Beint í efni

Móttaka flóttafólks

Málsnúmer 2203237

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

41. fundur

Fræðslustjóri upplýsti um stöðu flóttabarna frá Úrkaínu.

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

4. fundur

Minnisblað um stöðu móttöku flóttamanna frá Úkraínu lagt fram til kynningar.

Minnisblað um stöðu móttöku flóttafólks frá Úkraínu í Garðabæ lagt fram til kynningar og umræðu.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

14. (2021. fundur

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði grein fyrir móttöku á flóttafólki til Garðabæjar frá Úkraínu. Fram kom að flóttafólki hafi verið boðið til samkomu sl. föstudags þar sem það var boðið velkomið og farið nánar yfir mál hvers og eins. Ráðinn hefur verið sérstakur verkefnastjóri til að hafa umsjón með málflokknum. Von er á samningsdrögum frá ríkinu vegna málsins.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi að skólaþjónustu fyrir börnin í hópnum.

Fjölskylduráð Garðabæjar

04

3. fundur

Lagt er fram erindi frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti varðandi móttöku flóttafólks sem barst 9.3.2022. Í bréfinu er leitað til sveitarfélagsins um þátttöku í verkefninu og óskað að áhugasöm sveitarfélög hafi samband við ráðuneytið.

Erindi til sveitarfélaga um móttöku flóttafólks tekið til umfjöllunar. Fjölskylduráð tekur undir bókun bæjarráðs um vilja til þátttöku í samstarfi við ráðuneytið og eftir atvikum önnur sveitarfélög vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

05

10. (2017). fundur

Bæjarráð vísar í fyrri samþykktir vegna málsins og lýsir yfir vilja til þátttöku í samstarfi við ráðuneytið og eftir atvikum önnur sveitarfélög vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu.