39. fundur
39. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
08.02.2022
Kl. 16:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2012042
01
Skólastefna Garðabæjar 2020
Eiríkur Björn Björgvinsson kynnir drög að endurskoðaðri skólastefnu Garðabæjar.
ÍTG skoðar nálganir við frístundastarf og vinnuskóla Garðabæjar.
Drög að endurskoðaðri menntastefnu Garðabæjar var lögð fram til kynningar.
ÍTG skoðar nálganir við frístundastarf og vinnuskóla Garðabæjar og skilar tillögu þar að lútandi. Umræður um gildissvið stefnunnar og hugtakanotkun. Íþrótta-, tómstunda og forvarnarfulltrúa falið að koma ábendingum áfram til þeirra sem vinna að stefnunni.
Málsnúmer 2111135
02
Ungmennaráð
Umræða um nefndarlaun stjórnarmanna í Ungmennaráði.
Í UR sitja nú 10 ungmenni auk formanns.
Íþrótta- og tómstundaráð leggur til við bæjarráð að samþykkja eftirfarandi tillögu að tilraunaverkefni er varðar nefndarlaun fyrir setu í Ungmennaráði fyrir árið 2022.
Tillagan;
Nefndarmenn í Ungmennaráði fá greidd laun fyrir setu á fundum ráðsins frá 1. mars til lok árs 2022 eða að hámarki fyrir átta fundi á árinu. Lagt er til að nefndarmenn ráðsins fái greidd hálf nefndarlaun fastanefnda hjá bænum og formaður fái greidd full laun nefndarmanns í fastanefnd hjá bænum. Einungis er greitt fyrir þá fundi sem mætt er á.
Málsnúmer 2202112
03
Afreksstyrkir 2022
ÍTG leggur til að styrkja íþróttafólk ársins eins og undanfarin ár um kr. 200.000,- hvort til að sinna enn frekar sinni íþrótt.
Einnig að styrkja þau sem valin voru þjálfarar ársins um kr. 80.000,- hvort til að sinna aukinni menntun á sínu sviði.
ÍTG leggur til að styrkja íþróttafólk ársins eins og undanfarin ár um kr. 200.000,- hvort til að sinna enn frekar sinni íþrótt.
Einnig að styrkja þau sem valin voru þjálfarar ársins um kr. 80.000,- hvort til að sinna aukinni menntun á sínu sviði.
Stefnt er að því að auglýsa aftur styrki úr Afrekssjóði fyrir 1. september 2022.
Málsnúmer 2201182
04
Ágúst Óliver Erlingsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Ágústs Ólivers Erlingssonar kt. 1605022310 vegna EM í hópfimleikum í Portugal 29.11. - 05.12.2021
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Ágústs Ólivers Erlingssonar kt. 1605022310 vegna EM í hópfimleikum í Portugal 29.11. - 05.12.2021
Málsnúmer 2112265
05
Frístundabíll 2021-2022
Akstur frístundabíls tekur mið af því að knattspyrnuæfingar yngstu barnanna færast í Miðgarð. Æfingar hefjast þar á sama tíma og þær voru áður utanhúss.
Akstur frístundabíls tekur mið af því að knattspyrnuæfingar yngstu barnanna færast í Miðgarð frá 7. febrúar. Sérstök æfingatafla hefur verið sett upp í samstarfi við Stjörnuna, UMFÁ og KFG.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2202099
06
Karatefélag Garðabæjar
Nýstofnað Karatefélag Garðabæjar óskar eftir að hefja æfingar fyrir börn Garðabæ með aðstöðu í Sjálandsskóla. Þeim hefur verið heimilað að auglýsa námskeið á vorönninni til kynningar.
Nýstofnað Karatefélag Garðabæjar óskar eftir að hefja æfingar fyrir börn í Garðabæ með aðstöðu í Sjálandsskóla. Þeim hefur verið heimilað að auglýsa námskeið á vorönninni til kynningar.
Málsnúmer 2112105
07
BMX-racing hjólaíþróttir
Stofnaður hefur verið BMX-racing klúbbur í Garðabæ. Félagið óskra eftir landsvæði til að móta fyrir sitt starf.
Stofnaður hefur verið BMX-racing klúbbur í Garðabæ. Félagið óskar eftir landsvæði til að móta fyrir sitt starf. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa falið að skoða málið í samstarfi við umhverfissvið bæjarins.
Málsnúmer 2112370
08
Bogfimifélag
Bogfimifélagið Boginn hefur leitast eftir aðstöðu til að setja upp æfingasvæði í Garðabæ.
Bogfimifélagið Boginn hefur leitast eftir aðstöðu til að setja upp æfingasvæði í Garðabæ. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa falið að skoða málið í samstarfi við umhverfissvið bæjarins.
Málsnúmer 2112266
09
Hofsstaðavöllur
GKG óskar eftir aðstöðu til að halda golfleikjanámskeið sitt fyrir börn á Hofsstaðavelli sumarið 2022 þar sem æfinga og leiksvæði hverfur undir húsbyggingar í Vetrarmýri í sumar.
GKG óskar eftir aðstöðu til að halda golfleikjanámskeið sitt fyrir börn á Hofsstaðavelli sumarið 2022 þar sem æfinga og leiksvæði hverfur undir húsbyggingar í Vetrarmýri í sumar.
Málsnúmer 2201529
10
Tillaga Garðabæjarlistans um skipan rýnihóps um framtíðarstarfsemi í fjölnota íþróttahúsi.
ÍTG tekur undir mikilvægi þess að halda áfram því góða samtali sem verið hefur við félögin í bænum og þá aðila sem óska eftir að hafa starfsemi í Miðgarði.
a. Rætt um óskir Golfklúbbsins Odds varðandi styrk í tengslum við Evrópumót stúlknalandsliða í sumar. Rætt um að vinna að verkefni í samstarfi við Odd og GSÍ til að efla en frekar kvennagolf í tengslum við mótið.