Tillaga Garðabæjarlistans um skipan rýnihóps um framtíðarstarfsemi í fjölnota íþróttahúsi.
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
39. fundur
ÍTG tekur undir mikilvægi þess að halda áfram því góða samtali sem verið hefur við félögin í bænum og þá aðila sem óska eftir að hafa starfsemi í Miðgarði.
Bæjarráð Garðabæjar
02
4. (2011). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga.
„Í ljósi þess að nú styttist í afhendingu á fjölnota íþróttahúsi leggur Garðabæjarlistinn til að skipaður verði rýnihópur skipaður af fulltrúum meiri- og minnihluta ásamt íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa, fulltrúa ungmennaráðs og félags eldri borgara.
Hlutverk rýnihóps er að kalla eftir hugmyndum um starfsemi í húsinu og kappkosta að sem fjölbreyttust sjónarmið komi fram. Rýnihópurinn kalli eftir sjónarmiðum félagasamtaka ásamt öðrum sem tengjast íþrótta- og tómstundastarfi í bænum.“
Greinargerð.
Með tilkomu nýs fjölnota íþróttahúss skapast mikið rými fyrir fjölbreytta starfsemi íbúum til heilsubóta.
Því skiptir máli að hugað sé sérstaklega vel að því hvers konar starfsemi fær að njóta sín í slíku húsi. Huga þarf sérstaklega að fjölbreyttri starfsemi og ólíkum þörfum og getu til heilsueflandi iðkunar hvers konar sem styður lýðheilsu bæjarbúa að teknu tilliti til þeirra yngstu jafnt sem þeirra elstu.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til íþrótta- og tómstundaráðs.