41. fundur
41. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Hofsstaðaskóla
04.05.2022
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir - varamaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Ágúst Frímann Jakobsson - fulltrúi skólastjóra
- Ásta Kristín Ingólfsdóttir - fulltrúi kennara
- Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
Ritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson
Dagskrá
01
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021
Lagt fram til kynningar. Skólanefnd fagnar því að forráðamenn grunnskólanemenda í Garðabæ eru þeir ánægðustu meðal sveitarfélaga sem könnunin nær til. Þakkir eru færðar til starfsmanna fræðslu- og menningarsviðs og grunnskólanna í bænum fyrir þeirra góða starf.
04
Skólapúlsinn 2022
Niðurstöður Skólapúlsins fyrir skólaárið 2021-2022 lagðar fram til kynningar.
05
Erindi til skólanefndar Garðabæjar frá Flataskóla
Starfsfólk Flataskóla óskar eftir að færa starfsdaginn 20. september 2022 til 27. október 2022, vegna námsferðar til Englands. Skólanefnd samþykkir erindið enda tryggi skólinn opnun frístundaheimilisins eins og tíðkast á starfsdögum fyrir þá sem þess óska.
06
Kynning og samtal við stjórnendur
Skólanefnd þakkar skólastjórnendum Hofsstaðaskóla fyrir áhugaverða kynningu. Skólanefnd fagnar því að geta kynnt sér skólastarfið með þessum hætti.