Menntastefna Garðabæjar
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (902). fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir, fylgdi úr hlaði menntastefnu Garðabæjar 2022-2030 og færði öllum þeim sem komu að undirbúningi og gerð stefnunnar þakkir fyrir þeirra hlut að máli.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða menntastefnu Garðabæjar 2022-2030.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
40. fundur
Menntastefna 2022-2030, lögð fram til kynningar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
12. (2019). fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerð grein fyrir vinnu við endurskoðun menntastefnu Garðabæjar og helstu áherslum. Menntastefnan hefur verið samþykkt í skólanefnd grunnskóla, leikskólanefnd og skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar. Innleiðing mun fara fram í nefndum og einstaka skólum í framhaldi af samþykkt stefnunnar. Við vinnslu stefnunnar var horft til Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og leiðarljóss heilsueflandi og barnvæns samfélags í Garðabæ.
Bæjarráð vísar menntastefnu Garðabæjar 2022 - 2030 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
04
39. fundur
Menntastefna 2022-2030 lögð fram til kynningar og samþykktar. Skólanefnd felur fræðslusviði að koma með tillögu að innleiðingu og eftirfylgd stefnunnar. Skólanefnd samþykkir menntastefnuna og vísar til afgreiðslu bæjarsjórnar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
05
30. fundur
Farið yfir núverandi drög og rætt um stöðu vinnunnar.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
06
38. fundur
Drög að endurskoðaðri menntastefnu kynnt og farið yfir lokafrágang vinnunnar.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
07
39. fundur
Eiríkur Björn Björgvinsson kynnir drög að endurskoðaðri skólastefnu Garðabæjar.
ÍTG skoðar nálganir við frístundastarf og vinnuskóla Garðabæjar.
Drög að endurskoðaðri menntastefnu Garðabæjar var lögð fram til kynningar.
ÍTG skoðar nálganir við frístundastarf og vinnuskóla Garðabæjar og skilar tillögu þar að lútandi. Umræður um gildissvið stefnunnar og hugtakanotkun. Íþrótta-, tómstunda og forvarnarfulltrúa falið að koma ábendingum áfram til þeirra sem vinna að stefnunni.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
08
37. fundur
Upplýst um stöðu við endurgerð skólastefnu Garðabæjar.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
09
36. fundur
Upplýst var um stöðu við endurgerð menntastefnu.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
10
35. fundur
Upplýst um stöðu við endurgerð menntastefnu og farið yfir næstu skref.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
11
34. fundur
Upplýst var um stöðu við endurgerð menntastefnu og farið yfir næstu skref við vinnuna.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
12
33. fundur
Formaður ræddi stöðu á vinnu við endurskoðun nýrrar skólastefnu. Vinna við endurskoðun er skv. áætlun.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
13
32. fundur
Skólanefnd fór yfir og ræddi drög að endurskoðaðri menntastefnu 2021.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
14
31. fundur
Farið yfir stöðu á vinnu við endurskoðun nýrrar skólastefnu. Vinna við endurskoðun stefnunnar er skv. áætlun.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
15
30. fundur
Farið var yfir stöðu á vinnu við endurskoðun nýrrar skólastefnu. Vinna við endurskoðun er skv. áætlun.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
16
28. fundur
Farið var yfir stöðu á vinnu við endurskoðun nýrrar skólastefnu. Vinna við endurskoðun stefnunnar er skv. áætlun.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
17
27. fundur
Formaður kynnir undirbúning að endurskoðun menntastefnu.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
18
26. fundur
Formaður fór yfir hugmyndir að áherslum varðandi endurskoðun núverandi skólastefnu Garðabæjar og mikilvægi þess að stefnan verði unnin faglega og lýðræðislega með aðkomu skólanefndar grunnskóla, leikskólanefndar, skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar auk starfsmanna á fræðslu- og menningarsviði. Þá verða hagsmuna- og fagaðilar leik-, grunn- og tónlistarskóla boðaðir til samtals við vinnslu stefnunnar. Þá ræddi formaður um að tengja vinnuna við fyrirliggjandi áherslur og stefnur á sviðinu auk þess að tryggja hagnýtt gildi stefnunnar. Áætlað er að endurskoðun skólastefnu Garðabæjar, ljúki við lok árs 2021.