4. fundur
4. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
27.04.2022
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Margrét Íris Baldursdóttir - varamaður
- Eymundur Sveinn Einarsson - varamaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðrún Willardsdóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Umsókn um fjárhagsaðstoð - trygging húsaleigu
Mál nr. 2202464, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu lögð fyrir fjölskylduráð.
Tekið er fyrir mál nr. 2202464, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
02
Innleiðing barnaverndarlaga.
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um frestun gildistöku samþykktra ákvæða barnaverndarlaga. Mennta- og barnamálaráðuneyti hefur samþykkt ósk Sambands íslenskra sveitarfélaga um frestun gildistöku breytinga á barnaverndarlögum a.m.k. fram til 1. október 2022. Samhliða frestuninni hefur verið stofnaður innleiðingarhópur með fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytis, Barna- og fjölskyldustofu og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á fundi sambandsins 25. febrúar sl. var lýst yfir ánægju með frestunina en áhersla lögð á að sá frestur sem veittur hefur verið nýtist til að skipuleggja fyrirkomlag umdæmisráða.
Erindi um frestun gildistöku samþykktra ákvæða barnaverndarlaga lagt fram til kynningar fyrir fjölskylduráði.
03
Móttaka flóttafólks
Minnisblað um stöðu móttöku flóttamanna frá Úkraínu lagt fram til kynningar.
Minnisblað um stöðu móttöku flóttafólks frá Úkraínu í Garðabæ lagt fram til kynningar og umræðu.
Fylgiskjöl
04
Samstarf um endurhæfingarúrræði
Mál nr. 2204274, kynning á endurhæfingarúrræði hjá Hugarafli.
Starfsemi Hugarafls er mótuð bæði af einstaklingum með persónulega reynslu af andlegum áskorunum (notendur) og einstaklingum með fagmenntun. Þátttaka í starfsemi Hugarafls er fyrir öll, 18 ára og eldri, sem hafa áhuga á að vinna í geðheilsu sinni á eigin forsendum. Starfsmenn á fjölskyldusviði áttu fund með Hugarafli 18. febrúar 2022 þar sem rætt var um mögulegt samstarf fyrir einstaklinga sem hafa verið lengi á fjárhagsaðstoð. Samtökin hafa sérstaklega horft til þess hóps í starfi sínu. Starfsmenn fjölskyldusviðs telja að fjöldi einstaklinga á fjárhagsaðstoð sem gætu nýtt sér slíka þjónustu séu á bilinu 5-15 talsins. Hugarafl hefur gert samning við önnur sveitarfélög og tekið á móti skjólstæðingum þeirra með sérsniðnum stuðningi gegn því að greitt sé mánaðarlega með hverjum og einum skjólstæðingi. Gera má ráð fyrir að skjólstæðingar þurfi á fjárhagsaðstoð að halda eftir upphaf endurhæfingarinnar í allt að tvo mánuði á meðan unnið er að endurhæfingaráætlun og sótt er um endurhæfingarlífeyri til Tryggingastofnunar. Að sögn Hugarafls hefur reynst vel að koma notendum í virkni og betur út í samfélagið í kjölfar endurhæfingar. Margir þurfi ekki á fjárhagsaðstoð að halda í kjölfarið.
Lagt fram til umræðu.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Fjölskylduráð tekur jákvætt í möguleikann á samstarfi og beinir því til starfsmanna að skoða hvernig úrræðið hefur reynst hjá öðrum sveitarfélögum sem hafa þegar gert samninga við Hugarafl.
05
Tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2022
Mál nr. 1903268 lagt fram til kynningar, tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð mars 2022.
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð í mars 2022 lagt fram til umræðu.