40. fundur
40. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Flataskóla
30.03.2022
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir - varamaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Ágúst Frímann Jakobsson - fulltrúi skólastjóra
- Ásta Kristín Ingólfsdóttir - fulltrúi kennara
- Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
02
Þróunarsjóður grunnskóla 2022
Úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæajar 2022, lögð fram til kynningar.
03
Stoðþjónusta í grunnskólum
Farið yfir stöðu stoðþjónustu í grunnskólum Garðabæjar.
04
Skólamáltíðir í skólum Garðabæjar
Drög útboðs á skólamáltíðum í leik- og grunnskólum Garðabæjar lagt fram til kynningar.
05
Kynningar, innritanir og húsnæðismál vegna skólaársins 2022-2023
Farið var yfir innritun og húsnæðismál í grunnskólum Garðabæjar skólaársins 2022-2023.
06
Tillaga um hinsegin fræðslu og heilsueflandi samfélag.
Tillaga Garðabæjarlistans lögð fram til kynningar og umræðu. Í grunnskólum Garðabæjar fá allir nemendur og starfsfólk hinsegin fræðslu. Fræðslan fer ýmist fram af kennurum, námsráðgjöfum, skólahjúkrunarfræðingum eða utanaðkomandi aðilum eins og Samtökunum 78. Skólanefnd vísar tillögunni til fræðfræðslusviðs til frekari umræðu með skólastjórnendum.
07
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021
Kynningu frestað til næsta fundar skólanefndar.
08
Erindi til skólanefndar Garðabæjar frá Barnaskóla Hjallastefnunnar
Starfsfólk Barnaskóla Hjallastefnunnar óskar eftir að færa starfsdaginn 21. september 2022 aftur til 27.október 2022 vegna námsferðar til Finnlands. Skólanefnd samþykkir erindið enda tryggi skólinn opnun frístundaheimilisins eins og tíðkast á starfsdögum fyrir þá sem þess óska.
09
Kynning og samtal við stjórnendur
Skólanefnd þakkar skólastjórnendum Flataskóla áhugaverða kynningu. Skólanefnd fagnar því að geta á ný fundað í skólum bæjarins og kynnt sér skólastarfið með þessum hætti.