd hálf nefndarlaun fastanefnda hjá bænum og formaður fái greidd full laun nefndarmanns í fastanefnd hjá bænum. Einungis er greitt fyrir þá fundi sem mætt er á.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

35. fundur

Nýlega for fram Ungmennaþing í Flataskóla. Formaður Ungmennaráðs greinir frá helstu niðurstöðum þess og öðrum málefnum sem á ungmennum brenna í dag.

Tómas þór Jakobsen fór yfir hlutverk Ungmennaráðs og starfsemi. Fyrir dyrum stendur kynningarátak meðal elstu bekkja grunnskólanna í Garðabæ. Fulltrúar URG finna fyrir auknum áhuga bæjaryfirvalda á því að virkja ráðið og gefa þeim verðug verkefni s.s. í forvarnavikunni og að halda ungmennaþing, auk þess eru þau virk inni í vinnu við innleiðingu á "Barnvænu samfélagi".