Beint í efni

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021

Málsnúmer 2201437

Ferill máls

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

01

2. fundur

Lagt fram til kynningar niðurstöður árlegrar þjónustukönnunar Gallup sem framkvæmd var í lok árs 2021 og byrjun árs 2022. Markmið könnunarinnar er að kanna ánægju með þjónustu 20 stærstu sveitarfélaga landsins og gera samanburð þar ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum.

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021. Í meginatriðum er niðurstaðan jákvæð í helstu málaflokkum og íbúar í heildina litið ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Þjónusta við fatlað fólk er lítillega undir landsmeðaltali. Samráðshópur hvetur starfsmenn á fjölskyldusviði til að rýna frekar í niðurstöðu þjónustukönnunarinnar og nýta sem tækfæri til úrbóta.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

41. fundur

Lagt fram til kynningar. Skólanefnd fagnar því að forráðamenn grunnskólanemenda í Garðabæ eru þeir ánægðustu meðal sveitarfélaga sem könnunin nær til. Þakkir eru færðar til starfsmanna fræðslu- og menningarsviðs og grunnskólanna í bænum fyrir þeirra góða starf.

Öldungaráð

03

2. fundur

Mál nr. 2201437, lagt fram til kynningar, þjónustukönnun Gallup 2021. Markmiðið er að kanna ánægju með þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins og gera samanburð þar ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum.

Mál nr. 2201437, lagt fram til kynningar. Öldungaráð lýsir yfir ánægju með niðurstöður íbúakönnunar Gallup, varðandi þá þætti er snúa að þjónustu við eldri borgara í sveitarfélaginu.

Leikskólanefnd Garðabæjar

04

33. fundur

Íbúakönnun Gallup lögð fram til kynnngar.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

05

40. fundur

Kynningu frestað til næsta fundar skólanefndar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

4. fundur

Niðurstaða könnunar lögð fram.

Fjölskylduráð Garðabæjar

07

3. fundur

Lagt fram til kynningar niðurstöður árlegrar þjónustukönnunar Gallup sem framkvæmd var í lok árs 2021 og byrjun árs 2022. Markmið könnunarinnar er að kanna ánægju með þjónustu 20 stærstu sveitarfélaga landsins og gera samanburð þar ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum.

Mál nr. 2201437, lagt fram til kynningar, þjónustukönnun Gallup 2021. Í meginatriðum er niðurstaðan jákvæð í helstu málaflokkum og íbúar í heildina litið ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Niðurstöður þeirra málaflokka er heyra undir fjölskylduráð (ánægja með þjónustu við eldri borgara, barnafjölskyldur og fatlað fólk) lækkar lítillega á milli ára. Þjónusta við eldri borgara og barnafjölskyldur er þó yfir landsmeðaltali en þjónusta við fatlað fólk er lítillega undir landsmeðaltali. Fjölskylduráð hvetur starfsmenn á fjölskyldusviði til að rýna frekar í niðurstöðu þjónustukönnunarinnar og nýta sem tækfæri til úrbóta á sviðinu.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

08

1. fundur

Lögð fram til kynningar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

09

42. fundur

Lagt fram.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

10

40. fundur

ÍTG fagnar að í könnuninni kemur fram aukin ánægja með aðstöðu til íþróttaiðkunar í bæjarfélaginu. Mikilvægt er að skoða niðurstöðurnar til að bæta þar sem óánægju gætir.

Bæjarráð Garðabæjar

11

6. (2013). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2021. Almennt lækkar ánægja íbúa á árinu 2021 í öllum sveitarfélögum sem könnunin nær til. Þrátt fyrir það er í öllum meginatriðum niðurstaðan jákvæð í helstu málaflokkum og íbúar ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.

Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.

Bæjarfulltrúi, Björg Fenger var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2 með fjarfundarbúnaði. Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1, 2 og 3.